Freyr - 01.12.1998, Síða 11
Heygæði, FE/kg þe
Myitd 2. Áltrif heygœöa (FE/kg þe) og tegundir eldisgripa á nauðsynleg
verðhlutföll i heyi (kr/kg þe) til þess að halda óbreyttri framlegð. 100 =
Galloway blendings naut sem fóðruð eru á heyi með 0,85 FE/kg þe.
Miöað við 200 kg fall og 94% fóðurnýtingu. Byggt á niðurstöðum
fóðurtilrauna á Möðruvöllum í Hörgárdal 199! - 1996.
meiri i uxaeldinu en í nautaeldinu
vegna þess að það tekur lengri
tíma að ala uxana i sláturstærð (sjá
töflu 2).
Galloway blendingar skila
mestri framlegð en er hún
næganleg?
A mynd 3 er sýnt hvaða áhrif
grunnfóðurverðið og tegundir
eldisgripa hafa á framlegð eldis-
gripsins til búsins. Hér er gert ráð
fyrir því að allar tegundir lendi í
sama verðflokki, þ.e. UNI A.
Grunnfóðrið er hey og kjarnfóður
en mjólkurverðið er sett fast eins
og kemur fram í töflu 2. A mynd-
inni kemur greinilega fram hvaða
áhrif mismunandi tegundir eldis-
gripa hafa á framlegðina. Munur-
inn á milli tegunda eykst með dýr-
ara grunnfóðri. Uxaeldið gefur
lang minnstu framlegðina miðað
við sama grunnfóðurverð þannig
að einungis er hægt að réttlæta
þannig eldi með minni grunn-
fóðurkostnaði í samanburði við
nautaeldi. Er raunhæft að ætla að
hægt sé að fóðra uxa á 30 - 50%
ódýrara grunnfóðri en naut? Til-
raunirnar á Möðruvöllum sýna að
auðveldar er að ná ásættanlegri
fituhulu á uxum en nautum á
heyfóðrun eingöngu. Holdfylling
uxa er hins vegar mun lakari.
Verðfelling er engu að síður
liklegri í nautunum en uxum ef
þau eru eingöngu alin á heyjum
miðað við núverandi kjötmat. Þess
vegna er ekki ósennilegt að
grunnfóðurkostnaður á fóður-
eininguna sé heldur hærri hjá
nautunum. Það vegur hins vegar
engan veginn nægjanlega mikið til
þess að réttlæta uxaeldi í stað
nautaeldis. Annar möguleiki til
þess að lækka grunnfóðurkostn-
aðinn í uxaeldinu var talinn vera
sumarbeit. Tilraun á Möðru-
völlum, sem gerð var til þess m.a.
að skoða þetta atriði, bendir hins
vegar til þess að slíkt eldi skili enn
minni framlegð en innieldi ein-
göngu. Þetta er vegna þess að
heildar heyfóðurþörf uxanna til
þess að ná sláturstærð var sú sama
hvort heldur sem þeir voru á
sumarbeit (á ræktuðu landi eða í
úthaga í þrjá mánuði) eða á inni-
stöðunni allan eldistímann.
Þó að framlegð Galloway blend-
ingsnauta sé talsvert meiri en ís-
lenskra nauta er umdeilanlegra
hvort það borgi sig fyrir kúabónd-
ann að sæða með Galloway nauti.
Margir kúabændur kjósa að sæða
eingöngu með íslenskum nautum til
að fá myndarlegri kvíguhóp til þess
að velja úr til ásetnings. Þetta er
stefna sem hver og einn verður að
meta fýrir sig. A Möðruvöllum eru
allar kýr sæddar með íslenskum
nautum fyrir búið einmitt af
þessum sökum.
Mynd 3. Ahrif grunnfóðurverðs og tegundir eldisgripa á framlegð
sláturgrips. Miðað við 200 kg fall, 94% fóðurnýtingu og 310 kr/kg fall
skilaverð. Byggt á niðurstöðum fóóurtilrauna á Möðruvöllum i
Hörgárdal 1991 - 1996.
FREYR 14/98 - 11