Freyr

Árgangur

Freyr - 01.09.1999, Blaðsíða 11

Freyr - 01.09.1999, Blaðsíða 11
Hvernig sérðu nú jyrir þér sauð- fjárrœktina framundan? Ég sé fyrir mér að vönduð mark- aðssókn erlendis skili árangri. Bjóða þarf ferskt kjöt lengur hvert ár og síðan að leggja enn meiri áherslu á hreinleika framleiðslunn- ar með útbreiddari gæðastýringu. Danskir sauðfjárbændur, sem selja kindakjöt m. a. í Mið-Evrópu og voru hér að ferð fyrir nokkrum árum, sögðust geta selt ferskt dilka- kjöt, sem framleitt er í strandhéruð- um, á mjög háu verði, ef það er á boðstólum utan aðal sláturtíma, sem þar er frá júní til október. Þeir töldu að allt íslenska dilkakjötið félli undir þetta. Nú eru fyrir hendi aðstæður til að vinna meira og betur að fjárrækt en áður. Þar á ég t. d. við ómskoðun á bakvöðva og nýtt kjötmat. Þetta er hvort tveggja auðvelt að nota til að bæta vaxtarlag fjárins og hækka hlutfall vöðva í skrokkunum. Vel gerður skrokkur með þykka vöðva og hóflega fítu, sem fyrir liggur að sé ekki með lyfjaleifar, eiturefni, hormóna eða þess háttar og ber keim af íslenskum villigróðri, er góð markaðsvara, en hún selst samt ekki sjálfkrafa. Það verður að minnsta kosti að láta neytendur vita af henni. Jafnframt þarf að huga að hag- ræðingu í rekstrinum, bæði á bú- unum og hjá sláturhúsunum. Bændur þurfa að gera miklar kröfur til þess að gætt sé ítrustu hagkvæmni við slátrun og úrvinnslu. Þetta geta þeir gert bæði sem félagsmenn hjá þeim fé- lögum, sem reka slátrun, og með því að sætta sig ekki við að leggja inn þar sem ekki er greitt viðmið- unarverð, sé annars kostur. Aðalatriðið er að bændur trúi sjálfír á eigin framtíð. Án þess verða engar framfarir. Sérðu sauðjjárrœktina jyrir þér sem aðalbúgrein eða aukabúgrein? Hún verður hvort tveggja, eftir aðstæðum. í mörgum tilfellum verður hún hlutastarf. Það þarf mikið til að breyta því. Greinin hentar einnig mjög vel hjá mörgum með öðrum störfum. Á sumum stöðum er þetta þó erf- itt og þar hlýtur hún að verða að- alsstarf. Þar getur það líka farið saman að jarðimar séu landmiklar og eigi góða afrétti. Hins vegar er ekkert hægt að útiloka það, miðað við nútfmatækni, að fólk geti unn- ið við annað þó að það búi fjarri þéttbýli, t.v. við handverk eða á tölvu. Það er hins vegar mikið atriði í sauðijárrækt að verulegur hópur bænda hafi hana að aðalstarfi og leggi alla orku sína í það. Það er þessi hópur sem hefur ræktun fjár- ins og framfarir í kynbótum mest á sínum herðum. Þær fjölskyldur sem helga sig fjárræktinni af lífi og sál eru afar dýrmætar. Oft er rœtt um dreifða búsetu og sauðfjárrœkt í sömu andránni. Já, sauðfjárrækt hefur lengi verið aðalkjölfesta dreifðra byggða. Hins vegar má ætla að byggðin heldur þjappist saman, fólk sækir í fjöl- breytt mannlíf og margskonar þjón- ustu. Ég held að það verði að horf- ast í augu við að ekki verða allir staðir, sem eru byggðir núna, í byggð eftir einn til tvo áratugi. Bú- seta er að vísu svo mikið tilfinn- ingamál að fara verður mjög var- lega að því að hafa áhrif á hana. Nú kemur inn í þetta að það þarf fólk til að manna jjallskil og göng- ur. Já, það er vissulega vandamál, sem nú þegar er farið að segja til sín sums staðar á landinu þar sem fólki hefur fækkað. Að vísu má vænta þess að meira verði um að fé verði ekki sett á afrétt þegar svo er kom- ið, en afféttum verður þó alltaf að fylgjast með því að féð fer vítt um i leit að nýgræðingi, ef það á kost á því. Þar sem ég þekki best til er ekki erfiðleikum bundið að smala afrétt- ina, því að margt fólk, bæði úr sveitum og bæjum, sækir mjög í að fara á fjall. Nú hafa að undanförnu verið að falla dómar í Hœstarétti um eignarrétt á jörðum þar sem eignarréttur skráðra eigenda er ekki viðurkenndur. Já, þama em erfið mál á ferð og ekki öll kurl komin til grafar. í fyrra setti Alþingi svokölluð „Þjóð- lendulög“, og nú er að störfum „Óbyggðanefnd“, sem á að úr- skurða hvaða land verður þjóðlenda í eigu ríkisins. Merking orðsins „afréttur“ hef- ur verið á reiki að undanfömu. Á síðari tímum hefur verið til sá skilningur að í hugtakinu fælist einungis réttur til beitar, annarrar gróðumýtingar og veiði í ám og vötnum á viðkomandi svæði, og það virðist vera skilningur Hæsta- réttar. Ég held þó að óhætt sé að fullyrða að í sveitum landsins og í huga þeirra sem hafa haft með þetta að gera þá hefur orðið „af- réttur“ einfaldlega þýtt landsvæði, þ.e. það að eiga afrétt eða að af- réttur tilheyri einhverri sveit, merkir að landsvæðið sem kallað er afréttur er hluti af sveitarfélag- inu, og viðkomandi jörð ef því er að skipta. Þessu hefur Hœstiréttur dœmt gegn. Já, en að vísu má túlka þessa dóma Hæstaréttar á ýmsa vegu. Þau mál, sem þama er um að ræða, em flest sakamál og þá hefur því ekki endilega verið slegið föstu að umrætt land tilheyri ekki viðkomandi jörð, heldur að vafi leiki á því og þá er sakbomingurinn látinn njóta vafans. Síðan ef gera á það að megin- reglu að líta fram hjá afsölum, sem á að vera staðfesting á eignarrétti, þá er komin upp ný staða í þjóðfé- laginu. En við verðum að vona að afsöl verði látin gilda, einnig varð- andi afrétti. Aó undanförnu hefur farió vax- andi áhugi á því sérstœða við ís- lensk bújjárkyn, bæði varðandi nautgripi og hross. Gildir þetta einnig um sauðfé? FREYR 10/99 - 11

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.