Freyr

Årgang

Freyr - 01.09.1999, Side 8

Freyr - 01.09.1999, Side 8
um að leita eftir því. Við þetta bættist það að mig langaði mikið um þetta leyti að fara að fást við búskap. Hvað tók þarna við? Ég var á sjó um veturinn, á togara fram að jólum en á bát í Þorláks- höfn til vors. Þá tók ég Bólið á leigu. Jörðina átti þá María Eiríksdóttir, ekkja Bjarna Guðmundssonar, en þau höfðu búið þar. Börn þeirra voru Sigrún í Haukadal, kona Sigurðar Greipssonar, og Eiríkur, hótelhald- ari í Hveragerði. Þetta er árið 1960 sem ég fer að búa á Bóli og bý við sauðfé. Nokkrum árum síðar, eða árið 1964, fór ég að kenna í forfollum hér í bamaskólanum í Reykholti og í framhaldi af því er ég í kennslu með búskapnum fram yfir 1980. Árið 1972 fór ég að kenna stærð- fræði við Lýðháskólann í Skálholti, en rektor hans þá var séra Heimir Steinsson. Þar er ég stundakennari fyrsta veturinn en er þar svo átta ár í föstu starfi, við ýmiss konar kennslu, bókhald og reikningsskil, þ.e. til ársins 1981, en skólinn var svo lagður af sem slíkur fáeinum ámm síðar. Hvernig skóli var Lýðháskólinn í Skálholti? Fyrirmyndin var dönsku lýðhá- skólarnir. Þama vom kenndar al- mennar námsgreinar, auk þess sem mikil rækt var lögð við þroska ein- staklingsins. Það nýttist mér þama að ég hafði starfað mikið að félags- málum, m.a. í ungmennafélagi sveitarinnar, en sú hreyfmg er af sama meiði og lýðháskólarnir, þ.e. hugsjón Grundtvigs. Það var mikil þörf fyrir svona skóla á þessum tíma. Þá var landsprófið við lýði, og töluvert af ungu fólki þoldi ekki hörkuna í því, þó að það væri vel gefið. Við fengum nokkuð af fólki fyrstu árin sem hafði guggnað frammi fýrir því og það þurfti ekki annað en að láta það átta sig á stöðu sinni til að koma því áfram. Lýðháskólinn var ekki blindgata og það gekk vel að fá hann viður- kenndan þannig að nemendur kom- ust áfram, t.d. i Fóstmskólann og víðar. Hins vegar er það yfirleitt regla í lýðháskólum að þar era ekki tekin próf. Síðan breytast aðstæður í skóla- j kerfmu, ljölbrautaskólarnir koma til sögunnar og langflestir fram- haldsskólar verða lýðháskólar á sinn hátt þannig að fólk getur farið í gegnum skólana á sínum hraða og endurtekið eitt og eitt próf. Hvað tekur svo við eftir Skál- holtsveru þína? Árið 1980 þarf ég að víkja frá Bóli. Þá vill dóttir eigandans, Eiríks Bjarnasonar í Hveragerði, fara að búa þar. Ég fæ þá hluta af Arnarholtinu til ábúðar og bý hér í hjáleigubúskapi í fjögur ár. Þá bjuggu hér fyrir hjónin Olafur Jónasson frá Kjóastöðum og Theó- dóra Ingvarsdóttir, sem er héðan frá Amarholti. Síðan seldu þau hjónum frá Selfossi, Smára Guð- mundssyni og ídu Stanleysdóttur, jörðina, en þau höfðu reyndar búið í Upphólum hér í sveit um 30 áram áður, en sú jörð var lögð undir af- réttinn árið 1958. Þau kaupa jörð- ina árið 1982, en það var ekki mik- ill grandvöllur fyrir þeirra búskap. Þau höfðu ekki búið síðan um 1950 og frá þeim tíma hafði margt breyst í bústörfum, auk þess sem Smári var mikið í vinnu annars staðar. Þau vildu því hætta eftir tveggja ára vera hér, og ég fæ frænda minn, Guðna Lýðsson frá Gýgjarhóli, til að kaupa jörðina á móti mér. Við eigum jörðina saman enn, og ég bý hér einn með hátt á annað hundrað fjár. Svo kemur að afskiptum þínum af Landssamtökum sauðfjárbœnda. Já, ég tek mikinn þátt í því þegar þau era stoíhuð árið 1985. Jóhann- es Kristjánsson á Höfðabrekku er fyrsti formaður þeirra. Ég fer í stjóm samtakanna árið 1989, verð formaður þeirra árið 1991 og gegni því starfi til ársins 1997. Eftir að ég tek við formennskunni tekur það alla krafta mína ásamt með bú- skapnum. Um það leyti er enginn starfsmaður hjá LS þannig að ég er líka með alla skrifstofuvinnuna. Síðan er margt sem tengist for- mennskunni, svo sem seta í Fram- leiðsluráði, Verðlagsnefnd búvara og stjóm ÍSTEX. Hvað var einkum við að glíma I málefnum sauðfjárrœktar á þessum tíma? Þetta var ákaflega erfíður tími fyrir sauðfjárræktina, bæði fyrir bændur i greininni og okkur sem vorum í forystu. Það varð sölu- samdráttur innanlands, bæði vegna aukinnar samkeppni við annað kjöt, einkum svína- og fuglakjöt, en einnig vegna þess að pitsur og aðrir tilbúnir réttir vora að hasla sér völl. Á hinn bóginn höfðu útflutnings- bætur á búvöram verið lagðar af, sem var langmesta breytingin fyrir sauðfjárræktina um langt skeið. Það var auðvitað erfítt að taka þessu en menn gerðu sér vonir um að geta haldið innanlandssölunni í horfinu, en það varð ekki. Um þetta leyti fara neytendur að sjá fyrir alvöra muninn á ffystu kjöti og ófrystu og þar hafði ferska kjötið betur. Auk þess var að stór- fjölga fólki, sem hafði verið lang- dvölum erlendis, við vinnu og nám, og aukin ferðalög höfðu sín áhrif. Þar kynntist fólk nýjum matarvenj- um. Enn má bæta við að á þessurn tíma komu til sögunnar hér á landi austurlenskir matsölustaðir sem seldu ódýra rétti og notuðu lítið kindakjöt. Vöruþróun í kindakjöti var held- ur ekki mikil um þetta leyti? Nei, hún hafði náttúrlega verið afar lítil. Kindakjöt var að lang- mestu leyti selt frosið og niðursag- að. Þegar hér er komið er orðið mikið um það að fólk tæki ákvörð- 8 - FREYR 10/99

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.