Freyr

Volume

Freyr - 01.12.1998, Page 21

Freyr - 01.12.1998, Page 21
breyta úr tveim á þrjár mjaltir á dag má fækka kúnum eða við þurfum stærri kvóta fyrir sama kúaQölda.“ Mjólkurmagn hverrar kýr er einnig skráð og komi fram eitthvað óeðlilegt í þeim efnum kemur kýrin fram á athugasemdalista. Þar sem tími á milli mjalta verður óreglu- legur er mjólkurmagn reiknað sem framleiðsla á klukkustund og samanburður í tölvunni unnin á þeim grunni. Einnig er séð til þess að kýmar séu ekki mjólkaðar alltof oft. Þama á búinu er kúnum skipt í tvo hópa, kýr í yfir 20 kg dagsnyt fá leyfi til að mæta aftur til mjalta eftir átta tíma, en þær sem minna mjólka verða að bíða næstu mjalta að lágmarki í meira en átta tima. Meginmáli skiptir að kýrnar standi rétt í mjaltabásnum. Básinn er þannig byggður að kýrnar standa á upphækkun að framan þannig að aðgangur að júgri verður betri. Vélmennið þekkir kýrnar og m.a. lengd hverrar og einnar, þannig að hækkunin er ætíð stillt miðað við lengd þeirra, þannig að þær standa ætíð aftast í básnum. Mjög mikilvægt er einnig að kýmar standi jafnt í afturfætur og hönnun básins er miðuð við það. Kýmar þurfa að venjast ýmsu við mjaltir hjá vélmennum. Þannig getur þurft fleiri tilraunir áður en allir spenar fmnast og hylkin eru tekin af kúnni eitt og eitt. „Mikilvægt er að það takist að setja á kúna í fýrstu tilraun, annað er slæm reynsla fyrir gripinn, og kýrin verður ófusari að mæta til mjalta aftur.“ Einnig þurfa kýmar að venjast því að mjaltatækin séu sett á án undirbúnings. Undirbúningur gerist ekki fyrr en tækin era sett á kúna, vegna þess að þvottur fer fram i spenahylkjum. Þvottavatnið og fyrstu bunur em teknar frá og hent áður en raunverulegar mjaltir hefjast. Vélmennið skynjar leiðni mjólkurinnar. Við júgurbólgu mælast oftast breytingar um tveim sólarhringum áður en sýnilega einkenni koma í ljós. Þetta skapar möguleika á að grípa til forvamar- aðgerða og þannig draga úr tíðni júgurbólgu. Frá Hollandi em dæmi þess að júgurbólgutíðni hafi verið lækkuð í um 10% af því er áður var. Áreiðanlega em einhver áhrif þess að kýmar fara frá mjöltun beint í fóðrun og leggjast því ekki aftur fyrr en speni hefur lokast. Miídu skiptir að kýmar séu með heilbrigða fætur og hreyfikerfi og þess vegna vom jafnhliða því að taka vélmennin í notkun settar nýjar og betri mottur í legubása. Áhersla er einnig lögð á hraustar kýr. Mikilvægt er að hafa margar kvígur til að geta losað sig fljótt við þá gripi sem aðlagst ekki kerfínu fljótt, hvort sem er spenagerð eða vegna skaps kúnna. Vandamálið við að taka þessa nýju tækni í notkun hafa ekki öðm fremur tengst gripunum heldur fyrst og fremst tækninni. Lögð er áhersla á að hér er ekki um skammtímafjárfestingu að ræða. I rekstri kúabús, sem byggir á aðkeyptu vinnuafli, er ávinning- inn að sækja í reglulegri vinnutíma á búinu. Á þessu búi er metið að vinnusparnaður muni nema um 2500 vinnustundum á ári. Auk þess væntir bóndinn sér hraustari kúa, einkum minni júgurbólgu og þegar kýrnar hafa vanist breytingunum hugsanlega einnig aukinna afurða. (Jón Viðar Jónmundsson þýddi og endursagði). Mjaltatcekin komin á kúna. FREYR 14/98-21

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.