Freyr

Árgangur

Freyr - 01.08.1995, Blaðsíða 2

Freyr - 01.08.1995, Blaðsíða 2
------------------------------------------------- Frá Stofnlánadeild landbúnaðarins Umsóknir um lán vegna framkæmda á árinu 1995 þurfa að berast Stofnlána- deild landbúnaðarins fyrir 15. september nk. Umsókn skal fylgja teikning og nákvæm lýsing á framkvæmdinni, þar sem meðal annars er tilgreind stærð og byggingarefni. Ennfremur skal fylgja umsögn héraðsráðunautar svo og veðbókarvottorð. Þá skal fylgja umsókn búrekstraráætlun til 5 ára og koma þarf fram hverjir væntanlegir fjármögnunarmöguleikar umsækjanda eru. Þeir sem hyggjast sækja um lán til dráttarvélakaupa á árinu 1996 þurfa að senda inn umsóknir fyrir 31. desember nk. Allar eldri umsóknir falla úr gildi 15. september nk. Tekið skal fram að það veitir engan forgang til lána þó að fram- kvæmdir séu hafnar áður en lánsloforð frá deildinni liggur fyrir. Sérstök athygli er vakin á því, að Stofnlánadeild landbúnaðarins er óheimilt lögum samkvæmt að fara á eftir öðrum veðhöfum en opinberum sjóðum. Lántakendum er sérstaklega bent á að tryggja sér veðleyfi vegna væntanlegrar lántöku frá lífeyrissjóðum, öðrum en Lífeyrissjóði bænda, og öðrum þeim aðilum, sem eru með veð í viðkomandi jörð. * Búnaðarbanki Islands Stofnlánadeild landbúnaðarins Laugavegi 120,105 Reykjavík Sími 525 6400 - Fax 525 6439 V----------------------------------------------------------------------------------9 314 FREYR - 8. '95

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.