Freyr

Árgangur

Freyr - 01.03.1994, Blaðsíða 17

Freyr - 01.03.1994, Blaðsíða 17
Rúna er frábærlega falleg, einkum hálsinn og samræmið. Hún er fjöl- hæf og er flugvökur og harðviljug. Rúna var vel að því komin að vera efst í sínum flokki og jafnframt hæst dæmda kynbótahross mótsins. I öðru sæti í þessum sama flokki var Drottning frá Rappenhof í Pýska- landi. Hún er undan Svaða frá Rappenhof sem er ættaður frá Kolkuósi. Móðir Drottningar er Hrönn frá Kolkuósi, nú í Rappen- hof. Drottning er jafnbyggð, fjölhæf og geðsleg en var að sumu leyti ofdæmd fyrir áhrif frá þýska dómar- anum en erlendis geta dómarar skil- að séráliti og látið taka tillit til þess í endanlegri einkunn. í eldri flokki stóðhesta stóð Kári frá Aldenghoor í Hollandi efstur, hann er undan Vini frá Víðidal og Kempu frá Hólum. Kári er jafn- byggður og fallegur hestur með sér- staklega gott skeið. Dómstörfin á kynbótasýningu Heimsleikanna gengu vel þegar á allt er litið en þó þarfnast ýmsir hlutir verulegrar endurskoðunar við sumt er varðar undirbúninginn hér heima og annað erlendis. I þessu sambandi vil ég geta nokkurra at- riða. Fyrir það fyrsta þurfa þeir aðil- ar sem standa á bakvið þátttöku íslendinga í þessum leikum að taka ákvörðun um hvort áhugi sé á að kynbótaþátturinn sé þar með eða ekki. Ýmislegt sem kom uppá móts- dagana færði mér heim sanninn um þetta. Á sama hátt þarf á leikunum sjálfum að gera kynbótaþættinum hærra undir höfði eða sleppa honum með öllu. Hvað starf í dómnefndum varðar gekk það vel, við Víkingur störfuð- um sinn í hvorri dómnefndinni en hvor dómnefnd um sig sá um að dæma tvo sýningarflokka. Meðdóm- endur okkar voru frá ýmsum lönd- um, misjafnlega vant fólk og í mörg- um atriðum mishæft en í heild var þetta góður hópur. Eigendum hross- anna gengur ekki öllum eins vel að meðtaka niðurstöðurnar eins og gengur og í allt haust hafa dunið á Búnaðarfélaginu og á fleiri aðilum hérlendum og erlendum sendingar frá einum hesteiganda, þýskum og reiðisjúkum og nóg um það. í lok ferðarinnar á Heimsleikanna sat ég aðalfund FEIF ásamt Guð- Dómnefnd að störfum við að dœma stóðhestinn Kárafrá Aldengkoor. Kári stóð efstur í eldriflokki stóðhesta. A myndinni má þekkja Víking Gunnarsson, lengst t.v. og Erik Christensen, lengst t.h. Ljósm. K.H. Samráðsfundur ábyrgðaraðila kynbótasýningarinnar. Talið frá vinstri: Guðrún J. Stefánsdóttir (gestur), Víkingur Gunnarsson, kynbótadómari, Anna W. Elwell, aðstoðarmaður, Mats Jennerholm, þáverandi rœktunarfulltrúi FEIF og Anne Marie Quarles, núverandi rœktunarfulltrúi. Ljósm. K.H. mundi Jónssyni formanni Lands- sambands hestamannafélaga og Víkingi. Gekk aðalfundurinn hið besta og er helst frá honum það að segja að kjörinn var nýr ræktunar- fulltrúi en Mats Jennerholm sem gengt hefur því embætti hefur átt við vanheilsu að stríða. Kjörin var hol- lensk kona; Anne-Marie Quarles en hún er nýútskrifaður búfræðingur frá Hólum. Mat okkar var það að hún væri fýsilegur kostur við að brúa það bil sem er mest á milli okkar og Þjóðverja hvað dóma kynbótahross- anna varðar. Við íslendingar höfð- um mjög mikið fram að færa og ég hygg að hefði Víkingur Gunnarsson verið í framboði sem ræktunarfull- trúi hefði hann náð kjöri en Víking- ur var ekki fús til að fara fram og hin leiðin sem farin var hefur óneitan- lega sína kosti í stöðunni. 5*94 - FREYR161

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.