Freyr - 01.01.1999, Side 11
land, eingöngu fyrir það hve
útflutningur til Þýskalands hefur
dregist mikið saman.
Hvernig hefur hrossasóttin
virkað á útflutninginn í ár?
Auðvitað gerði hún töluverðan
skaða. Utflutningur lá niðri í fjóra
mánuði. Hins vegar, eftir að bann-
inu var aflétt, hefur útflutningur
verið meiri en á sama tíma í fyrra.
Þetta veldur þó einhverjum sam-
drætti í ár en ég hef miklu meiri
áhyggjur af efnahagsástandinu í
Þýskalandi en hrossasóttinni. Þessi
sótt virðist engin áhrif hafa haft á
útlendingana, þeir hræðast hana
ekkert.
Vesturheimur sem markaðs-
svœði?
Um þessar mundir leggjum við
aðaláhersluna á Vesturheim sem
markaðssvæði, þ.e. Bandaríkin.
Þar er greinilega vaxandi markaður.
Það er hins vegar mjög kostnaðar-
samt og tímafrekt að afla þar
markaða, þetta er mjög stórt land,
vegalengdir gífurlega miklar sem
og flutningskostnaður. Síðan hafa
verið þama hindranir, hrossin hafa
þurft að fara í sóttkví, sem er dýrt.
Við erum á fullu núna að laga fyrir
okkur í þessu umhverfí og ef það
tekst er ég sannfærður um að
Bandaríkin eiga eftir að verða mjög
mikilvægt útflutningsland fyrir
íslenska hestinn, en markaðssvæðin
þar era einkum á austurströndinni
og vesturströndinni.
Hve mörg íslensk hross eru nú
talin vera til erlendis?
í Þýskalandi einu eru talin vera
um 60 þúsund íslensk hross, þannig
að alls eru trúlega á annað hundrað
þúsund íslensk hross erlendis eða
töluvert fleiri en hér á landi.
Er þessum hrossum œxlað við
önnur kyn erlendis?
Ég veit aðeins um eitt dæmi þess.
Það er Walter Feldmann eldri í
Aegidienberg í Þýskalandi sem
hefur gert þetta og æxlað þeim
saman við Paso-kynið ffá Suður-
Ameríku. Sjálfur er hann býsna
ánægður með árangurinn, en ég tel
ekki nokkra hættu á að þetta veiti
neina samkeppni. íslenskir reið-
menn, sem hafa kynnst þessum
hrossum, telja þau gjörólíka ís-
lenska hestinum.
í Þýskalandi öllu eru um 640
þúsund hross, þannig að íslensk
hross eru þar af aðeins um 10-12%.
Mér finnst ekki hœgt að tala um
íslensk hross erlendis án þess að
nefna Gunnar Bjarnason.
Nei, það er ekki hægt, jafn sam-
ofíð líf hans er íslenska hestinum
og kynningu á honum erlendis. Það
er ekki verið að gera lítið úr neinum
þó að fullyrt sé að hann á meiri þátt
í velgengni íslenska hestsins á
erlendri grund en nokkur annar
maður.
Hrossakjöt
Hvernig er staða hrossakjötssölu
og -útflutnings?
Það varð okkur mikið áfall þegar
Japansmarkaðurinn hrundi út af
sýkingum í hráum mat sem snerist
ekkert um hrossakjöt, en hrossakjöt
er borðað þar hrátt. Þessi markaður
gaf gott verð, en kjötið var sent
þangað í flugi. Það er gaman að
segja frá því að út úr búð kostar
kjötið þar um 6-7 þúsund krónur
kílóið.
Núna er slátrað hrossum í hverri
viku og kjötið sent til Ítalíu og þar
getum við afsett talsvert magn.
Það fer i flugi til Kölnar og þaðan
í bílum. Það aftrar okkur í þeim
viðskiptum að aðeins eitt sláturhús
hér á landi, á Hvammstanga, hefur
leyfí til útflutnings á hrossakjöti til
ESB. ítalir gera miklu minni
kröfur um gæði en Japanir, t.d ekki
að kjötið sé fítusprengt, en borga
líka miklu minna verð. Þeir gera
bara kröfur um að þetta sé I.
flokkur, heilbrigt og ekki rýrt.
Italir eru með sérstakar kjöt-
verslanir fyrir hrossakjöt og þeir
nýta þetta á líkan hátt og við
nýtum nautakjöt, svo sem í gúllas
o. fl. rétti. Fyrirtækið sem við
skiptum við verslar eingöngu með
hrossakjöt, það rekur kjötvinnslu
og er með um 20% af hrossa-
kjötsmarkaðnum í Ítalíu.
Markaðsstaða hrossakjöts innan-
lands hefur aftur versnað mjög
mikið og ég kann svo sem enga
skýringu á því. Ég segi þó stundum
að fólk sé hætt að borða saltað
hrossakjöt. Folaldakjötið heldur
alltaf sínu en okkur hrossabændum
er nauðsynlegt að hafa markað
innanlands fyrir fullorðnu hrossin,
þó að hann gefí ekki mjög mikið.
Þetta er aukaafurð í þessari búgrein,
hross sem seljast ekki sem lífhross
eða eru orðin gömul, og það verður
að losna við þau með einhverjum
hætti, þó að enginn sé að tala um
neitt kostnaðarverð.
Er eitthvað um að kjöt sé dœmt
óneysluhœft í kjötmati?
Já, það er til og kannski ótrúlegt
að segja frá því en í hluta af gráu
hrossunum sjást svartir blettir í
náranum og Japanir komu því inn
hjá okkur að þetta væri krabbamein
og þessu kjöti bæri að henda.
Staðreyndin er hins vegar sú að
íslendingar hafa étið þetta kjöt
öldum saman og aldrei orðið meint
af. Því miður hefur þetta ekki verið
rannsakað. Ég hygg að þetta fylgi
einhverjum ákveðnum fæðingarlit
en ekkert hross er fætt grátt.
Er eitthvað um að hross séu felld
og grafin?
Eins og ég nefndi áður þá eru oft
mikil tilfinningamál í kringum
hrossin og það er alltaf eitthvað um
það að menn jarðsetji gömlu
reiðhestana sína.
Er eitthvert verð í hrosshánni?
Það er ekki mikið, húðimar eru
FREYR 1/99 - 7