Freyr - 01.01.1999, Qupperneq 51
verið að vinna í því nú þessa dag-
ana og fer vonandi að sjá fyrir
endann á þeirri vinnu.
Hafist var handa á árinu um nýja
útgáfu á Feng. Fagráð hefur fylgst
með því verki og rætt um það og
komið með ábendingar. Þessi nýja
útgáfa er senn tilbúin.
Nokkrir styrkir voru veittir úr
stofnvemdarsjóði til kaupa á
stóðhestum. Búið er að breyta
lögum um sjóðinn, að vísu er eftir
að setja reglugerð, svo að hægt
verði að útvíkka hlutverk hans í
þágu hrossaræktarinnar. Fagráð
samþykkti á árinu að ekki væri
hægt að reikna með því sem vísum
hlut að styrkur eða lán fengist
vegna stóðhestakaupa.
Gæðastjórnun er hugtak sem
heyrist oft í dag. Ég tel nauðsynlegt
að hrossabændur séu þátttakendur í
því ferli. Fagráð fól rannsóknar- og
kennslunefnd að vinna álitsgerð,
sem yrði gmnnur að mótun heild-
stæðrar gæðastefnu í öllum grein-
um hrossaræktarinnar. Hér er m.a.
verið að tala um einstaklingsmerk-
ingar, nýtt og endurbætt skýrslu-
hald sem tryggir áreiðanleika, heil-
brigðseftirlit og skynsamlega land-
nýtingu. Ekki verður farið ítarlegra
í þetta hér því að Víkingur
Gunnarsson mun kynna álitsgerð
þessa á samráðsfundi.
Á árinu var ákveðið að breyta
fyrirkomulagi á vali á ræktunar-
manni ársins. Fram til þessa hafði
verið stuðst við stigunarkvarða sem
búin var til þegar byrjað var á
þessari veitingu. Hann þótti hafa
ýmsa galla. Þess vegna var ákveðið
að fagráð skyldi ákveða hver hlyti
titilinn með atkvæðagreiðslu eða
öðram hætti.
Erindi barst frá Bændasamtökum
íslands um ný búnaðarlög og
áherslur í búQárræktarstarfsemi.
Fagráð var beðið um að taka saman
yfirlit um kynbótastarfið, setja upp
áætlun um kynbótastarfíð næstu ár
og forgangsraða verkefnum m.t.t.
íjármögnunar. Greinargerð hefur
verið unnin og var fagráð á einu
máli um að íjármagn til skýrslu-
halds skyldi hafa forgang.
Glæsilegt landsmót var haldið á
árinu. Ég tel að framkvæmdastjóm
þess hafi staðið sig mjög vel, þó
svo hún hefði mótbyr lengst af.
Landsmótin era gífurlega mikilvæg
fyrir hrossabúskapinn í landinu.
Fróðlegt verður að fylgjast með
þeirri breytingu sem verið er að
gera á landsmótshaldi, en ekki
tímabært að álykta þar um strax.
Okkur miðar öragglega áfram í
ræktunarstarfmu, ég vil hins vegar
að við veltum því fyrir okkur hvort
við ættum að taka upp dóma fyrir
fet og jafnvel sérstakan dóm fyrir
hægt tölt. Á að dæma vilja og
geðslag saman og gefa eina
einkunn fyrir þá þætti? Gagnlegt
væri að ræða þetta í ræktunar-
nefndinni hér á aðalfundinum.
Ég hef reynt að nefna það helsta
sem fagráð hefur fengist við á
árinu. Ég vil minna á að allar
fundargerðir eru sendar til
aðildarfélaga okkar og víðar.
2.2 Fundir með landbúnaðar-
ráðherra.
Formaður og markaðsfulltrúi
funduðu nokkrum sinnum með ráð-
herra á árinu. Rædd voru hitasóttar-
mál, fjármál og önnur hagsmunamál
greinarinnar. Auk þess var fundað
með formanni landbúnaðamefndar
um fjármögnun félagsstarfsins og
ffamgang annarra hagsmunamála.
2.3 Framleiðsluráð land-
búnaðarins.
Formaður hætti setu í Fram-
leiðsluráði á árinu. Við tók Ármann
Ólafsson í Litla-Garði. Unnið er að
breytingum á ráðinu sem miða að
því að gera þessa starfsemi
skilvísari og ódýrari. Hugsanlega
kemur til greina sameining að hluta
við Bændasamtök íslands. Ármann
hefur tekið þátt í þessari vinnu.
2.4 Búnaðarþing.
Búnaðarþing var sett B. mars.
Formaður sat þingið í upphafí en
varð síðan að hverfa frá af
persónulegum ástæðum og við tók
Baldvin Kr. Baldvinsson í Torfu-
nesi. Þeir fylgdu eftir málefnum
hrossabænda eftir því sem við átti.
III. Reiðhrossa-
verðlaunin
3.1 Útflutningur hrossa 1997
Heildarútflutningur hrossa árið
1997 var 2.566 hross.
3.2 Útflutningur hrossa 1998
Heildarútflutningur sem af er
þessu ári (þegar miðað er við 1.
nóv.) er um 1700 hross. Sjá nánari
umfjöllun um reiðhrossaverslun í
skýrslu markaðsfulltrúa.
3.3 Útflutningssjóður og starf
útflutnings- og markaðsnefndar.
Formaður situr í útflutnings- og
markaðsnefnd fyrir hönd félagsins.
Fjöldi funda var haldinn á árinu og
vora helstu verkefni nefndarinnar,
auk úthlutuna úr útflutningssjóði,
að vinna að skatta- og tollamálum,
auk hitasóttarmála. Einungis var
úthlutað einu sinni úr sjóðnum á
árinu þar sem engar tekjur komu
inn í sjóðinn á meðan útflutnings-
bannið stóð. í þeirri úthlutun hlutu
eftirtaldir styrki:
Sigurbjörn Bárðarson/Axel
Ómarsson til áframhaldandi
markaðsstarfa í USA, 750 þús. kr.
Stak ehf. til uppbyggingar Faxa
vefsins 750 þús. kr.
Félag hrossabœnda til markaðs-
starfa-markaðsfúlltrúa, 1.250 þús. kr.
FREYR 1/99 - 47