Freyr

Árgangur

Freyr - 01.03.1994, Blaðsíða 24

Freyr - 01.03.1994, Blaðsíða 24
Ár1993 Nr. 635 Ár1993 Nr. 636 Fella - heyþyrla Gerð: Fella TH 540 DHY. Framleiðandi: Fella-Werke GMBH, Þýskalandi. Innflytjandi: Globus hf., Reykja- vík. YFIRLIT Heyþyrlan Fella T.H. 540 D Hydro var reynd af Rann- sóknastofnun landbúnaðarins, Bútæknideild, sumarið 1993 og notuð alls um 45 klst. Heyþyrlan er tengd á þrítengi dráttarvélar og drifin frá aflúttaki hennar. Hún vegur 591 kg. I flutningsstöðu er ytri stjörnunum lyft upp í lóðrétta stöðu með vökvatjökkum. Hæfni heyþyrlunnar til heysnúnings reyndist góð og ójöfnum lands fylgir hún vel. Vinnslu- breidd vélarinnar er allt að 5,0 m og afköst við heysnún- ing reyndust að jafnaði 4,4 ha/klst., en mest um 6,2 ha/ klst. Heymúgum dreifir vélin í u.þ.b. 5,4 m breiðan flekk. Á fljótlegan hátt má breyta stefnu ökuhjóla á heyþyrlunni þannig að hún kasti heyinu nokkuð til hliðar, t.d. frá skurðbökkum og girðingum. Liðir í beislisbúnaði vélarinnar auðvelda vinnu með henni í beygjum. Aflþörf heyþyrlunnar á tengidrifi er mest um 16 kW (22 hö). Til að aka megi af öryggi með vélina í flutningsstöðu þarf lágmarksstærð dráttarvélar að vera u.þ.b. 40 kW (54 hö). Heyþyrlan er traustbyggð. Á reynslutímanum varð engra bilana vart. Krone - sláttuþyrla Gerð: Krone AM 242/Z. Framleiðandi: Bernhard Krone Gmbh, Þýskalandi. Innflytjandi: Vélar og þjón- usta hf., Reykjavík. YFIRLIT Sláttuþyrlan Krone AM 242/Z með sambyggðum heyknosara var reynd af Bútæknideild Rannsóknastofn- unar landbúnaðarins sumarið 1993 og notuð alls um 59 klst. Hún er tengd á þrítengi dráttarvélar og lyft upp í flutningsstöðu með vökvaafli til hliðar við dráttarvél. Þyngd hennar er um 800 kg. Sláttuþyrlan reyndist að jafnaði slá hreint og jafnt og var stubblengd í sláttufari að meðaltali um 56 mm í sáðgresi en um 78 mm á snarrót- artúnum með ökuhraðann 5-13 km/klst. Hægt er að hafa áhrif á sláttunánd með því að stilla lengd yfirtengis og steypa vélinni mismikið. Sláttubúnaður vélarinnar fylgdi vel ójöfnum landsins þrátt fyrir mikla vinnslu- breidd. Vinnslubreidd sláttuþyrlunnar er2,4m. Knosar- inn er fasttengdur á burðargrind vélarinnar og má hafa áhrif á knosunarstigið með því að breyta lítils háttar mótstálinu. Auka má verulega þurrkunarhraða heysins með knosuninni. Ætla verður a.m.k. 50 kW (68 hö) dráttarvél fyrir þyrluna til að nýta afkastagetu hennar. Sláttuþyrlan er tiltölulega lipur í stjórnun en þyngd hennar getur í flutningi raskað þungahlutföllum meðal- stórra dráttarvéla. Hnífaslit á reynslutímanum var innan eðlilegra marka. Hlífðardúkar vélarinnar eru vel úr garði gerðir og frákast frá knosaranum er einnig með góðum hlífðarbúnaði. Dagleg umhirða er fljótleg. í lok reynslutímans var ekki unnt að merkja óeðlilegt slit á vélinni og engar meiriháttar bilanir komu fram á reynslutímanum. Sláttuþyrlan virðist vera traustbyggð og vönduð að allri gerð. 168 FREYR-5'94

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.