Freyr - 01.01.1999, Síða 35
Þróunarverkefni meö
fósturvísaflutninga í íslenskum hryssum
Inngangur
I júní vorið 1997 var farið af stað
með rannsókn á fósturvísa-
flutningum (flutningur frjógvaðra
eggja) í íslenskum hryssum við
Hólaskóla. Verkefnið er hugsað
sem tveggja ára þróunarverkefni og
var hugmyndin að það færi fram
vorin 1997 og 1998. Seinni hluta
verkefoisins var frestað til vorsins
1999 vegna smitandi hitasóttar sem
fór um í Skagafírði á þeim tíma sem
verkefnið átti að standa yfir. Verk-
efnið er samstarfsverkefoi Hóla-
skóla, Bændasamtaka íslands og
frjósemirannóknastöðvar ræktenda
enska veðhlaupahestsins í New-
market á Englandi. Verkefoið er
fjárhagslega styrkt af Framleiðni-
sjóði landbúnaðarins.
Tilgangur
Tilgangur verkefnisins er meðal
annars að kanna hvort nota megi
svipaðar aðferðir við fósturvísa-
flutninga í íslenskum hryssum eins
og notaðar eru í ýmsum erlendum
hestakynjum með góðum árangri.
Auk þess að koma upp verk-
þekkingu til fósturvísaflutninga í
íslenskri hrossarækt með það að
leiðarljósi að skapa möguleika á
auknum erfðaframforum og sam-
keppnishæfni íslenskrar hrossa-
ræktar.
Með því að nota fósturvísa-
flutninga er hægt að fá:
a) Fleiri en eitt folald á ári undan
úrvalsgóðum hryssum
b) Folald undan hryssu sem
notuð er til reiðar/keppni/sýninga
c) Folald undan ungum efni-
legum hryssum (3ja vetra) en hlifa
þeim við meðgöngu þar sem það
eftir
Guðrúnu J. Stefánsdóttur,
Hólaskóla,
og
Vilhjálm Svansson,
héraðsdýralækni í
Skagafirði
getur dregið úr þroska þeirra
d) Folald undan hryssum sem
verið er að flýta (færa framar á árið)
án þess að þær missi úr ár í folalds-
eign.
Erlendis eru fósturvísaflutningar
einnig mikið notaðir til að fá folöld
undan gömlum hryssum, oft verð-
mætum keppnismerum, sem geta
gefið fijógvunarhæft egg en með-
ganga misferst hjá af einhverjum
ástæðum.
Framkvæmd
fósturvísaflutninga
Samstilling gangferla með
hormónagjöf
Gangferill hryssnanna sem gefa
frjógvuðu eggin (eggjagjafar) og
hryssanna sem taka við þeim (egg-
þegar) er samstilltur þannig að
Fyrsta fósturvísafolaldið, Hnokki, fæddur 11. maí 1997, ásamt
fósturmóður sinni, Gránu frá Víðinesi. Foreldrar Hnokka eru Þröm frá
Hólum og Cesar frá Vogum.
FREYR 1/99 - 31