Freyr

Árgangur

Freyr - 01.09.1999, Blaðsíða 25

Freyr - 01.09.1999, Blaðsíða 25
Upplýsingar um afkvæmi sæðingarstöðvahrúta á haustdögum 1999 Fyrir því er löng hefð að birta á hverju hausti nýjustu til- tækar upplýsingar um af- kvæmi þeirra hrúta sem víðtækust reynsla er af i ræktunarstarfínu, þ.e. þeirra hrúta sem undanfarin ár hafa verið notaðir á sæðingar- stöðvunum. í töflu sem fylgir greininni eru hefðbundnar upplýs- ingar um einkunnir sæðingar- stöðvahrútanna. Þar eru eins og á síðasta ári upp- lýsingar um dætur þessara hrúta, sem tilorðnar eru eftir notkun á sæði frá sæðingarstöð, takmarkað- ar við upplýsingar frá haustinu 1998. I töflunni eru upplýsingar um þá hrúta sem koma úr uppgjöri með upplýsingar fyrir fleiri en 100 dætur, auk þess sem þar ætti að vera fínna alla hrúta sem notaðar hafa verið á stöðvunum síðustu þrjú árin. Undanskildir eru að vísu forystuhrútarnir. Elstu hrútarnir eiga margir að- eins mjög fullorðnar dætur en þrátt fyrir að nokkuð sé um liðið síðan þessir hrútar voru í notkun er ljóst að þessi mikli íjöldi dætra, sem enn er í framleiðslu, er ávísun á að mikilla áhrifa þeirra gætir enn í ræktun margra hjarða. Fjöldi þessara fullorðnu dætra getur líka einnig verið viss vísbending í sambandi við endingu á ám undan einstökum hrútum, atriði sem aldrei hefur að nokkru marki verið hugað að í íslenskri sauðQárrækt þó að út frá rannsóknum síðustu ára á öðrum búijártegundum megi fullyrða að þar hljóti mælanlegur erfðaþáttur að vera með i för. Miðað við aldur þessara hrúta og umfang á notkun þeirra á sínum tíma vekur þarna helst athygli eftir Jón Viðar ÍíiMI r , Jónmundsson Wy# Bænda- samtökum íslands mjög stór hópur dætra Lopa 84- 917 og einnig er greinilegt að dæt- ur Vísis 85-918 endast með ágæt- um þrátt fyrir hina gífurlegu frjó- semi hjá mörgum þeirra. Eins og margoft hefur áður ver- ið bent á er ekki ástæða til að leggja mikla áherslu á einkunn hrútanna fyrir lömb, en hún mælir nær eingöngu mismun í vænleika hjá lömbum undan hrútunum. Þar kemur eins og ætíð fram ákveðinn munur, en inn á stöðvamar eru að sjálfsögðu aldrei teknir hrútar sem þekktir eru fyrir að gefa létta dilka, en hins vegar er ekki lengur áhersla í vali þessara hrúta á að velja hrúta sem þekktir eru að því að gefa lömb með sérstaka vaxtar- getu, líkt og gætti í vali stöðvar- hrúta fyrir tveim eða þrem áratug- um. Einnig hefur margoft verið á það bent að á síðustu árum eftir að farið var að velja hrútana öðru fremur til nota á stöðvunum vegna mikilla kjötgæða, hefur yfírleitt ekki verið komin nein reynsla á þá sem ærfeður eða í það minnsta ákaflega takmörkuð þegar þeir fara til nota á stöð. Því þarf það vart að vekja furðu að fram komi hrútar sem bregðast vonum í þess- um efnum. Þeir eru að vísu allir valdir með tilliti til ætternis, en slíkt val vegna þátta eins og frjó- semi og mjólkurlagni getur aldrei orðið verulega öruggt. Jafnt yfir fá stöðvarhrútarnir ákaflega jákvæðan dóm sem ær- feður. Ástæða er til að benda á að þeir kunna í þessu efni örlítið að vera ofmetnir vegna þess vals m.t.t. frjósemi og afurðasemi sem víða má ætla að sé fyrir hendi á ám sem sæddar eru. Fyrir sliku vali, ef það á sér stað, er ekki leið- rétt í núverandi einkunnakerfi. Eins og áður eru dætraeinkunnir hrúta sem hafa frjósemiserfðavísi (Vísis 85-918, Svepps 85-941 og Fjarka 92-981) nokkuð hærri en annarra hrúta og tæplega saman- burðarhæfar við þá vegna þessa sérstæða eiginleika. Meginhluti hyrndu hrútanna, sem hafa haft mest áhrif síðustu ár, sýnir ákaflega jákvæða mynd. Fóli 88-911 frá Hesti á mjög stór- an hóp dætra, sem sýna með mikl- um ágætum bæði frjósemi og mjólkurlagni og hið sama verður einnig sagt um Goða 89-928 frá Oddgeirshólum, útkoma dætra hans er með fádæmum góð. Fóstri 90- 943 frá Hjarðarfelli á einnig stóran hóp dætra með glæsilega útkomu. Eins og undanfarin ár er útkoman hjá dætrum Dela 90-944 frá Hesti einnig með ágætum. Dætur Þéttis 91-931 sækja sig greinilega með aldrinum og niður- staða hans nú er góð. Dætur Gosa 91- 945 frá Hesti koma eins og áð- ur vel út. Þá er sú mynd sem dætur Hnykks 91-958 frá Skeiðháholti sýna um frjósemi allt önnur en meðan aðeins voru mjög ungar dætur hans á skýrslu. Þessar ær eru ágætlega frjósamar, en mjólk- urlagni þeirra er tæpast nema í FREYR 10/99-25

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.