Freyr

Volume

Freyr - 01.09.1999, Page 15

Freyr - 01.09.1999, Page 15
Mynd 5. Gjafavagn sem gengur á garðaböndum. þama undir sem lokar rifunni og þá er vandamálið úr sögunni. Slæð- ingur er ekki vandamál með nýju gjafagrindurnar, sú er reynsla bænda. Mynd 6. Gisli Þórðarson, Mýrdal, með gjafavagninn. bóndi Gjafagrindumar eru framleiddar í Vímeti hf. í Borgamesi, þær eru nokkuð dýrar enda vönduð smíð. Þó að stofnkostnaðurinn sé mikill skilar hann sér fljótt í bættri vinnu- aðstöðu og tímasparnaði. Frá því að gjafagrindumar voru settar niður á Lambeyrum hafa selst 80 stk. og almenn ánægja ríkt með þessa tækni. Gjafavagnar Gjafavagnar vom notaðir í þrem- ur fjárhúsum, allir til að flytja rúllu- hey á garða. Þessa vagna má allt eins nota til flutninga á þurrheyi. Vagnamir vom nokkuð mismun- andi að gerð. Á Hesti er í notkun vagn frá Léttæki hf. á Blönduósi, hann gengur á garðaböndunum og er fluttur á milli garða á öðmm vagni. Þessi vagn er um 0,8 rúm- metra. Svona vagnar gætu hentað vel þar sem stíga þarf upp í garð- ana, þetta er meðfærilegt tæki og vönduð smið (5. mynd). í Mýrdal er botn garðanna jafnhár og hlöðu- gólfið, þar er heimasmíðaður gjafavagn sem gengur eftir garðabotninum inn í hlöðu (6. mynd). Vagninn er rúmur 1 rúm- metri og hey úr einum vagni nægði á hvern garða sem við voru 130 ær. Þessi vagn þjónar hlutverki sínu með ágætum, er léttur og meðfærilegur. Gallinn við gjafavagnana í Mýrdal og á Hesti er að handmoka þarf heyinu ofan í þá. Á Lambeyrum eru í notkun heimasmíðaðir vagnar sem ganga eftir garðaböndum inn í hlöðu. Vagnamir eru einföld smíð, léttir, grunnir og opnir í báða enda. Ein rúlla er hífð á tvo vagna, skorin í tvennt á milli þeirra svo að helm- ingur rúllunnar er á hvorum vagni. Nauðsynlegt er að brík sé á garða- böndunum svo að vagninn fari ekki út af þeim. Snjöll hönnun og smíði, sem hentar vel þar sem garðabönd- in eru jafnhá hlöðugólfinu. Okkur er kunnugt um eina gerð gjafavagna enn, þeir vagnar ganga eftir brautum í ijárhúsloftinu og inn í hlöðu. Dæmi um þetta eru fjár- húsin á Grund í Kirkjubólshreppi á Ströndum, þar er fóðrað með vot- heyi. Slæðingur Slæðingur getur verið vandamál í fjárhúsum, þ.e. ef ekki er taðgólf. Helstu áhrifaþættir á slæðing eru gæði og gerð fóðurs, þéttleiki á garða og gjafatækni. Að öllum lík- indum hefur garðagerð áhrif en við gátum ekki merkt það í þessum húsum. Almennt hefur verið talið Mynd 7. Garðaböndin á Varmalœk. Teppið nœr nokkuð inn i garðann. FREYR 10/99 - 15

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.