Freyr

Árgangur

Freyr - 01.12.1998, Blaðsíða 30

Freyr - 01.12.1998, Blaðsíða 30
að meðalkostnaður sé í lágmarki. Það getur allt eins verið við minna framleiðslumagn, allt eftir hegðun kostnaðar við framleiðsluaukningu hjá einstökum framleiðanda. 2. Um fjölgun mjólkurkúa, framlegð og nythæð Til að meta kostnaðarfall hjá sérhæfðum kúabúum er stuðst við búreikningasafn Hagþjónustu land- búnaðarins fyrir árið 1997. Not- aðar eru upplýsingar úr búreikning- um hjá 103 kúabúum sem hafa yfír 90% búgreinatekna af mjólkurkúm og færri en 30 vetrarfóðraðar kindur. Er það gert í þeim tilgangi að lágmarka vægi annarra búgreina. Nauðsynlegt var að skilgreina vinnuframlag á búunum þar sem reiknuð laun eigenda gefa ekki raunhæfa mynd af heildarlauna- kostnaði þeirra. Af þeim sökum er lagt mat á þróun launakostnaðar út frá upplýsingum úr vinnuskýrslum kúabúa á árinu 1982. Notast er eingöngu við vinnu í ljósi og er gert ráð fyrir að annar launakostnaður komi fram í öðrum kostnaðarliðum. Mynd 1 sýnir samband vinnu- stundafjölda og fjölda mjólkurkúa samkvæmt vinnuskýrslum frá 121 kúabúi árið 1982. Þar sést að vinnu- stundafjöldinn hefur tilhneigingu til að vaxa með minnkandi jaðar- áhrifum. Sömu áhrifa gætir í fyrri rannsóknum sem gerðar hafa verið á áhrifum kúaQölda (kúgilda) á vinnumagn. Eftir því sem mjólkur- kúm fjölgar veldur hver viðbótar mjólkurkýr sífellt minni aukningu á heildarvinnustundaQölda. Samkvæmt þessari vísbendingu var metið eftirfarandi veldisfall út frá ofangreindum mælingum með aðferðum minnstu kvaðrata. (1) V = aoMboeu Þar sem; V er vinnustundafjöldi á ári, e = 2,718..., þ.e. grunnur náttúrulegs lógaritma (ln), a og b eru fastar, M er fjöldi mjólkurkúa og u er slembistærð. Tekinn var lógaritmi afjöfnu (1) í þeim tilgangi að meta með aðhvarfsgreiningu samband vinnu- stunda og fjölda mjólkurkúa á línulegu formi eins og fram kemur í jöfnu 2: (2) ln V = ln a + b ln M ln V = 6,03 + 0,62 ln M Mynd 1 Saniband vinnustunda í Jjósi og fjölda nijólkurkúa á 121 kúabúi áríð 1982. + 121 kúabú 1982 —Aðhvarfslína (jafna 2) 8.000 7.000 6.000 5.000 ’C 4.000 VI ^ 3.000 2.000 1.000 10 20 30 40 50 60 70 80 90 100 110 120 Fjöldi mjólkurkúa 30- FREYR 14/98

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.