Freyr - 01.12.1998, Side 13
Mynd 4. Áhrif grunnfódursverðs og lífþunga islenskra uxa við slátrun á
framlegð. Forsendur eru birtar í töflu 3.
komið í alltof mörg fjós þar sem
naut eru höfð í of þröngu plássi og
of mörg í hverri stíu. Þetta er
vísasta leiðin til þess að framlegð
eldisins verði minni en engin fyrir
bóndann. Niðurstöður erlendra
rannsókna sem beinst hafa að
þessum þáttum bera allar að sama
brunni. Fóðurnýting og vöxtur
getur versnað svo að nemi tugum
prósenta miðað við kjöraðstæður.
Það er því mikilvægt að allir gripir
hafí jafnan aðgang að fóðurgangi
og leguplássi. Og einhvers staðar
las ég að stía með fjórum nautum
framleiddi jafnmikið kjöt og
jafnstór stía með fímm nautum.
Stærðarflokkun í stíur er einnig
mikilvæg og naut sem verða undir
í hópnum þarf að færa í aðra stíu
eða jafnvel binda á bás ef hægt er.
Þeir framlegðarútreikningar sem
hér eru sýndir miðast allir við að
aðbúnaður gripanna hafí verið sem
næst kjöraðstæðum.
Lokaorð
Eg hef tekið eftir því að flestir
þeir sem telja sig hafa arð af
sérstakri nautakjötsframleiðslu
eru þeir sem hafa ríflegt
ræktunarland (miðað við kvóta),
gott pláss og aðstöðu í útihúsum
og tíma aflögu til þess að sinna
öðru en "bara" mjólkurfram-
leiðslu. Þessir þættir skipta máli
því samkeppnisstaða þeirra er
betri í samanburði við þá sem
þurfa að leggja í sérstakan
uppbyggingar- og launakostnað.
Hins vegar er jafn ljóst að
arðurinn er fljótur að étast upp,
og það í bókstaflegri merkingu,
ef ekki er staðið rétt að málum og
framleiðandinn þarf ávallt að
vera meðvitaður um þá þætti sem
hafa mest áhrif á kostnaðinn við
eldið. Forsendur eru alltaf að
breytast og það getur verið erfítt
að sjá fyrir hvernig nautakjöts-
markaðurinn lítur út eftir eitt og
hálft til tvö ár en það er þegar
bóndinn þarf að taka ákvörðun
um ásetning til kjötframleiðslu. I
þeim efnum verður hann að
treysta á eigin spádómsgáfur.
HELSTU HEIMILDIR
Daði Már Kristóferson og Bjami
Guðmundsson. 1998. Vinna og véla-
kostnaður við heyskap - athugun á 23
búum víðsvegar um landið. Freyr 94:7
- 10.
Gunnar Guðmundsson. 1997. Fóðrun
ásetningskvígna. Freyr 93:150 - 151.
Gunnar Rikharðsson, Guðjón Þorkels-
son, Þóroddur Sveinsson og Olafur
Guðmundsson. 1996. Samanburður á
íslenskum nautum og Galloway -
blendingum. Fjölrit RALA nr. 186,45 bls.
Jón Áki Leifsson. 1997. Uxar til
kjötframleiðslu, II. Rit Ráðunauta-
fundar 1997, bls. 225 -234.
Torfi Jóhannesson. 1994. Húsvist
nautgripa - afurðir, velferð, vinna.
Fjölrit RALA nr. 173, 40 bls.
Sigríður Bjamadóttir. 1997. Uxar af
íslensku kyni til kjötframleiðslu, I. Rit
Ráðunautafundar 1997, bls. 211 - 225.
Þóroddur Sveinsson. 1997. Hve
mikið fóður er í rúllunum? Freyr
93:288 - 289.
Þóroddur Sveinsson. 1997. Búrekst-
urinn á Möðmvöllum í Hörgárdal. Frey
93:394 - 402.
Mynd 5. Áhrif grunnfóðursverðs og lifþunga á framlegð íslenskra
ógeltra nauta við slátrun. Forsendur eru birtar í töflu 3.
FREYR 14/98 - 13