Freyr

Árgangur

Freyr - 01.03.1994, Blaðsíða 30

Freyr - 01.03.1994, Blaðsíða 30
og fremst af því hvort miðað er við hagkvæmasta endingartíma hennar eða tæknilegan endingartíma. Ef miðað er við tæknilegan endingar- tíma er hrakvirðið ekkert. Oft er hagkvæmara að miða við styttri end- ingartíma. Til að finna hagkvæmasta endingartímann þarf að beita ákveðnum reikniaðferðum sem ekki verða raktar hér. Þá skiptir sérhæfni og staðsetning fjárfestingarinnar miklu máli þegar meta á hrakvirðið. Hér er hægt að taka sama dæmið og áður, þ.e. loðdýrahúsið. Sérhæfnin gerir það að verkum að það er hæpið að fjárfestingin verði notuð í annan rekstur án verulegra breytinga og staðsetningin gerir það að verkum að sala verður að teljast nánast óhugsandi. 3) Lausafjárflæði. Þrátt fyrir það að fjárfesting sé hagkvæm er ekki þar með sagt að tekjurnar geti staðið undir þeim greiðsluskuldbindingum sem óhjákvæmilega fylgja. Því þarf að gera lausafjáráætlun, m.a. til að sýna fram á að reksturinn hafi nægi- legt fjármagn til að standa undir þeim skuldbindingum sem á hann hafa verið lagðar. 4) Mat á áhættuþáttum fjárfest- inga. Við fjárfestingaákvarðanir er mikilvægt að gera sér grein fyrir þeim óvissuþáttum sem fylgja fjár- festingunni, en þeir eru í flestum tilfellum mjög margir. Hver verður eftirspurnin eftir framleiðslunni eða þjónustunni? Hvaða verð fæst fyrir framleiðsluvöruna? Hvað munu að- föngin kosta? Hvaða áhrif geta opin- berar aðgerðir haft? Það er brýnt að átta sig á helstu áhrifaþáttunum. Einnig er nauðsynlegt að gera ýmsar næmisathuganir og mæla þannig áhrif breyttra lykilstærða á niður- stöðuna. Hvaða áhrif hefur það á niðurstöðuna ef söluverð framleiðsl- unnar hækkar eða lækkar um 10% ? Það er einnig góð vinnuregla að beita varkárnissjónarmiðum í hví- vetna við áætlunargerðina. Aætla söluverðið í lágmarki, meta ending- artímann í styttra lagi og áætla út- borganinar rúmlega það sem við er búist. Eftir því sem óvissan er meiri því meiri varkárni skal beita. Mikilvœgi fjárfestingaáœtlana. Það eru einkum fjórir þættir sem geta gert fjárfestingaákvarðanir jafn afdrifaríkar og raun ber vitni. 1. Háar upphæðir: Oftast er mik- ið fé bundið í viðkomandi fjárfest- ingu. Því hærra sem upphæðin vegur í efnahag viðkomandi fjárfesta því afdrifaríkari getur ákvörðunin orð- ið. 2. Erfitt að hætta við fjárfestingar eftir á: Ef fjárfestir vill hætta við fjárfestinguna er endursöluverðið í langflestum tilvikum lægra en upp- haflegt kaupverð. í mörgum tilfell- um er um nánast verðlausa eign að ræða. Nærtæk dæmi eru loðdýrahús. 3. Efnahagslegar afleiðingar í dag, næstu ár og áratugi: Mikil verðmæti eru bundin í fjárfestingunni til langs tíma. Tekjur og kostnaður falla til á meðan fjárfestingin er rekin. Fjár- festingin fer oft ekki að gefa af sér tekjur fyrr en eftir nokkurn tíma. Þetta á t.d. við um fiskeldi. 4. Áhætta: Markaðsbreytingar valda verðlækkun á framleiðsluvör- unni, óvissa í heimsmálum veldur stórfelldum hækkunum á helstu að- föngum og svo mætti lengi telja. Ljóst er að í mörg horn er að líta þegar fjárfestingar eru annars vegar. Hér gildir að vinnubrögðin séu skipulögð og að vinnan við skrif- borðið er jafn nauðsynleg og vinnan við framkvæmdirnar. Hafa skal í huga að einungis vönduð vinnu- brögð við ákvörðunartökuna og ákvörðun reiknivaxta duga þegar til lengri tíma er litið og minnkar áhætt- una verulega. Heimildir: Gunnar Rúnar Kristjánsson og Stefán Örn Valdimarsson. 1992. Fjárfestinga- ákvaröanir og arðsemisútreikningar. Ráðunautafundur. Gylfi Þ. Gíslason. 1986. Rekstrarhagfræði, I. bindi. Iðunn, Reykjavík. Karl Karlsson. 1991. Rekstur og áætlunar- gerð. Bændaskólinn á Hvanneyri. Höfundur óþekktur. 1982. Investerings- planlægning. Landbrugets informations- kontor. „Þorsteinskórinn" í 3. tbl. Freys þ.á., bls. 94, var birt mynd sem sögð var af karlakór frœndliðs Porsteins á Vatnsleysu. Svo var ekki og kemur hér rétta myndin af kór þeirra frænda. Blaðið biðst velvirðingar á mistökunum. 174 FREYR - 5*94

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.