Freyr - 01.09.1999, Blaðsíða 42
Hneyksli við
fóðurframleiðslu í Frakklandi
Nýtt hneyksli í matvælafram-
leiðslu kom upp á megin-
landi Evrópu í ágúst sl. og
fyrst til að birta fréttina var þýska
sjónvarpsstöðin ARD. í fréttatíma
stöðvarinnar var vitnað í efni minn-
isblaðs frá Iðnaðarráðuneytinu í
Frakklandi þar sem fram kemur að
fóðurfyrirtækið Saria hafi blandað
úrgangi í fóðurmjöl handa búfé.
Það gerðist í verksmiðjum þess í
Concarneau og Issé þar sem bland-
að hafði verið klóakúrgangi og
þvottavatni frá flutningabílum sam-
an við framleiðsluna. Saria er dótt-
urfyrirtæki þýska fyrirtækisins
Rethmann, sem er umfangsmikið
sorphreinsunarfyrirtæki þar í landi.
Saria hefur sérhæft sig í fram-
leiðslu fóðurmjöls úr sláturúrgangi.
I úrganginn er blandað komi ásamt
vítaminum, feiti og steinefnum.
Afurðin er sett á markað sem fóður
fyrir svín og alifúgla.
Samkvæmt lögum ESB hefur frá
árinu 1991 verið bannað að nota úr-
IVlol
Danskir bændur
tekjulitlir
Áætlað er að danskir bændur í
fullu starfi muni hafa um d. kr.
69.000 í árslaun eða rúmlega
700.000 í. kr. Til samanburðar
voru tekjur þeirra árið 1997 d. kr.
298.000, eða rúmlega þrjár
milljónir í. kr.
Það em svínabændur sem koma
verst út í ár, þeir tapa að meðaltali
d. kr. 90.000 í ár. Kombændur
munu hafa d. kr. 154.000 í laun og
kúabændur d. kr. 197.000, segir í
áætlun frá dönsku bændasamtök-
unum, De danske landboforen-
'n8er' (Landsbladet).
gang í fóðurffamleiðslu. Frönsk yf-
irvöld hafa hins vegar leyft ákveðn-
um verksmiðjum að nota úrgang frá
sínum eigin hreinsunardeildum í
framleiðslu sina.
Miklir fjármunir í húfi
Sérffæðingar, sem sjónvarpsstöðin
ræddi við, kváðu þama vera í húfi
mikla fjármuni fyrir landbúnað-
arfyrirtækin. Með því að setja úr-
ganginn í fóðurblöndumar næst tví-
þættur spamaður - útgjöld við ffá-
gang á úrganginum minnka og jafn-
ffamt því eykst fóðurffamleiðslan.
Grunsemdir eru uppi um að
þungmálmar, leifar af fúkkalyfjum,
bakteríum, díoxíni og öðmm eitur-
efnum hafi komist í fóðrið. í fram-
leiðslunni em einnig endumnnin
hræ af sjúkum dýmm. Fólk er síð-
an endastöð þessarar fæðukeðju.
Eftir umfjöllum sjónvarpsins um
málið tók þýska verslanakeðjan
Edeka allar ffanskar kjötvömr úr
sölu í verslunum sínum.
Engar gmnsemdir hafa fallið á
starfsemi fyrirtækisins Rethmanns í
Þýskalandi í þessu sambandi. Mál-
ið tengist einungis Frakklandi og
Rethmann varpar sökinni alveg á
franska fyrrverandi eigendur Saria.
Heimildir era jafnframt fyrir því að
framleiðslan sé nú komin í eðlilegt
horf, en það gerðist fyrst eftir að
hneykslið var afhjúpað.
Þetta mál á sér hins vegar fleiri
hliðstæður í Frakklandi. Hversu
margar veit enginn. Iðnaðarráðu-
neytið þar í landi skortir mannskap til
að halda uppi nauðsynlegu effirliti.
Frakkland ber til baka
ásakanir
Fregnir af ólöglegu framferði
fyrrnefnds fransks fyrirtækis leiddi
til þess að Embættismannaráð ESB
krafði Frakkland um skýringu á
því sem gerst hafði, jafnframt því
sem aðalritari landbúnaðardeildar
ESB, Guy Legras, hefur krafið
frönsku ríkisstjórnina um taf-
arlausar aðgerðir til að stöðva
ólöglegar aðferðir við fóðurfram-
leiðslu.
Franskt dagblað hafði þegar í júní
á þessu ári birt grein um þessar
ólöglegu aðferðir við fóðurfram-
leiðslu og ESB er nú gagnrýnt fyrir
að hafa ekki bmgðist fyrr við.
Sambandið ber hins vegar því fyrir
sig að það taldi það í verkahring
franskra yfirvalda að taka á málinu,
en nú hefur ESB ráðið eftirlitsmenn
til að fylgjast með framleiðsluað-
ferðum fóðurfyrirtækja í Frakk-
landi.
Órói í Þýskalandi
Yfirvöld í Frakklandi fúllyrða að
neytendur geti hér eftir sem hingað
til treyst hreinleika franskra kjöt-
vara. Lyfjaleifar eða önnur meng-
un hefúr ekki komið þar fram, fúll-
yrða þau. Þó er viðurkennt að íjög-
ur tilfelli hafi fundist um mistök í
matvælaframleiðslu en jafnframt er
lögð áherslu á að öll matvælafram-
leiðsla fari nú ffam eftir gildandi
reglum. Samkvæmt rannsókn
franskra yfirvalda hefúr mengun ffá
úrgangi aldrei komist alla leið í
lokaafurðina.
Fregnir um úrgang í dýrafóðri
vökti strax óróa meðal þýskra neyt-
enda. Yfirvöld þar i landi telja hins
vegar að lítil hætta sé á að matvæli
hafi mengast. Starfsmaður stofnun-
ar um neytendavemd og dýralækn-
isfræði í Berlín gagnrýnir hins veg-
ar ffönsk yfirvöld fyrir að reyna að
þagga niður málið, þar sem allt
bendir til þess að þeim hafl verið
kunnugt um það í hálft ár áður en
það komst upp.
(Landsbygdens Folk nr. 34/1999).
42 - FREYR 10/99