Freyr

Árgangur

Freyr - 01.09.1999, Blaðsíða 36

Freyr - 01.09.1999, Blaðsíða 36
eins um magn á útsendu sæði. Hins vegar er áreiðanlegt að það endur- speglar vel notkun einstakra hrúta vegna þess að nýting á sæði úr vin- sælustu hrútunum verður lang oft- ast einnig betri en hinna þannig að munur í raunverulegri notkun er að líkindum jafnvel enn meiri en út- sendingartölur sýna. Moli 93-986 var i algerri sérstöðu með útsend- ingu sæðis af hrútum í Laugardæl- um með rúmlega 2000 útsenda sæðisskammta. Aðrir hrútar með mjög mikla út- sendingu voru Mjöður 95-812, Amor 94-814, Stubbur 95-815, Garpur 92-808, Sveppur 94-807, Kúnni 94-997 og Bassi 95-821. Allt eru þetta hymdir hrútar nema Sveppur og Bassi. Frá stöðinni á Möðruvöllum var langsamlega mest útsending úr Bjarti 93-800 en aðrir hrútar með umtalsverða útsendingu komu í þessari röð: Atrix 94-824, Ljóri 95-828, Flekkur 89-965, Sunni 96-830, Fjarki 92-981, Austri 98-831, Njóli 93-826, Möttull 84-827 og Djákni 93-983. Af þessum hrútum eru Atrix og Flekkur kollóttir. Hér hafa margir af nýju hrútunum á stöðinni fengið umtalsverða notk- un og á það raunar við um báðar stöðvamar að nýju hrútamir marg- ir fá feikimikla notkun eins og þarf að vera. Því miður er ekki ffekar en áður fyrir hendi neinar heildampplýsingar um árangur sæðinganna. Þó að ein- stöku dæmi muni um slakan árangur er tilfinningin samt sú að hann hafi í heildina verið ffemur góður og einkum norðanlands betri en sum undangengin ár þegar nokkuð hefúr skort á nægjanlega góðan árangur sæðinganna. Meira mun hafa verið um á því svæði en áður að ær hafi verið sæddar ósamstilltar. F.lTf.J. .,„.'7 Starfsemi Landssamtaka sauðfjárbænda r stjóm Landssamtaka sauð- fjárbænda sitja Aðalsteinn Jónsson, formaður, Ásbjöm Sigurgeirsson, Baldur Bjömsson, Jóhannes Ríkharðsson og Þor- steinn Kristjánsson. Búnaðar- þingsfulltrúi er Amór Karlsson og starfsmaður í hálfú starfi er Kristín Kalmansdóttir. Skrifstofa samtakanna er í Bændahöllinni við Hagatorg. Sími er 563 0300, símbréf: 562 8290 og netfang ls@bi.bondi.is. Stjómarfundir á ári era i kring- um 15 talsins. Haldinn var for- mannafúndur í júní sl., einkum vegna þess að ákveðið var að fresta aðalfundi, sem venjulega er haldinn í ágúst, fram í lok október í von um að þá verði meiri skriður verði komin á bú- vörusamningagerð þá sem nú er hafin í sauðfjárrækt. Almenn ánægja var með umræddan for- mannafund og vilji til að halda slíka formannafundi einu sinni til tvisvar á ári framvegis. Fyrir stjórnarfundi eru lögð felst þau mál sem upp koma og stjómin tekur síðan ákvörðun um framkvæmd viðkomandi mála. Það fellur síðan oftast i hlut formanns og starfsmanns að fylgja þessum málum eftir. LS reynir að halda upp öflugum samskiptum við ýmsa aðila, félagsmenn LS, sláturleyfishafa sem og aðra. Það má taka það fram að félagsmenn LS (og aðrir) geta alltaf haft samband við stjórnarmenn LS eða starfs- mann varðandi hver þau mál sem þeim liggur á hjarta. Samtökin selja myndbandið Úrvals ull á 1.000.- per stk. í póstkröfu. Formaður LS og Ásbjöm Sig- urgeirsson sitja í Markaðsráði kindakjöts. Starfsemi Markaðs- ráðs felst einkum i samvinnu við sláturleyfishafa í auglýsingamál- um, en einnig í samvinnu við verslanir og veitingahús. Loks er Markaðsráð með auglýsingar á eigin vegum. Jóhannes Ríkharðsson, Aðal- steinn Jónsson og Baldur Bjöms- son sitja í Fagráði sauðfjárræktar- innar og sinna þar faglegum hlið- um búgreinarinnar. Efst á baugi þessa dagana er nýr búvörusamingur í sauð^ár- rækt en fyrir hönd sauðfjár- bænda sitja í nefndinni Aðal- steinn Jónsson, Ásbjöm Sigur- geirsson og Jóhannes Ríkharðs- son. Enn sem komið er hefur samninganefndin aðeins komið saman einu sinni. Þá hvílir verð- hrun á gærum þungt á mönnum og verið er að leita leiða til að bæta bændum upp það tekjutap sem það veldur. Stjóm LS ákveður viðmiðunar- verð LS, í samvinnu við félags- menn sína. Stjórn LS kemur einnig að ákvörðun útflutnings- hlutfalls, aftur í samvinnu við fé- lagsmenn sína, ásamt Bænda- samtökum Islands. Það er síðan Landbúnaðarráðuneytið sem hef- ur síðasta orðið í þeim málum með setningu reglugerðar þar að lútandi. 36- FREYR 10/99

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.