Freyr

Árgangur

Freyr - 01.09.1999, Blaðsíða 43

Freyr - 01.09.1999, Blaðsíða 43
Vísundarœkt í Danmörku Vísundarækt er hafin í Danmörku. Það eru hjónin Yvonne og Niels Henrik Ove, sem búa á Fjóni, sem hófu þessa ræktun árið 1993 þegar þau keyptu eitt naut og þrjár kvígur frá Miðvesturríkjum Bandaríkjanna. Búgarður þeirra heitir “Ditlevsdal Bison Farm” og er 50 hektarar að stærð. Þar eru þau nú með 150 gripi, þar af 50 kýr og er þetta stærsta vísundabú í Norður- Evrópu. Búið hefur fengið mikla athygli íjölmiðla og hafa nú sex aðrir bændur í Danmörku tekið upp vís- undarækt með kaupum á lífdýrum frá fýrsta búinu. Þá er vísundaeldi að dreifa sér til fleiri Norðurlanda, Finnar eru þegar komnir með gripi, sænskur bóndi hefur samið um að taka við gripum í desember og norskir bændur hafa sýnt þessari búgrein áhuga. Þá hafa komið fyr- irspumir frá Þýskalandi. Fullvaxnir vísundar líta ógnvæn- lega út en em í raun rólegar og þægilegar skepnur. Við fóðrun þeirra eða beit þarf einkum að gæta þess að prótein í fóðri þeirra sé lágt, ella drepast þeir. Þeir em því fóðr- aðir með heyi og hálmi auk þess sem kálfar og kvígur fá fóður- blöndu með litlu próteini. Vísundunum er slátrað þegar þeir eru 500-600 kg á þyngd ogfallþungi þeirra er 200-250 kg. Á bújörð skammt frá Óðinsvéum á Fjóni eru norðuramerískir vísundar á beit. Alls eru sjö vísundabú I Dan- mörku. Til að koma á fót vísundabúi þarf þrjár kvígur og eitt naut og kaup- verð þeirra er um 100 þús. d.kr. eða rúmlega ein milljón í.kr. Vísundar em hópdýr og þrífast ekki i hópi með minna en ijómm dýmm. Þeg- ar þeim fjölgar er hins vegar nóg að hafa eitt naut fýrir hverjar 10 kýr. Nautin lynda vel hvert við annað og koma sér upp sínum eigin innbyrðis „valdastiga“. Eldisgripum vísunda er slátrað eins og hálfs árs. Þá hafa þeir náð um 500 - 600 kg lifandi þunga og 200-250 kg fallþunga og fyrir kjöt- ið fást nú um d.kr. 75 á kg. Kjötið er eftirsótt og minnir á villibráð. Vemleg eftirspum er einnig eftir vísundahúðum og hauskúpum sem notað er til skrauts. (Unnið upp úr Landsbladet nr. 35/1999). FREYR 10/99 - 43

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.