Freyr - 01.03.1994, Blaðsíða 35
Byggingarlag og kjötgœði
íslenska fjarstofnsins
Þótt mikið hafi áunnist á síðustu
árum við að bæta byggingarlag
fjárins og reynt sé að minnka fitu á
lömbum er okkar fjárstofn hvorki
sérlega vöðvamikilí né fitulítill.
Möguleikar á erlendum mörkuðum
jafnt sem innlendum velta því á því
að okkur takist á næstu árum að ná
árlegum kynbótaframförum sem eru
a.m.k. ekki minni en hjá öðrum
kjötframleiðendum. Jafnframt
verðum við að hafa í huga að með-
ferð fjárins og sláturtími getur skipt
sköpum um gæði kjötsins. Nokkuð
hefur hingað til vantað á að bændur
og aðrir sem að kjötumsýslu standa
hafi tileinkað sér þennan hugsunar-
hátt nægjanlega.
Þyngd dilkafalla
Óskir um stærð eða þyngd
skrokka eða skrokkhluta eru mjög
mismunandi eftir löndum en a.m.k.
í Færeyjum og Svíþjóð eru svipaðar
óskir og hérlendis, þ.e. mest eftir-
spurn er eftir skrokkþyngd á bilinu
12-16 kg. Hlutun skrokka í sláturtíð
og sala á stykkjuðu kjöti fer sem
betur fer vaxandi bæði í innanlands-
sölu og sölu milli landa og dregur
það úr vandamálum vegna of þungra
skrokka. Eigi að síður getur vaxandi
þyng falla valdið erfiðleikum og
krefst nú þegar vissrar yfirsýnar og
samspils milli sölu á innlendum og
erlendum mörkuðum.
Framleiðslukostnaður kindakjöts
Framleiðslukostnaður kindakjöt
hlýtur að verða hár hérlendis, ástæð-
ur þess eru m.a. löng og kostnaðar-
söm húsvist og landfræðilegar að-
stæður sem ekki bjóða upp á stórar
framleiðslueiningar. Sláturkostnað-
ur er hér einnig mun hærri en í okkar
væntanlegu samkeppnislöndum þó
að 70 kr. á kg sláturkostnaður í
umsýslusölu sé nokkru lægri en
raunkostnaður vegna slátrunar á
innanlandsmarkað. Vonir um veru-
legar tekjur bænda af útflutningi
hljóta því að byggja á að unnt reynist
að lækka kostnað á öllum stigum
framleiðslunnar.
Lokaorð
Möguleikar lambakjöts á erlend-
um mörkuðum virðast í stórum
dráttum tvenns konar:
Annars vegar sala á grundvelli
tollaívilnana sem byggjast á milli-
ríkjasamningum. Nokkrir slíkir
samningar eru í gildi milli Islands og
annarra þjóða en ólíklegt er að þeim
fjölgi. Miklu fremur eru líkur á að
gildi þeirra minnki með nýjum al-
þjóðasamningum (GATT).
Hins vegar sala á grundvelli sér-
eiginleika (bragðgott, vistvænt,
hreint). Slík sala krefst mikillar und-
irbúningsvinnu og síðan nákvæmni
og aga á öllum stigum framleiðslu,
vinnslu og sölu (gæðastjórnun). Ár-
angur næst þar varla nema á löngum
tíma og með samstilltu átaki þeirra
sem að framleiðslu og söluferli
koma.
Árœði hf.
- nýtt þjónustufyrirtœki fyrir landbúnaðinn
Fyrirtækið Áræði hf. opnaði sölu-
skrifstofu, sýningaraðstöðu og versl-
un að Höfðabakka 9, Reykjavík,
hinn 1. mars 1994. Þar mun fyrirtæk-
ið sýna og selja þær vörur sem það er
með umboð fyrir hér á landi svo og
aðrar vörur sem það er söluaðili
fyrir. Það er stefna fyrirtækisins að
veita íslenskum landbúnaði sem
besta þjónustu hvað viðkemur vara-
hluti og aukahluti fyrir búvélar og
tæki.
Áræði hefur tekið að sér umboð
hér á landi fyrir Mueller mjólkur-
geyma, sem eru mest seldu mjólkur-
kæligeymarnir á íslandi. Hefur fyrir-
tækið þegar hafið innflutning á þess-
um vönduðu mjólkurkæligeymum
en þá má fá í stærðum frá 600 lítrum
upp í mörg þúsund lítra. Mueller
mjólkurkæligeymarnir eru fáanlegir
með kælimiðlunum R 22 eða R134a,
sem talið er að komi í stað kælimið-
ilsins R 12, sem verið er að banna
framleiðslu á.
Þá býður Áræði varahluti fyrir
heyvinnsluvélar, m.a. tinda og hnífa
frá þýska fyrirtækinu RASSPE, svo
og varahluti í dráttarvélar frá
ýmsum fyrirtækjum m.a. PECO-
PARTS og SPAREX.
Áræði hyggst bjóða upp á mjög
gott úrval af sjálfbrynningarkerjum
og drykkjarstútum fyrir búpening,
frá fyrirtækjunum Fisher í Bretlandi
og Lister í Þýskalandi, en bæði þessi
fyrirtæki eru þekkt hér á landi fyrir
vandaða vöru.
Klippur frá Lister í Bretlandi og
Lister í Þýskalandi, fyir nautgripi,
hesta og sauðfé verða á boðstólum
hjá fyrirtækinu, auk mikils úrvals af
aukabúnaði og varahlutum. Stefnt
er að því að bjóða viðskiptamönnum
upp á viðgerðar- og brýnsluþjón-
ustu.
Áræði hefur þegar tryggt sér góða
samvinnu við framleiðendur af
hvers konar merkjum, úr áli og
plasti, fyrir búpening. Verður fyrir-
tækið með álrenninga fyrir lamba-
merki frá Alcan Wire og plastmerki
frá Cox Surgial.
Auk ofangreindra vara verður
Áræði með margvíslegar aðrar vör-
ur á boðstólum, svo sem í sláttuvélar
fyrir graskögglaverksmiðjur frá
Hiniker-Fox.
Framkvæmdastjóri Áræðis hf. er
Agnar Þór Hjartar, en stjórnarfor-
maður er Arnór Valgeirsson. Þeir
hafa báðir langa starfsreynslu á sviði
þjónustu við landbúnaðinn, eftir
áratuga störf hjá Sambandi íslenskra
samvinnufélaga og fyrirtækjum
þess.
Sími Áræðis er 91-670000 og bréf-
sími 91-674300.
(Fréttatilkynning).
5*94 - FREYR179