Freyr

Árgangur

Freyr - 01.09.1999, Blaðsíða 19

Freyr - 01.09.1999, Blaðsíða 19
gefíð á garða á innistöðu ásamt moði sem hlutfalli af heygjöfínni. Heyforði búsins var ágætur að gæðum eins og undanfarin ár. Yfír veturinn var ánum eingöngu gefið rúllubundið hey, en þurrhey fengu aðeins bomar ær á innistöðu og tví- lembur eftir að þær komu út. Að jafnaði vom 0,35 FE í kg af rúllu- bundna heyinu og 0,63 FE í kg af þurrheyinu. Þurrefni rúllanna var að meðaltali 57%, en sveiflaðist frá 42% til 63%. Þurrasta heyið var gefíð frá febrúarbyrjun og fram úr og var meðalþurrefni þess 60%. Meðalleifar ánna á rúlluheyinu yfir veturinn vora 3,9% eða um 100 g á dag eins og undanfarin ár. Að öðm leyti var fóðmn ánna hagað svipað og undanfama vetur. Byrjað var að gefa tvævetlum fiskimjöl seint í febrúar, um 50 g á dag á á, sem síð- ar var aukið í 60 g í marsbyrjun en eldri ær fengu 50 g á dag frá miðjum april til burðar. Bornar ær á húsi fengu þurr- hey að vild og tvílembur 200 g af kögglaðri há- próteinblöndu. Eftir að tvílemb- ur komu á tún höfðu þær fíjáls- an aðgang að þurrheyi og með því var þeim gefið um 200 g af. hápróteinblöndu til maíloka. Ein- lembur fengu eingöngu rúllu- bundna töðu en ekkert kjamfóður. Utiheygjöf var hætt um mánaðamótin maí-júní. Meðal- fóður á á yfir veturinn nam alls 201,7 FE, eða 0,99 FE á dag til jafnaðar, sem er 0,06 FE minna á dag en sl. vetur. Afurðir ánna Af 456 ám, sem lifandi voru í byrjun sauðburðar, bára 440 ær 847 lömbum eða 1,93 lambi á á til jafnaðar, sem er 0,05 lömbum fleira en vorið 1997. Ein ær lét í febrúar og var ekki vitað um fóst- uríjöldann. Algeldar urðu 15 ær (3,3%), einlembdar 81 (17,8%), tvílembdar 315 (69,1%), þrí- lembdar 40 (8,8%) og ljórlembdar 4 (0,9%). Af 847 lömbum vora 22 dauð- fædd (2,6%), 9 dóu í fæðingu (1,1%) og 27 lömb misfórast af ýmsum orsökum (3,1%), s.s. af vanþroska, hnjaski og í skurðum og dýjum eftir að lambær vora settar út og til fjallreksturs 6. júlí. Lamba- vanhöldin, frá því að ær komu út og til fjallreksturs, era nú til muna meiri en undanfarin vor og stafa íyrst og fremst af því að 17 full- burða lömb hurfú sporlaust af túni og í heimalandinu. Líklegt er að tófa sé orsakavaldurinn, þar sem lambamerki búsins fundust við greni, sem unnið var í landi Máva- hlíðar. Frá fjallrekstri til haustvigtunar töpuðust 27 lömb (3,3%). Þetta eru sömuleiðis meiri vanhöld en oftast áður en orsakir þeirra era ókunnar. Alls misfórust 85 lömb undan ám, eða 10 %, sem er 1,2 prósentu meiri lambavanhöld en sumarið áður. Til nytja komu 762 lömb eða 167 lömb eftir hverjar 100 ær, sem lif- andi vora i byrjun sauðburðar, sem er 1 lambi færra en haustið 1997. Meðalfæðingarþungi lamba er sýndur í töflu 3. Meðalfæðingarþungi 843 lamba (4 morkin tví- og þrílembingsfóstur vora ekki vigtuð), sem vigtuð voru nýfætt, var nú 3,89 kg, sem er 190 g minni þungi en sl. vor. Til saman- burðar er sýndur fæðingarþungi lamba frá 1991. Tafla 4 sýnir meðalvaxtarhraða Tafla 2. Meöalfóður á á Mánuður Fóður dagar Heyfóður kg/dag Heyleifar % Kjarnfóður g/dag FE á dag FE á mánuði Þurrhey Rúllur Fiskim. Fóðurbl. Nóvember 20 2,75 3,6 0,76 15,2 Desember 31 2,89 3,3 0,92 28,6 Janúar 31 2,53 4,8 0,83 25,6 Febrúar 28 2,39 5,8 1 0,90 25,2 Mars 31 2,75 3,4 18 1,14 35,3 Apríl 30 3,09 4,7 43 1,22 36,2 Maí 31 0,72 1,47 1,5 32 76 1,15 35,7 Júní 3 26 0,03 0,1 Fóður alls á á 205 22,3 515,7 3,87 2,87 2,43 0,99 201,7 FREYR 10/99 - 19

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.