Freyr - 01.03.1994, Page 15
ur og fjörharður. Foreldrar Gamms
eru Otur frá Sauðárkróki og Gáta
fráTóftum. í þriðjasæti skv. íslensk-
um dómareglum en efstur skv.
FEIF-reglum var Kolskeggur frá Ás-
mundarstöðum (84186003), (7,88
8,43 8,15) og var hann valinn á
Heimsleikana og Náttar til vara en
við síðari dóma kom enginn fram
sem gerði betur en þeir. Kolskeggur
er hlutfallaréttur, léttur og langvax-
inn en ákaflega fótasnúinn. Hann er
fjölhæfur og framúrskarandi vel
vakur. Foreldrar Kolskeggs eru
Hrannar frá Sauðárkróki og Stjarna
frá Kjarnholtum.
Á sýningum erlendiseins og t.d. á
þessari sem hér er verið að fjalla um
rekst maður á ýmsa gripi sem áður
hafa hlotið dóm hérlendis og yfirleitt
standa þessir gripir fyrir sínu þegar
út er komið þó ekki sé það án undan-
tekninga Þannig var t.d. með stóð-
hestinn Örn frá Akureyri
(84165011). Hann hefur alla tíð
dæmst illa fyrir fætur í heild og hefur
þeim þætti sköpulagsins hrakað
jafnt og þétt og annað síður en svo
batnað. Jafnframt sem hann var
mjög mistækur í hæfileikum á sýn-
ingunni í Kaufungen og fékk 7,87
fyrir þann þáttinn en hæstur var
hann í forskoðun fyrir landsmótið
1990; 8,47 en var svo mun síðri á
mótsstað auk þess sem áður hefur
verið sagt um sköpulagið. Fyrir
sköpulag fékk Örn 7,63 í Kaufungen
og þar með 7,75 í aðaleinkunn. Örn
er undan Náttfara frá Ytra-Dals-
gerði og Vöku frá Hömrum við Ak-
ureyri. Virðist eitt gilda um þá bræð-
ur báða Örn og Eyfirðing frá Akur-
eyri sem kom fram 1992 og í for-
skoðun á Norðurlandi 1993 og er
undan sömu Vöku og Garði frá
Litla-Garði að lélegri fætur eyði-
leggja þá sem kynbótahesta þrátt
fyrir ýmsa æskilega gæðingskosti,
svo sem; fjölhæfni, ganghreinleika
og ljúflingslund.
Stóðhestar fimm og sex vetra. í
þeim flokki verður eins hests getið
sem bar eins og gull af eyri af öðrum
hestum í flokknum og var valinn til
þátttöku á Heimsleikunum en það
var Léttir frá Grundarfirði
(87137001), (7,98 8,26 8,12). Léttir
er mjúkbyggður og reiðhestslegur,
enda fjölhæfur og bráðflinkur. For-
eldrar hans eru Viðar frá Viðvík og
Sunna frá Fáskrúðarbakka. Tii vara
var Askur frá Hofi (87157884) val-
inn en hann kom fram á Fjórðungs-
mótinu á Vindheimamelum en var
auk þess sýndur með þátttöku á
Heimsleikunum í huga.
Hryssur fullorðnar. í þeim flokki
stóð Hrefna frá Gerðum (85286030)
efst og í öðru sæti var Blökk frá Leiti
(86288510). Þær voru báðar sýndar í
Kaufungen en engin hryssa sem til
stóð að færi á Heimsleikana og var
sýnd annars staðar gerði betur en
þær í dómi þegar FEIF-vægin voru
lögð til grundvallar við útreikning-
anna.
Hrefna er fjölhæf og framúrskar-
andi góð reiðhryssa en byggingarlag
hennar er ekki nema rétt þokkalegt
(7,68 8,37 8,02). Hún er undan
Hrafni frá Holtsmúla og Heru frá
Gerðum. Blökk er harðviljug og
frábær á skeiði og hefur annan gang
einnig góðan, í sköpulagi er hún
þokkaleg nema of stíf í spjaldi og
boldjúp, (7,70 8,29 7,99). Blökk er
Kappreiðabrautir þar sem kynbótahrossin voru dœmd fyrir kosti. Á sömu braut
fóru kappreiðarnar fram. Ljósm. Kristinn Hugason.
Fœtur allra keppnis- og kynbótahrossa voru skoðaðir af stakri nákvœmni. Á
myndinni er Freddy Lehr frá Sviss, upplýsingafulltrúi FEIF, að mœla breidd á
skeifu. Ljósm. K.H.
5*94 - FREYR159