Freyr

Árgangur

Freyr - 01.09.1999, Blaðsíða 5

Freyr - 01.09.1999, Blaðsíða 5
Margoft hefur verið bent á að sauófjárbúskapur geti ekki staðið undir byggðaste&u. Margt bendir samt til þess að í nýjum samningi kunni meira en áður að reyna á það að samræma á farsælan hátt fram- kvæmd, sem treystir þátt sauðíjár- búskapar sem grundvöll atvinnu- starfsemi á ákveðnum svæðum, ef tryggja á almennan stuðning við greinina til lengri tíma. Þessu skylt er spurningin um s k i p t i n g u stuðningsins til þeirra sem hafa meginframfæri sitt af íjárbú- skap og þeirra sem eru með slíka fram- leiðslu sem hliðarstarf við aðra atvinnu. Margir munu sammála því að tæpast geti orðið umtals- verður sauð- fjárbúskapur hér á landi í ná- inni ffamtið ef ekki verða skil- yrði fyrir hendi hjá talsverðum hópi bænda til að hafa afkomu sína af búgreininni. Þróunin er hins vegar augljóslega á þann veg að lif- vænlegrar afkomu er tæpast að vænta í framtíðinni nema af fjárbúum sem eru talsvert stærri einingar en flest ijárbú hér á landi eru í dag. Þess vegna hlýtur að verða að skapa skilyrði til stækkunar einhverra búa frá því sem nú er. Þessu fylgir um leið sú augljósa staðreynd að þeim, sem stunda þessa búgrein í framtíðinni, hlýtur að fækka umtalsvert á næstu árum, jafnvel þó að það takist að skapa markað fyrir aukna fram- leiðslu með arðbærum útflutningi. Þau atriði, sem öðru fremur virð- ast mjög skiptar skoðanir um, og ólík sjónarmið eru sett fram um, eru framleiðslutenging stuðningsins í samningnum, viðskipti með greiðslumark og hvort í samningn- um eigi, eða megi, vera hvati til aukinnar framleiðslu. Framleiöslutenging í síðasta samningi voru tengsl á milli framleiðslu og stuðnings nán- ast að öllu leyti rofín, þ.e. aðeins voru gerðar ákveðnar lágmarks- kröfúr um fjölda ásetts fjár. Reynsl- an af þessari breytingu er um margt jákvæð. Á þennan hátt skapaðist miklu meira svigrúm hjá hverjum og einum ffamleiðenda til að að- laga framleiðslu sína sem mest að eigin aðstæðum. Um leið hefur áreiðanlega að vissu marki verið dregið úr framleiðsluhvata innan greinarinnar. Hins vegar má ef til vill sjá þess ýmis merki að slíkt kerfí muni í tímans rás þróast þannig að það markmið samningsins að hann sé stuðningur við sauðfjárframleiðsl- una sem slíka verði sífellt óskýr- ara. Þeim hugmyndum hefur verið varpað fram að einhver hluti stuðn- ings í nýjum samningi yrði fram- leiðslutengdur. Nærtækustu rök fyrir því eru að sjálfsögðu þau sem þegar eru nefnd að um er að ræða samning um stuðning við sauðfjár- framleiðslu. Því er fátt eðlilegra til að tryggja slíkt en að stuðningur sé tengdur framleiðslu. Þau rök sem færð eru gegn frek- ari framleiðslutengingu eru að slíkt muni hvetja til aukinnar fram- leiðslu sem sé ákaflega vafasamur leikur við núverandi markaðsað- stæður. Einnig er á það bent að frekari framleiðslutenging fari nokkuð á skjön við þær skuldbind- ingar sem eru í al- þj óðasamþykktum sem Island er aðili að. í þessu sam- hengi er vert að minna á stöðu þess hóps bænda sem á gildistíma núver- andi búvörusamn- ings hefur haldið ijáreign sinni skv. skuldbindingum 0,7 reglunnar. Á síðasta ári voru um 15% heildar- greiðslumarks í greininni bundin slíkum samning- um. Þátttaka í því hefur hins vegar verið mjög breyti- leg eftir landshlutum, engin í sumum sýslum, en allt að fjórð- ungur greiðslumarks bundinn þann- ig þar sem mest er. Einn þáttur sem enn má benda á sem rök fyrir framleiðslutengingu, sem hugsanlega byggði á hreyfan- leika í greiðslumarki, er að núver- andi viðmiðanir eru mjög komnar til ára sinna og að það sé tæpast eðlilegt að þær standi óhaggaðar um aldur og ævi. Viöskipti með greiðslumark í núverandi búvörusamningi hef- ur greiðslumarkið verið bundið lög- býlunum eftir að sala greiðslu- marks var stöðvuð eftir fyrsta ár samningsins. Með því að fram- leiðslutenging var rofin voru mörg FREYR 10/99 - 5

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.