Freyr

Volume

Freyr - 01.12.1998, Page 18

Freyr - 01.12.1998, Page 18
deginum, var Jóhannes Torfason kosinn formaður NÖK til næstu tveggja ára. Árið 2000 verður ráðstefna samtakanna haldin hér á landi á Akureyri. Að morgni miðvikudags var farið í skoðunarferðir á ýmsa áhugaverði staði í nágrenni Falkenberg. Komið var á nýja nautastöð þar í nágrenninu. Til að geta tekið þátt í sölu sæðis erlendis hefur uppbygg- ingu nautastöðvanna í Svíþjóð verið gerbreytt á síðustu árum. I stað þess að frysta sæði úr nautunum til geymslu og slátra þeim siðan, eins og gert er hér á landi og var einnig gert þar til skamms tíma, er aðeins tekið úr nautunum það sæði sem þarf til að framkvæma afkvæmadóm á nautunum. Síðan eru nautin látin eldast og geymd þar til afkvæmadómur fæst. Þá er þeim flestum slátrað en þau bestu tekin til mikillar sæðisframleiðslu. Þannig verða lifandi um 800 naut á hverjum tíma í ræktunarferlinum í Svíþjóð, langstærstur hluti þeirra gripir sem bíða dóms, þar sem meginhlutinn fer í sláturhús þegar dómur fellur. Það er því ljóst að reyndu nautin sem koma til frekari nota eru orðin dýr, þar er talað um að kostnaður á hvern grip sé orðin á bilinu 50-70 milljónir króna. Þessi nýja stöð hafði verið hönnuð með tilliti til þess að auðvelda aðgengi fólks að því að sjá hvað gert er, án þess nokkru sinni að geta komist í beina snertingu við gripina. Þá var komið á stórbýli þama í nágrenninu þar sem heitir Sann- arps. Land jarðarinnar er á annað þúsund hektarar og þar er mjög ijölbreyttur rekstur. Mikil mjólkur- framleiðsla er þama, sem verður vikið að nánar á eftir, auk kom- ræktar, skógarhöggs og ferða- ntennsku. Á búgarðinum starfaði um tugur manns og var þar full- komin aðgreining einstakra bú- greina í rekstri. Fjósið var byggt árið 1972 en hafði verið endur- byggt árið 1993 og vom rúmar 165 mjólkurkýr í lausagöngu, en auk þess voru mjög miklar byggingar fyrir geldneyti. Mjólkurkúnum er við fóðrum skipað í fjóra fóðmnar- hópa. Þarna vom svartskjöldóttar kýr og voru kýr í framleiðslu fóðraðar inni allt árið, en geldkýr fóm á beit. Meðalafurðir síðasta ár voru tæp 12.000 kg af 4% mjólk. Þetta em fádæma miklar afurðir. Mikil notkun á sæði úr innfluttum úrvalsnautum frá Bandaríkjunum hófst á þessu búi fyrir tveim áratugum, en nú er nautanotkun mest úrvalsnaut frá meginlandi Evrópu ( Hollandi, Frakklandi og Þýskalandi). Fjósameistarinn sagði að til þess að jafna tímamun væri byrjað á að mjólka hámjólka kýmar i annað málið en þær væru mjólk- aðar síðast i hitt málið. Hann sagði að þeir hefðu mjög velt fyrir sér hvort ástæða væri til að taka upp mjaltir þrisvar á sólarhring en þrátt fyrir þetta miklar afurðir hefði niðurstaða þeirra verið sú að slíkt væri alls ekki hagkvæmt þar sem öll vinna byggði á aðkeyptu vinnu- afli eins og þama er. Heimsókn á dönsk stórbýli Hópur íslendinga, sem sótti NÖK ráðstefnununa að þessu sinni, var töluvert fjölmennari en áður hefur verið. Að aflokinni ráðstefnu fór stór hluti þeirra í afar áhugaverða kynnisferð til Danmerkur. Hér verður sú ferðasaga ekki sögð. Aðeins drepið á örfá atriði. Heimsóttur var gífurlega stór danskur herragarður, Birkelse stór- býlið, þar sem sett hafa verið upp vélmenni til að annast mjaltir kúnna. Á öðmm stað í blaðinu er endursögn af reynslu búsins i þeim efnum. Við heimsóttum tvo af félögum okkar úr NÖK. Lísa og Lars Peder- sen búa nyrst á Jótlandi og eru með á íjórða hundrað Jersey kýr. Þama sáum við tvo menn við mjaltir þar sem stóðu 32 kýr í mjaltabásnum í einu og virtust þetta ákaflega léttar mjaltir á að horfa og mikil ró yftr öllu starfínu. Mjaltabásinn var nýr og þannig fyrir komið að kýmar standa samsíða í básnum og tækin eru sett á kýmar aftan frá. Kýmar voru þama i lausagöngu og gengu allar saman. Fóðrað var á heilfóðri og allar kýr á sama fóðri. Hráefni í fóðrið var mjög fjölbreytt og var afgangur ffá bmgghúsi þar í nágrenni allstór þáttur þess. Sagði Lars að viðmiðun hans væri sú að fóðurkostnaður á hverja fóðurein- ingu mætti ekki fara yfír eina krónu danska. Lars sagðist hafa lært af foður sínum að meginmáli skipti með búfé að fóðrið færi vel í maga, þannig að þeim liði vel að því leyti. Hann sagðist sannfærður um að það réði ákaflega miklu um hreysti og heilbrigði kúnna, meira að segja júgurheilbrigði. Annars sagði hann slík vandamál hverfandi á búinu og Jóhaitnes Torfason tekur við formennsku NÖK. Asamt Itonum á myndinni eru framkvœmdastjóri samtakanna og fráfarandi formaður. 18- FREYR 14/98

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.