Freyr

Árgangur

Freyr - 01.03.1994, Blaðsíða 16

Freyr - 01.03.1994, Blaðsíða 16
undan Trausta frá Torfastöðum og Brönu frá Kirkjubæ. Hryssur fimm og sex vetra. I flokknum stóð Mandla frá Stóra- Hofi efst (87286097), (7,78 8,11 7,94). Mandlasem er undan Stígi frá Kjartansstöðum og Kolfreyju frá Stóra-Holfi, er heldur vel gerð eink- um fram en er með of beint bak sem einnig er framhallandi. Hvað hæfi- leikana varðar er Mandla fjölhæf og prýðisvel töltgeng. Læt ég hér lokið frásögn af sýning- unni í Kaufungen en framkvæmd öll tókst hið besta og var Gunnar Örn ísleifsson dýralæknanemi og at- vinnumaður í hestamennsku í Þýskalandi burðarásinn í fram- kvæmdinni. Forskoðun á íslandi Ekki verða mörg orð höfð um dómana hér heima en hryssan Eva frá Þverá í Skíðadal (87265803) var valin sem sýningargripur í yngri flokki hryssna en Mandla frá Stóra- Hofi til vara. Eva var dæmd á Vind- heimamelum í Skagafirði en hún var í einstaklingssýningu fjórðungs- mótsins þar. Eva sem er undan Hrafni frá Holtsmúla og Eldingu frá Þverá í Skíðadal, er laglega sköpuð nema hvað höfuðið varðar, hún er fjölhæf og prýðisvel töltgeng (7,85 8,16 8,00). (86186030) og Dögun frá Ytra-Hóli (86265185) sem bæði voru dæmd í Víðidal í Reykjavík og stóðu efst í aðaleinkunn hvort í sínum flokki þegar íslensku vægin voru lögð til grundvallar, náðu ekki inn í sveitina þegar miðað var við FEIF-vægin við útreikningana. Segull (8,30 8,27 8,29) er með allra fallegustu hestum; fríður, mjúkbyggður og frábær í samræmi en réttleiki fóta er afleitur. Hvað kosti varðar eru þeir jafnvígir og prýðisgóðir, einkum töltið. Seg- ull er undan Þætti frá Kirkjubæ og Nótt frá Kröggólfsstöðum. Dögun (7,93 8,20 8,06) er traustbyggð með góða yfirlínu, gangur er fjölhæfur en Dögun er fyrst og fremst sköruleg og viljug með góðan klárgang. Hún er undan Kjarki frá Garðsá og Leistu frá Ytra-Hóli. Heimsleikarnir f Holiandi Undirritaður fór til starfa á Heimsleikunum ásamt Víkingi Gunnarssyni sem situr í Ræktunar- ráði FEIF. Ferðin hófst á því að við tókum þátt í ráðstefnu og verklegu dómanámskeiði þar sem þátttak- endur voru kynbótadómarar frá hin- um fjölmörgu aðildarlöndum FEIF. Ráðstefna þessi var hin gagnlegasta og var að mörgu leyti framhald af ráðstefnu þeirri sem við Víkingur sóttum í Danmörku haustið 1992 en þar var ritið Kynbótadómar og sýn- ingar kynnt. Nú brá þó svo við að Þjóðverjar mættu til leiks en þeir voru ekki á ráðstefnunni í Dan- mörku; voru þeir nú fjölmennir mjög. A ráðstefnunni og þá einkum í dómaæfingum áttum við í miklum rökræðum við Þjóðverjana. Athygl- isvert er í sambandi við dómstörf þeirra er hve þau eru á huglægum nótum og mikið lagt upp úr að spá og spekulera langt út fyrir það sem er á færi nokkurs kynbótadómara. Auk þess sem ljóst er hve gífurlega mikil hagsmunatengsl eru inni í þýsku dómnefndunum. Á ráðstefnu þess- ari urðum við berlega varir við það að flestar þjóðirnar lögðu mjög eyrun að málflutningi okkar íslend- inga. íslenska dómkerfið hefur tiltrú og erlendis vill hestafólk mjög víða færa sér kosti þess í nyt. Við þeim óskum verðum við að verða en það er mikilvægt að halda leiðsagnar- og forystuhlutverkinu á þessu sviði ekki síður en á öðrum sviðum hesta- mennskunnar. Að lokinni fyrrnefndri ráðstefnu fluttum við okkur um set og dómstörf á Heimsleikunum tóku við. Heimsleikarnir voru haldnir á miklu útivistarsvæði sem heitir Spaarnwoude og er rétt við Amster- dam. Mikið hefur verið um leikana ritað og ætla ég ekki að endurtaka það allt hér. Útkoma íslensku sveit- arinnar var ákaflega góð í heild og voru kynbótahrossin íslensku ekki til að skamma upp á þá mynd. í flokki fullorðinna stóðhesta lenti Kolskeggur að vísu aðeins í fjórða sæti, var hann ekki alveg eins fersk- ur og í vor en hann átti nú auk þess við ofjarla sína að etja. í flokki ungra stóðhesta hafði Léttir frá Grundarfirði algera yfir- burði. Hið sama má segja um Hrefnu frá Gerðum hvað flokk full- orðinna hryssna varðar en Eva frá Þverá í Skíðadal dalaði heldur og lenti í fjórða sæti í sínum flokki (yngri hryssur). Hvað athyglisverð hross frá öðr- um löndum varðar vil ég geta hér þriggja. Efsta hryssan í flokki ung- hryssna (fimm og sex vetra) var Rúna frá Egg, svissnesk og er hún undan Hrafn-Krabba frá Sporz sem ættaður er frá Kolkuósi og Haf- steinsstöðum, móðir Rúnu er Hrönn frá Sporz sem er ættuð frá Kirkjubæ. Hrossin Segull frá Stóra-Hofi Hesturinn Einarfrá Roetgen. Prátt fyrir samhljóða niðurstöðu um að þarna vœri hœfileikamikill hestur, stórgallaður í byggingu, mótmœlti eigandinn því af heift. Ljósm. K.H. 160 ic'REYR - 5*94

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.