Freyr - 01.03.1994, Qupperneq 26
Ár1993
Nr. 639
Ár1993
Nr. 640
Teo - lyftuvog
Gerð: Teo. Framleiðandi: Teo Teknikk A.S., Noregi.
Innflytjandi: Vélar og þjónusta hf., Reykjavík.
YFIRLIT
Lyftuvogin Teo var prófuð af Bútæknideild Rannsókna-
stofnunar landbúnaðarins seinni hluta sumars 1993.
Gerðar voru samanburðarmælingar innandyra en einnig
var hún notuð við hleðslu á ýmsum varningi við almenn
bústörf, einkum þó rúlluböggum.
Vogin byggir á mælingum á vökvaþrýstingi í
vökvakerfi ámoksturstækja eða annars lyftubúnaðar
með vökvakerfi. Til að vigta byrði ámoksturstækja þarf
að lyfta í fyrirfram ákveðr.a hæð og láta tækin síga
lítillega, með vélina í hægagangi. Þá er vökvaþrýstingur
lesinn af mælaskífu sem hafa má í augsýn ekils, innan
húss eða utan. Aflesturinn af skífunni (sem er vökva-
þrýstingur, kp/cm2) er síðan skráður inn á vasareikni sem
fylgir voginni, þar sem hann er margfaldaður með
viðeigandi stuðli. Þannig fæst þyngd byrðarinnar í kg
eða annarri einingu eftir óskum. Vasareiknirinn geymir
stuðulinn meðan hann er í gangi. Vogin er leiðrétt fyrir
umbúðaþunga (núllstillt) á einfaldan hátt mkeð því að
snúa mæliskífunni bak við vísinn.
Fyrir fyrstu notkun á hverjum ámoksturstækjum þarf
að ákveða fyrrnefndan margfeldisstuðul. Til þess
þarf að vigta einhverja þekkta byrði. Við vigtun þarf
dráttarvélin að standa kyrr og sem næst lárétt. Vigtun er
fremur auðveld, en tefur vinnu með ámoksturstækjum
óhjákvæmilega talsvert. Mæliskekkja reyndist allt að
10%. Ætla má að vogin geti verið hentugt hjálpartæki í
ýmsum tilvikum.
Silomac - rúllupökkunarvél
Gerð: Silomac 991B. Framleiðandi: Kilmaine, co.
Mayo, Irlandi. Innflytjandi: Vélar og þjónusta hf.,
Reykjavík.
YFIRLIT
Silomac 991B rúllupökkunarvélin var prófuð af Bú-
tæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins sumar-
ið 1993. Var hún notuð alls um 25 klst. við pökkun á 390
böggum. Prófunartíminn var venju fremur skammur
vegna þess hve seint vélin kom til prófunar en fylgst var
með notkun vélarinnar eftir að formlegri prófun lauk.
Vélin var samt reynd bæði á fyrri og seinni slætti en ekki
við grænfóðurbagga.
Pökkunarvélin er ætluð til að pakka rúlluböggum af
öllum algengum stærðum inn í plastfilmu. Hún er drag-
tengd og knúin af vökvakerfi dráttarvélar og vegur um
1775 kg. Vélin er með lyftubúnaði sem tekur baggana
upp af jafnsléttu upp á pökkunarborð. Á borðinu er
bagganum snúið og velt um leið og þannig má stjórna
þéttleika vafninga, en jafnframt erbúnaður til að stjórna
mismunandi strekkingu á filmunni en strekkibúnaður-
inn er bæði fyrir 50 og 75 cm breiðar plastfilmur. Þegar
bagginn er fullpakkaður er pallinum snúið í sturtustöðu
og bagganum velt aftur að fallpalli. Með pallinum má
láta baggann falla hægt niður á jörðu. Vélin er með
fjarstýrðum skurðarbúnaði fyrir plastfilmuna. Nettó af-
köst vélarinnar eru breytileg eftir aðstæðum, vafninga-
fjölda og baggastærð en í þeim mælingum sem gerðar
voru, voru þau á bilinu 30-40 baggar á klst. Ætla má að
30 kW (41 hö) sé lágmarksstærð dráttarvéla fyrir pökk-
unarvélina. Við fjórfalda pökkun er filmunotkun um
0,9-1,0 kg á bagga (þvermál 1,2 m) eða sem svarar 79-80
m af filmu á hvern bagga en er eðlilega háð filmustrekk-
ingu og baggastærð. Vélin er á nægilega belgmiklum
hjólbörðum til að bera hana við allar algengar aðstæður.
Fallbretti fylgir vélinni til að hlífa böggunum en það er
verulegur kostur. í stöku tilvikum bar á því að baggarnir
yltu ekki aftur af fallbrettinu. Pökkunarborðið er vel
opið gagnvart heyslæðingi úr böggunum þannig að hann
veldur sjaldan töfum. I lok reynslutímans sem var
fremur skammur var ekki unnt að merkja óeðlilegt slit á
vélinni og engar bilanir komu fram á reynslutímanum.
Vélin er traustlega smíðuð og dagleg hirðing einföld.
170 FREYR - 5'94