Freyr - 01.09.1999, Blaðsíða 2
Það borgar sig
að skipta
við traustan banka!
Q Með Sérkjörum Heimilislínu
geta traustir viðskiptavinir bankans nýtt sér ýmsa
þjónustuþætti á sannkölluðum sérkjörum.
• Hærri innlánsvextir á Gullreikningi.
• Allt að 500.000 kr. yfirdráttarheimild á lægri vöxtum.
• Allt að 750.000 kr. skuldabréfalán án ábyrgðarmanna.
• Allt að 1.000.000 kr. sveigjanlegt Sérkjaralán, með einu símtali.
• Húsnæðislán til allt að 25 ára.
• Möguleiki á sérstökum vaxtaauka í reglubundnum sparnaði.
• Greiðsluþjónusta með útgjaldadreifingu.
• Útgjaldadreifing í Heimilisbankanum.
• Gullkreditkort Visa.
• Frír aðgangur að Heimilisbanka á Internetinu.
• Fjármálanámskeiö og handbók á sérkjörum.
• Gulldebetkort og 150 fríar færslur o.fl.
(ýý í Sérkjörum Heimilislínu eru þjónustuþættir
sem bjóðast aðeins í Búnaðarbankanum;
þess vegna borgar sig að skipta...
Fáðu nánari upplýsingar og bækling í næstu afgreiðslu
Búnaðarbankans eða á heimasíðu bankans: www.bi.is
©BÚNAÐARBANKINN
- traustur banki!
IVlol
Ný búr fyrir varphœnur
Hinn 19. júlí sl. sam-
þykkti ráðherraráð ESB
að frá árinu 2012 verði
bannað að nota hefðbundin búr
fyrir varphænur í löndum sam-
bandsins. Fram að því munu
gilda mismunandi reglur um
aðlögun að hinum nýju reglum.
Vegna samninga milli ESB og
Evrópska efnahagssvæðisins,
EES, munu þessar nýju reglur
einnig gilda hér á landi, i
Noregi og Lichtenstein.
Samþykktin mun brátt taka til
allra þeirra sem hyggja að ný-
byggingum eða verulegum end-
urbótum á eldri byggingum. í
reynd er nú aðeins um tvo kosti
að velja; lausagöngu eða nýja
gerð hænsnabúra, rýmri en áður
með prik, hreiður og undirburð.
Fyrstu búrin af þessari gerð
voru hönnuð í Svíþjóð kjölfar á
strangrar löggjafar um dýra-
vernd sem sett var árið 1988.
Þau lög voru kynnt á sínum
tíma sem afmælisgjöf Sænska
þingsins, Riksdagens, til
sænsku skáldkonunnar Astrid
Lindgren á 80 ára afmæli
hennar. Hún hafði um árabil
staðið i fararbroddi þeirra sem
börðust fyrir bættri meðferð
dýra.
Samkvæmt lögunum frá árinu
1988 átti alveg að banna að hafa
hænur í búrum frá og með árinu
1999. í samræmi við það fóru
fram ítarlegar rannsóknir á fyr-
irkomulagi á lausagöngu
hænsna, en engin viðunandi
lausn fannst sem leyst gæti af
hólmi búrafyrirkomulagið. 1
framhaldi af því hafa fram-
leiðendur hænsnabúra viða um
heim staðið fyrir mikilli þróun-
arvinnu í könnun búra sem full-
nægi nútíma kröfum um með-
ferð dýra og kröfum um hag-
kvæman rekstur.
Lengst i þessari þróunarvinnu
hafa Svíar náð og nú hefur ESB,
eins og áður segir, ákveðið að
láta þá lausan, sem Svíar hafa
lagt fram, gilda í öllum löndum
sambandsins frá árinu 2012.
(Bondebladet, nr. 35/1999).
2 - FREYR 10/99