Freyr - 01.01.1999, Blaðsíða 27
sex til að sigra á innanfélags-
mótum.
150 metra skeið
Gífurlegur áhugi var á 150 metra
skeiði í sumar og náðust frábærir
tímar.
Þrír hestar fóru undir gildandi
íslandsmeti, 13,8 sekúndum, sem
Leistur frá Keldudal setti á Faxa-
borg 1986 en knapi var þá Aðal-
steinn Aðalsteinsson.
Að minnsta kosti þrjátíu hestar
runnu sprettinn á skemmri tíma
en 15 sekúndum.
Neisti ffá Miðdal fékk besta tíma
sumarsins á kappreiðum Fáks 29.
ágúst en hann fór á 13,47
sekúndum.
Gráblesa frá Efstadal fór á 13,72
sekúndum og Sóti frá Geirlandi á
13,74 sekúndum á metamóti And-
vara.
Margir hestar náðu góðum
tímum á kappreiðum Fáks, sem
voru sex talsins, en metamót
Andvara og Mumeyrarmótið gáfu
einnig góða tíma.
Lúta frá Ytra-Dalsgerði vann
stærstu sigrana en hún sigraði á
landsmótinu og íslandsmótinu.
Það má búast við að sterk
vekringasveit skipi íslenska landsliðið
að sumri komandi í Þýskalandi.
250 metra skeið
Sextán vekringar náðu skemmri
tíma en 23,0 sekúndum á skeið-
mótum sumarsins.
Bendill frá Sauðafelli náði besta
tímanum, 21,9 sekúndum í sigur-
spretti á íslandsmótinu en hann og
Glaður ffá Sigríðarstöðum eiga sjö
bestu tímana.
Hinrik Ragnarsson sat Bendil og
sýndi ungu knöpunum hvernig
hestar em skeiðlagðir, en margir
ungir knapar komu ffam á sjónar-
sviðið og eiga effir að láta að sér
kveða í framtíðinni.
Mörg hross náðu góðum tímum
á metamóti Andvara, en kapp-
reiðar Fáks 29. ágúst og Murn-
eyrarkappreiðar voru einnig
gjöfular á góða tima.
Stökkkappreiðar
Aðal stökkgreinar sumarsins
voru 300, 350 og 800 metra stökk.
Brokk hefur nánast lagst af, en þó
renndu knapar nokkmm hestum í
300 og 800 metra brokki.
...Hinn viðburðarríki spretturinn var farinn á Metamóti Andvara. Þar
fóru Gráblesa og Logi Laxdal á besta tímanum, 13,72 sek., en með á
mynd eru Neisti frá Miðey og Sigurbjörn Bárðarson og Ölver frá
Stokkseyri og Sigurður V. Mathíasson.
Lúta frá Ytra-Dalsgerði og Þórður Þorgeirsson sigruðu í mörgum
kappreiðum sumarsins, þar á meðal bœði á landsmóti og íslandsmóti. Hér
er góður sprettur á Islandsmótinu í hestaíþróttum.
FREYR 1/99 - 23