Freyr - 01.01.1999, Side 54
III. Ferðir erlendis
3.1 Skotland.
I maí sl. fór markaðsfulltrúi að
ósk þarlendra aðila til Skotlands.
Tilgangur ferðarinnar var að halda
fræðslufimdi i tengslum við nám-
skeiðahald og funda með fulltrúum
Islandshestasamtakanna þar.
Undirrituð átti góðan fund með
James Joicey þar sem farið var yfír
ýmis kynningar- og markaðs-
setningarverkefni sem gætu hentað
Bretlandsmarkaðnum. Unnið hefur
verið að undirbúningi farand-
sýningar sem færi á helstu land-
búnaðarsýningar í Bretlandi árið
2000, góður upplýsingabæklingur
frá IPZV í Þýskalandi þýddur og
fengið leyfí til notkunar á honum í
enskumælandi löndum o.fl. Auk
þess fundaði undirrituð sérstaklega
með skoskum aðilum sem hafa
áhuga á því að stofna skoska deild
innan Bretlandssamtakanna. Slík
deild hefur nú verið stofnuð og
mun hún starfa sérstaklega að
hagsmunum félaga á Skotlandi sem
eru á margan hátt aðrir en t.d. í
Suður-Englandi. Ferðin tókst vel og
skilaði góðum árangri. Eins og
fram kemur annars staðar í
skýrslunni tel ég að í Bretlandi
eigum við meiri möguleika en
margir vilja trúa og aukning í
útflutningi þangað eykur trú mína á
því að við eigum að sinna þeim
markaði vel.
3.2 Bandaríkin
Nú fyrir skemmstu fór markaðs-
fulltrúi í þriggja vikna ferð til
Bandaríkjanna. Tilgangur ferðar-
innar var tviþættur, annars vegar að
safna upplýsingum um stöðu
markaðarins fyrir íslenska hestinn í
Bandaríkjunum og hins vegar að
vinna að undirbúningi verkefnis
sem F.hrb., í samvinnu við
útflytjendur, viðskiptaþjónustu
utanríkisráðuneytisins, ferðamála-
selja þeim hross þegar þeir þess
óska.
Fé það er deildirnar lögðu í
verkefnið er í vörslu banka hér á
íslandi og því er auðveldlega hægt
að greiða það til baka. Hluti
félagsins er einnig varðveittur í
banka hér, auk þess sem veitt hefur
verið ein ábyrgð til skóla, en hún
rennur út árið 2001 og greiðist þá til
baka til félagsins.
2.3 Sala hrossa.
Engin hross hafa verið keypt á
íslandi á vegum skólanna undan-
farið starfsár. Hins vegar sögðu
fulltrúar skólanna í sept. sl. að
unnið væri að uppsetningu
tveggja nýrra skóla og að þeir
myndu hafa samband fljótlega á
nýju ári um framvindu þeirra
verkefna og þar með kaupa á
hrossum hér á landi.
Hulda G. Geirsdóttir og gœðingurinn Laski frá Kirkjubœ.
50- FREYR 1/99