Freyr

Árgangur

Freyr - 01.12.1998, Blaðsíða 16

Freyr - 01.12.1998, Blaðsíða 16
skýrsluhaldi en þekkist annars staðar i heiminum, en það er atriði sem mun skipta sköpum ef áherslur i framtíðinni verða í átt að "norrænni" ræktun, sem að framan ræðir. Veikleikamir væru i skipulagi, sölumennsku og rekstri. Nauðsyn- legt væri að mynda sameiginlegt norrænt fyrirtæki á þessu sviði sem hefði markvissa framtiðarsýn til sóknar á þessum markaði. Göran endaði erindi sitt á að hleypa startskoti úr startbyssu. Sagði að þar með væri startskot þessa starfs komið. Ráðstefnan samþykkti álykt- un þar sem hún brýnir ræktunar- félögin á Norðurlöndunum um að heQast strax handa um slíkt starf. Áhersla á afurðir og hreysti Þá voru erindi tveggja bænda, annars frá Danmörku og hins frá Svíþjóð, sem lýstu skoðunum sínum um ræktunarmarkmið á komandi ámm. Þeir vom mjög sammála um að "norræna" stefnan um talsverða áherslu á afurðagetu, en jafnhliða vemlega áherslu á að rækta kýr sem þyrftu sem minnsta viðkynningu við dýralækna, væri stefna nýrrar aldar. Danski bóndinn Tage Christensen sýndi nýjar danskar niðurstöður sem em í fullu samræmi við það sem Norðmenn hafa verið að birta á síðustu ámm um að kynbótamat nautanna fyrir júgurhreysti endur- speglast mjög eindregið í upplýs- ingum um júgurbólgumeðhöndlun hjá dætmm þeirra. Vandamálið í ræktunarstarfínu síðustu ár væri hins vegar að niðurstöður Interbull (alþjóðakynbótamatsins) væm ein- göngu um afkastagetu og nautin væru því valin á þeim grunni, þrátt fýrir góðar innlendar niðurstöður gagnvart öðmm eiginleikum. Bænd- ur treystu ekki nægjanlega markvisst því sem þeirra eigin samtök væm að vinna. Auglýsinga- mennska hefði oft orðið sterkari en beinharðar staðreyndir. Síðari hluta mánudagsins fóru ráðstefnugestir á feikilega mikla kúasýningu sem haldin var m.a. í tengslum við þennan afmælisfund samtakanna. Þama mátti sjá afar glæsilegar kýr og fagmennsku við að sýna gripi, sem er óþekkt hér á landi. Aðeins einn dómari annaðist dóma fyrir hvem hóp gripa. Ekki vom birtar neinar stigatölur i mati gripanna heldur hélt dómarinn eftir i dómhring í lokin 4-6 bestu kúnum og raðaði þeim í gæðaröð. Framleiðsluaðferðir A þriðjudegi var sjónum ffekar beint að framleiðsluaðferðum. Þar ijallaði Henrik Solbu ffá Noregi um þá vinnu sem í gangi hefur verið í Noregi og Svíþjóð á síðustu ámm með mikla áherslu á hreinleika lanbúnaðrafurða. Svíar hafa mótað stefnu sína undir slagorðinu, „heimsins hreinustu matvörur,“ Danir sækja ffam undir kjörorðinu „heilbrigðir búskaparhættir“ og Norðmenn hafa lagt gífurlega vinnu í að koma á skipulegri vottun ffam- leiðslunnar. Velti ræðumaður fyrir sér veikleika og styrleika í slíkri þróun. Vandamálin birtust oft í því að nákvæmar, mælanlegar skilgrein- ingar á þessum hlutum sem um væri rætt, væri í raun ekki að fmna. Flestir væm sammála um að sóknar- færin fyrir matvælaframleiðslu á Norðurlöndunum fælust í aukinni áherslu á gæði. Ákaflega mikilvægt væri að fyrir hendi væri traust og skipulegt kerfi til staðfestingar og vottunar á ffamleiðsluferlum, sem neytandinn bæri traust til. Gagnvart markaði væri merking á vömnni feikilega mikilvægt atriði. Þar þyrfti að byggja upp traust á þekktum merkjum, en hættan væri hins vegar að merkingin gæti orðið frumskógur þar sem rétta varan týndist. Bent Jensen, sem er skólastjóri búnaðarskólans í Vejlby í Dan- mörku, fjallaði um erfðatækni og búskap. Erindi hans var mjög yfír- gripsmikið þar sem hann gerði að umfjöllunarefni ýmsar af þeim and- stæðum sem mættu bændum í nútímabúskap út frá ólíkum kröfum umhverfísins. Annars vegar stæðu harðar viðskiptakröfur sifellt aukinnar samkeppni, hins vegar margháttaðar umhverfiskröfur, þar sem m.a. tillitslausari samkeppni skapaði aukið umhverfísálag. Hann lagði mikla áherslu á skyldur landbúnaðarins til að taka þátt í slíkri umræðu og koma sjónar- miðum sínum á framfæri. Hin endanlega og farsæla lausn hlyti að Glœsikýr af SRB kyni. 16- FREYR 14/98

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.