Freyr - 01.12.1998, Side 5
ekkert öðruvísi en hver önnur vinna
og mörgu leyti miklu betra þó að
hún sé bindandi, þetta er í raun og
veru bæði frjálst og bindandi,
kýmar gefa engin grið, í Svíþjóð
kalla þeir það hvítu svipuna að búa
við mjólkurkýr.
Kynntir þú þér eitthvað sænskan
búskap áður en þú fluttir heim?
Nei, mjög lítið, ég fór þó í
heimsókn á eina tvo bæi þegar
ákveðið var að við flyttum heim.
Svo eftir það hef ég lesið sænsk
tímarit um landbúnað. Við erum
með í NÖK (Nordisk ökonomisk
kvægavl) og í gegnum það fæ ég
lesefni frá Sviþjóð og Noregi.
60 mjólkandi kýr
Hversu stórt er búið hér?
Við búum bara með kýr og
kvótinn er 237 þúsund lítrar.
Aðstæðan leyfir þó meira, hér vom
framleiddir 353 þúsund lítrar fyrir
nokkmm ámm á félagsbúinu þegar
mest var og áður en til skerðingar
kom. Það era 108 básar í ijósinu og
lausaganga fyrir ungviði og
geldfénað. Hér era nú um 60 kýr
mjólkandi og auk þess eru alin upp
um 10-15 naut til kjötframleiðslu.
Dálítið af litlum nautkálfum er
slátrað ungum en stórir nautkálfar
era aldir upp. Ég hef ekki pláss til
að ala upp alla kálfana.
Þetta virkar nokkuð mikið fyrir
eina jjölskyldu.
Já, en Elín hefur tekið þátt í gegn-
ingum og svo höfum við notið
mikillar aðstoðar foreldra minna.
Faðir minn er ekki nema 74 ára og
þarf að vinna til að halda heilsu,
eins og hann segir. Auk þess
höfum við verið með unglinga, nú
síðastliðið ár sænska stelpu og árið
þar á undan þýska og það munar
mikið um það. Svo hefur elsti
sonur okkar mjólkað mikið með
mér um helgar, þannig að þetta
tekst allt.
Tekur þú þátt í skýrsluhaldinu?
Já, og nytin er frekar lág eða
tæplega 3.800 lítrar eftir árskúna,
en kjarnfóður er um 600 kg á kú á
ári. Ég stefni að því að auka
nytina án þess, að auka
kjamfóðurgjöfina. Ég vil þá gefa
hey oftar á sólarhringnum og ná
betri heyjum.
Hve gamlar lætur þú kvígurnar
bera?
Svona 2 >/2 árs og ég reyni að láta
þær bera á haustin þó að með
aldrinum vilja þær seinka sér. Ég
stefni að haustburði vegna álags
sem er greitt á vetrarmjólkina frá
nóvember fram til loka febrúar, að
mig minnir 14 kr. á lítra.
Tún?
Hér era 103 ha af túnum, mest
ræktað á mýri og þess vegna hefur
þurft að kýfa þau. Hér mega spild-
ur ekki vera meira en 50 m breiðar,
annars næst ekki góð kýfing og
hætta verður á kali.
Ég hef notað alla þessa 103 ha tvö
síðustu ár, sumt eingöngu til sláttar,
annað til sláttar og beitar og svo
erum við alltaf að rækta eitthvað.
Ég sáði grasfræi í 6,5 ha í ár og er
með 5 ha i viðbót með fóðurkál og
kál og rýgresi saman. Ég ætla að
rúlla kálið og rýgresið og prófa að
gefa það í vetur, en kálið eitt og sér
beitum við á haustin. Ætlunin er að
endurrækta um 5-10 ha á ári. Elstu
túnin hér vora orðin töluvert gömul,
sjálfsagt um 40 ára.
Þarf þá ekki líka að hreinsa upp
úr skurðum?
Nei, það hefur ekki verið þörf á
því. Flestir skurðimir era þurrir.
Það hefur lækkað það mikið grann-
vatnsstaðan. Hér er alltaf komið
niður á hraun þegar grafíð er,
Suðurlandshraunið mikla, þannig
að það er þónokkuð af grjóti í
túnum hér. Þetta grjót lyftist svo
upp á yfírborðið í frostum. A
einstaka stað er líka mjög grannt
niður á hraunið.
Þurrkað í rúllur
Heyverkun?
Hér er nánast allt hey verkað í
rúllur, það era kannski bundnir hér
500 baggar af þurrheyi, nánast til
gamans, sem er ágætt að eiga til að
bera i hross sem era inni á vetuma,
eða í smákálfa.
Hins vegar reynum við að þurrka
heyið sem fer í rúllumar nokkuð
vel. Hér er stór þurrheyshlaða með
heydreifikerfi, en úthaldið til að
hirða í hana var orðið slitið. Hins
vegar var hér engin aðstaða til
votheysverkunar.
Það var búið að skipta um
heyverkun áður en ég kom. Þá hafði
allt verið heyjað í rúllur í tvö ár.
Síðastliðin þrjú sumur hefur ekki
viðrað fyrir þurrheysverkun hér svo
að ég er ánægður með þetta.
Hve mikið rúllar þú á ári?
Um 1200 rúllur af stærðinni 1,20
xl,50 m, þ.e. stærri gerðin af
rúllum, og það veitir ekki af því.
Það er annars veralegur áramunur í
uppskera, árið 1996 rúllaði ég um
1400 rúllur, en bæði í íyrra og núna
hefur verið minni uppskera vegna
þurrka.
Ég er með lausakjamavél, en er
að velta fyrir mér að fá mér
fastkjamavél, og fá þannig 10-20%
meira hey í hverja rúllu, það sparar
heilmikið plastið. Lítil heyrúlla og
stór kosta álíka mikla fyrirhöfn
þannig að hagurinn er ótvíræður.
Hvað verður um plastið eftir
notkun?
Eins og er fer það með sorpbíln-
um og er urðað úti í Ölfusi með
öðru sorpi. Mér persónulega fmnst
að það mætti brenna því, þetta er
tiltölulega hreint plast, það verður
bara eftir vatn og koltvísýringur, en
svo er sjálfsagt framtíðin að
endurvinna það, en vandinn er að
það fylgja plastinu alltaf einhver
óhreinindi, heyrasl og annað.
Erlendir bœndur, sem eru á ferð
hér á landi, furða sig á hve
rúlluheyskapur er algengur hér og
telja hann óhagkvæman vegna
plastsins.
Ég held að skýringin á þessu sé
sú að bændur víða í útlöndum hirða
rúlluhey mjög blautt og reyna ekki
að þurrka það. Sænska stúlkan sem
hér er og var áður á Irlandi hefur
aldrei séð rúlluhey svona þurrt.
Það er svo rétt að plastið kostar
sitt, en næringarefnatap er lítið og
afköstin við að taka heyið saman
era geysimikil. Það tel ég stærsta
kostinn. Við heyjum hér um 1.200
rúllur yfir sumarið og notum þetta
60-70 rúllur af plasti.
Hvernig gengur að jyrna rúllur?
Rúllumar geymast nokkuð vel ef
þær era heilar. Ég hef gefið tveggja
ára og jafnvel þriggja ára hey og
það ést mjög vel. Göt koma fyrir
en þá helst í flutningum. Ef rúllur
era hins vegar látnar liggja úti á
túni þá koma fuglar og stinga göt,
FREYR 14/98 - 5