Freyr - 01.01.1999, Side 36
fósturvísirinn hafni í svipuðu
legumhverfi og hann kemur úr.
Ferillinn frá því samstilling hefst
og þar til fósturvísar eru fluttir milli
hryssna tekur um það bil einn
mánuð.
Vorið 1997 var byrjað að sam-
stilla gangferil hjá tæplega 30
hryssum með hormónagjöf,
progestagen-hormóni, í 9 daga
samfellt, byrjað var að samstilla
eggþega tveimur dögum síðar en
eggjagjafa. Nokkrum dögum eftir
samstillinguna gengu allar hryss-
umar og höfðu egglos á síðustu
dögum hestalátanna. Til að fylgjast
með hvenær eggbúin höfðu náð
nægjanlegri stærð (> 30 mm) til að
halda mætti eggjagjöfunum og til
þess að tímasetja egglos; var tekið
blóð daglega til mælinga á
hormóninu progesteron og hryss-
umar vom sónarskoðaðar. Allar
hryssumar höfðu egglos á þriggja
daga tímabili en eggjajafamir þó
tveimur dögum fyrr en eggþegamir
eins og til var ætlast.
Eggjagjöfum haldið
Eggjagjöfunum var haldið undir
hest annan hvem dag eftir að í þeim
sást eggbú sem hafði náð meira en
30 mm í þvermál. Hverri hryssu
var haldið tvisvar til þrisvar sinnum
meðan á látum stóð.
Tímasetning eggloss
Eftir að hryssumar höfðu haft
egglos var sónarskoðun hætt og
blóð var tekið þar til 3 dögum eftir
egglos. Með progersteron mæling-
unni og sónarskoðuninni fékkst
nákvæm dagsetning á egglosi. Út
frá tímasetningu á egglosinu má
þannig tímasetja frjógvun og aldur
fósturvísanna.
Útskolun og flutningur fósturvísa
Það er talið æskilegt að flytja
fósturvísa 7-8 daga gamla. Skolað
var út úr 10 hryssum á þremur
dögum er fósturvísamir vom 6-7
daga gamlir. Við útskolunina úr
þessum 10 hryssunum, fengust 7
fósturvísar úr 7 hryssum. Sjald-
gæft er að fínna fleiri en einn
fósturvísi í hverri hryssu, sem er
ólíkt því sem gerist í kúm en þar er
þekkt að það geti losnað allt upp í
8-10 egg eða fleiri í hvert sinn sem
þýðir að hægt er að fá jafnmarga
fósturvísa í sömu útskoluninni.
Innan klukkustundar eftir að
fósturvísunum hafði verið skolað
út vom þeir fluttir í aðra hryssu
(eggþega) með skurðaðgerð.
Skurðaðgerðin er gerð á miðlínu
neðan á kvið og krefst góðrar
aðstöðu. Þessir 7 fósturvísar vora
fluttir í 7 fósturmæður (7 skurð-
aðgerðir) og af þeim fundust 5
fóstur lifandi 14 dögum síðar við
sónarskoðun. Arangurinn af
þessum fósturvisaflutningum vorið
1997 voru 3 lifandi hestfolöld
vorið 1998 sem dafna vel. Ein
hryssa missti fóstur einhvem tíma
á meðgöngu og eitt folald fannst
dautt en fullþroska að sjá.
Aður en farið var af stað með
framkvæmdina fóru tveir starfs-
menn Hólaskóla til Newmarket á
Englandi í frjósemirannsóknarstöð
fyrir enska veðhlaupahestinn og
vora þar í starfsþjálfun. Eftir að
heim kom var vinnan í höndum
starfsmanna Hólaskóla allt fram til
þess að átti að flytja fósturvísana.
Þegar komið var að útskolunum og
skurðaðgerðunum komu tveir
dýralæknar frá Newmarket og
aðstoðuðu við þær, en þær stóðu
yfír í 3 daga. Árangur þessa fyrsta
hluta var framar vonum og er
sambærilegur við það sem gerist
erlendis.
Starfsmenn fósturvísaflutningaverkefnisins vorið 1997, talið frá vinstri:
Vilhjálmur Svansson dýralœknir, prof William Allen dýralœknir frá
Englandi, Rikke Schultz dýralœknir, Cornelia Gerstenberg dýralœknir frá
Englandi, Anton Páll Níelsson reiðkennari við Hólaskóla, Víkingur
Gunnarsson deildarstjóri Hrossabrautar Hólaskóla og Guðrún
Stefánsdóttir kennari Hólaskóla.
32- FREYR 1/99