Freyr - 01.12.1998, Síða 8
Á hinn bóginn er það auðvitað
mjög slæmt ef byggðin grisjast of
mikið, þá hrynur félagslega kerfið,
skólar, heilsugæsla o.s.frv., þannig
að þetta vinnur hvað gegn öðru.
Bændur verða líka að gera sér
grein fyrir þvi að þeir eru ekki í sama
vemdaða umhverfinu og áður, það er
sífellt fleira fólk sem veit ekkert um
landbúnað, það á líka við um
alþingismenn, en undir þeim eigum
við mikið af framtið okkar komið.
Bændur þurfa líka sjálfir að kynna
mál sín og málstað og það þarf að
vera sátt um þessi mál með þjóðinni.
Bændur eiga ekki að þurfa að líta á
sig sem ölmusumenn.
Hvað mikið leggur þú upp úr
hreinleika íslenskra búvara?
íslenskur landbúnaður er að
miklu leyti vistvænn eða jafnvel
lífrænn. Það sem þarf að líta á er
lyfjanotkun og aðbúnaður búfjár.
Notkun tilbúins N-áburðar tel ég
vistvænan hér á landi þar sem
köfnunarefni er framleitt úr
andrúmsloftinu með vistvænni
raforku. Hins vegar tel ég að það
verði alltaf mjög takmarkaður
lífrænn landbúnaður hér, nema
e.t.v. í garðrækt.
Innflutningur á kúakyni
Ert þú fylgjandi innflutningi á
nýju kúakyni?
Já, ég er fylgjandi því. Ég sé þó
aðeins fyrir mér að íslenska kynið
verði kynbætt, en hættan er auðvitað
sú að það hverfi alveg. Júgurgerð
íslenskra kúa, a.m.k. hjá mér, er ekki
góð, júgrin eru afar misjöfn í laginu
og svo er algengt að einhver speninn
sé fljótari að mjólkast en hinir og ef
ekki er viðhöfð nóg gát á því þá er
hætta á júgurbólgu. Með góðu
júgurheilbrigði fylgir líka sjálfkrafa
betri nyt.
Norsku kýrnar eru stærri og
mjólka meira, en mér er ekki kunn-
ugt um hvort þær þurfa hærra
hlutfall kjamfóðurs en þær íslensku
í fóðri sínu, en mikið gróffóðurát er
auðvitað mikilvægt fyrir íslenska
mjólkurframleiðslu. Hvað sem því
líður er ég hlynntur því að þessi
tilraun verði gerð.
Er unnt að ná bcettri júgurgérð
án þess að stœkka kynið?
Nei, sjálfsagt ekki, mér er sagt
Mest af heyskapnum í Holti er verkaö í rúllur.
að hjá okkur séu mjög stórar kýr
og þær stærstu slagi hátt upp í
írskar Holstein kýr. Annars dregur
að því að taka verði afgerandi
ákvörðun í hönnun nýrra íjósa, þ.e;
hve stórir básarnir eiga að vera. í
Svíþjóð hafa nýlega, þ.e. með
inngöngu i ESB, verið settar nýjar
reglur um stærð bása miðað við
stærð kúnna.
Sænska stúlkan sem hefur unnið
hér talar líka um að sænskar kýr
sparki minna en þær íslensku og séu
geðbetri. Hins vegar er hér því við
að bæta að kvígur, eins og hér,
ganga úti allt sumarið, í 3-4 mánuði,
og þetta verður hálf villt bæði af
áhrifum umhverfis og veðurfars.
Það getur haft áhrif á atferlið. Kýr í
Svíþjóð ganga kannski á þremur til
fjómm sömu hekturunum allt árið
og em fóðraðar alla ævi. Þetta getur
lika haft áhrif á kjötgæðin, þ.e. að
hér sé meira villibragð afkjötinu. Ef
sænskir kálfar væra settir út á mýri í
3-4 mánuði þá býst ég við að það
kæmi fram villt eðli í þeim. Önnur
hver kvíga hér sparkar eitthvað
fyrst, en þegar líður á veturinn fer
þetta að róast, en ein og ein verður
alltaf dýrvitlaus.
Getur þú hugsað þér að stækka
búið enn?
Já, því að aðstaðan er fyrir hendi
í fjósinu til að hafa fleiri kýr, en að
vísu þyrfti að auka rými fyrir kálfa
og kvígur, en það er auðvelt með
því að koma upp aðstöðu í þurr-
heyshlöðunni. Áttatíu kýr mjólk-
andi í stað sextíu nú væri ágætur
fjöldi. Sjálfar mjaltimar taka á vet-
urna u.þ.b. 11 '/2 klst. og svo
frágangur og heygjöf á eftir, þannig
að það bættist þá við hálftími í
hvert skipti.
M.E.
8- FREYR 14/98