Freyr

Árgangur

Freyr - 01.09.1999, Blaðsíða 39

Freyr - 01.09.1999, Blaðsíða 39
í útreikningunum tæplega 470 þúsund kindur. Kynbótamat hrúta með hæstu kynbótamatseinkunn I töflu 1 er sýnt kynbótamat þeirra 16 hrúa á landinu sem fá 115 eða meira í kynbótamatseinkunn þar sem matinu fyrir gerð og fitu er j gefíð jafnt vægi og áttu 10 slátur- lömb eða fleiri í þessum útreikning- um. I töflunni eru um leið sýndar einkunnir fyrir þessa hrúta þar sem vægi er breytt á báða vegu þannig að annar eiginleikinn hafi 25% vægi en hinn 75% vægi. Eins og glöggt má sjá þá breytist einkunn sumra hrútanna ákaflega mikið eftir því hvaða innbyrðis vægi er sett á eiginleikana. A þessu atriði hefur áður verið vakin athygli. Ljóst er að j þessir tveir þættir matsins hafa mis- mikið gildi eftir því við hvaða að- stæður til framleiðslu hver og einn bóndi býr. Við mikinn vænleika er lítill vafí að fitumatið skiptir veru- | legu máli, en hins vegar kann það að skipta fremur litlu máli þar sem vænleiki dilka er mjög hóflegur. Við úrvinnslu afkvæmarannsókna er mögulegt að skoða niðurstöður með hliðsjón af mismunandi vægi á þættina tvo í kjötmatinu. Full ástæða er því til að hvetja bændur til að skoða þessa hluti af ná- kvæmni áður en endanlegt val er gert í hrútastofninum á grundvelli kjötmatsins. í þessari uppröðun er Stubbur 95- 815 í Oddgeirshólum, sem nú er á j sæðingastöðinni í Laugardælum, mjög afgerandi í efsta sætinu. Þetta er hrútur sem nær að sameina sam- kvæmt þessum útreikningum bæði afburða mat fyrir gerð og gott mat fýrir fítu. Faðir hans, Mjöður 93- 813, sem einnig var síðasta vetur á stöðinni í Laugardælum, kemur þama í næsta sæti. Mjöður var son- ur Galsa 89-929 frá Hesti, en hann er einn helsti ættfaðir þeirrar hrúta- línu frá Hesti sem yfírleitt er kennd við Stramma 83-833, en þar hefur náðst betur að sameina góða kjöt- söfnun og litla fitu en í flestu öðm fé hér á landi eins og einng virðist skýrt koma fram í þeim niðurstöð- um sem hér era birtar. Að öðra leyti verður ekki fjölyrt um þá hrúta sem era á skrá í töflu 1. Margir þeirra vöktu strax mikla at- hygli í afkvæmarannsóknum á síð- asta hausti og er þama því fátt sem kemur mikið að óvart. Samt skulu endurteknir þeir fyrirvarar sem áð- ur hafa komið fram að ekki hefur gefist tækifæri til að skoða af ná- kvæmni allar upplýsingar sem liggja að baki öllum þessara hrúta og skal ekki útilokað að i einstaka tilvikum geti t.d. fyrivarar í sam- bandi við leiðréttingu vegna fall- þunga hafa haft óeðlileg áhrif á nið- urstöður. Vafalítið era samt allir þeir hrútar, sem þama koma á skrá, verðir veralegrar athygli. Rétt er að geta þess að þeir hrútar sem efstir standa í mati í hvoram þætti um sig, gerð eða fitu, era að- eins fáir í þessari töflu. Ástæðan er sú að hjá mörgum þeirra hrúta fer saman afbragðs niðurstaða fyrir annan þáttinn en afleit fyrir hinn, eins og að ffaman er fjal lað um í sambandi við tengsl þessara tveggja eiginleika. rTafla 2. Kynbótamat sæöingarstöövahrúta sem áttu 50 eða fleiri lömb með kjötmat haustiö 1998 Meðaltal Kynbótamat Nafn Númer Fjöldi vöðvi fita vöðvi fita Móri 87-947 84 6,71 6,29 103 100 Flekkur 89-965 96 6,72 6,46 101 105 Blævar 90-974 69 6,70 6,04 105 93 Þéttir 91-931 120 7,30 6,54 116 90 Hnykkur 91-958 113 6,51 5,74 107 105 Dropi 91-975 92 7,02 6,13 111 101 Faldur 91-990 55 6,53 6,51 108 84 Garpur 92-808 158 7,49 6,42 106 103 Húnn 92-809 115 6,77 6,23 94 111 Hörvi 92-972 73 7,42 6,30 109 109 Fjarki 92-981 128 6,83 6,43 101 102 Skreppur 92-991 63 6,86 6,06 103 93 Njörður 92-994 103 7,01 5,85 102 107 Bjartur 93-800 260 6,93 6,24 100 99 Héli 93-805 64 7,02 6,16 96 110 Galsi 93-963 50 6,68 6,50 112 96 Sólon 93-977 117 6,82 6,37 106 102 Bútur 93-982 223 7,30 6,15 117 100 Djákni 93-983 133 6,80 6,45 104 99 Mjaldur 93-985 174 7,59 6,66 114 90 Moli 93-986 425 7,27 6,03 108 107 Brani 93-988 97 6,48 6,02 98 108 Bylur 94-803 258 6,91 6,34 98 103 Búri 94-806 215 6,91 6,33 104 94 Peli 94-810 160 7,32 6,25 103 110 Spónn 94-993 126 6,81 6,50 97 101 Kúnni 94-997 93 7,00 6,22 111 100 Svaði 94-998 59 7,49 5,98 109 101 Hnoðri 95-801 313 7,03 6,50 100 103 Bjálfi 95-802 171 6,96 6,16 100 102 Serkur 95-811 132 6,98 6,55 89 105 Mölur 95-812 191 7,39 6,59 92 100 FREYR 10/99 - 39

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.