Freyr

Árgangur

Freyr - 01.01.1999, Síða 42

Freyr - 01.01.1999, Síða 42
nema hvort tveggja sé, og oft var ekki sama túlkun eftir skattaumd- æmum. í framhaldi af þessum áhuga nefndarinnar hefúr ríkisskattstjóri nú gefið út samræmdar reglur um skattalega meðferð á hrossa- viðskiptum. c) Kröfur um heilbrigði hrossa. Nefhdin hefúr frá upphafi reynt að fá felldar niður kröfúr um blóðpróf vegna hinna ýmsu sjúkdóma sem aldrei hafa fúndist á íslandi. I árs- byijun 1997 felldi Evrópusambandið niður kröfú um svokallað "coggings test" en þess hefúr verið krafist mjög lengi. Var sá áfangi mjög gleðilegur. Jaffiffamt hefúr verið unnið ötullega að því að fá Amerikumarkað til að minnka þær kröfur sem þar eru gerðar um blóðpróf og einangrun. Töluverður árangur hefur náðst, bæði fyrir tilstilli yfirvalda og einstaklinga. Smitandi hitasótt í hrossum á þessu ári varð þó ekki til að aðstoða við þetta erfiða mál. d) Markaðskönnun. Útflutn- ings- og markaðsnefnd í samvinnu við Félag hrossabænda fram- kvæmdi markaðskönnun á fyrri hluta ársins 1997. Spumingar vom sendar út með Eiðfaxa Intemational og er nú rétt lokið við að gera könnunina upp. Niðurstöðumar, sem eru mjög áhugaverðar, vom kynntar víða í blöðum og á samráðsfúndi fagráðs í hrossarækt 14. nóvember 1997. e) Alþjóðleg ráðstefna um markaðsmál. Nefúdin hélt alþjóð- lega ráðstefnu um markaðsmál að Hrafnagili í Eyjafirði í júlí 1998. Ráðstefnan var haldin í beinu framhaldi af landsmóti hestamanna á Melgerðismelum. Framkvæmd og undirbúningur ráðstefnunnar var í höndum Brynjólfs Sandholt, Emu Amardóttir, en hennar var hug- myndin, og Hulda G. Geirsdóttir, markaðsfulltrúa Félags hrossa- bænda. Frummælendur á ráðstefn- unni komu ffá Svíþjóð, Danmörku, Þýskalandi, Englandi, Bandaríkj- unum og íslandi. Ráðstefnan tókst mjög vel en þátttakendur hefðu mátt vera fleiri. í máli ffummælenda kom ffam að áherslur á markaði era býsna mismunandi og hinn gullni meðalvegur vandrataður. Útdráttur úr erindum ffummælenda hafa verið birtir víða og kynntir á fundum með hrossabændum, sjá grein eftir Brynjólf Sandholt í þessu blaði. f) Smitandi hitasótt í hrossum. Fulltrúar nefndarinnar fylgdust vel með vinnu yfirvalda vegna hita- sóttarinnar sem geisaði á síðasta ári. Formaður var ávallt kallaður á fúndi í "stuðningshópi" yfirdýra- læknisembættisins og þar mættu einnig flestir aðrir nefndarmenn en þá oftast í krafti annarra embætta sinna. Mikil markaðsvinna bíður vegna hitasóttarinnar og ljóst er að endanleg áhrif hennar koma ekki fram fýrr en á næstu öld. Nú fer að líða að því að fyrsta "kjörtímabil" ÚM verði lokið og við þau tímamót er eðlilegt að sest verði niður og árangurinn skoðaður. Þjónar nefndin tilgangi sínum? Hafa fjármunir útflutningssjóðs nýst sem skyldi? Þessar og viðlíka spumingar er rétt að ræða við valinn hóp þeirra er að búgreininni koma og aðra er vilja taka þátt í þeim skoðanaskiptum. Nefndin stefnir að því að boða til fúndar á vordögum og era áhugasamir beðnir að fýlgjast glöggt með þeirri fúndarboðun. Að lokum er birtur hér listi yfir þau verkefni sem sjóðurinn hefur styrkt, hver ber ábyrgð á verkefninu og hver staða verkefnisins er: 1. Plús Film, kr. 500 þús., vegna myndar um íslenska hestinn. Styrk- urinn hefúr allur verið greiddur og myndin komin í dreifingu. Ábyrgðarmaður er Sveinn Sveins- son. 2. EDDA HESTAR, kr. 500 þús., vegna markaðsetningar á hrossum í Kanada og í USA. Verkefninu lokið þó að ýmislegt hafi orðið til að tefja framgang þess og styrkurinn hefúr verið greiddur. Ábyrgðarmaður er Ólöf Guðmundsdóttir. 3. Árbakki, hrossaræktarbú, kr. 300 þús., til kynningar á íslenska hest- inum í miðvestumkjum USA. Verk- efninu lokið, styrkur greiddur og Reynt hefur verið aö fá felldar niður kröfur um blóðpróf vegna sjúkdóma sem aldrei hafa fundist á íslandi. 38- FREYR 1/99

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.