Freyr

Árgangur

Freyr - 01.09.1999, Blaðsíða 27

Freyr - 01.09.1999, Blaðsíða 27
Svanur 92-966 451 102 84 -14 89 Skjanni 92-968 910 102 278 5 107 Fenrir 92-971 743 100 266 10 109 Hörvi 92-972 1544 101 506 6 108 Melur 92-978 152 111 57 -5 96 Spakur 92-979 234 101 62 10 107 Fjarki 92-981 667 101 106 40 135 Skreppur 92-991 241 102 29 2 105 Njörður 92-994 368 100 98 5 107 Bjartur 93-800 562 102 (58 -2 102) Héli 93-805 80 104 (20 14 112) Mjöður 93-813 (252 95 83 5 104) Njóli 93-826 (410 99 67 11 108) Galsi 93-963 1170 100 364 0 98 Sólon 93-977 828 99 232 -3 101 Bútur 93-982 1356 101 301 4 107 Djákni 93-983 1141 101 235 -1 98 Glampi 93-984 1102 101 408 4 105 Mjaldur 93-985 1000 101 161 -5 95 Moli 93-986 1181 101 97 0 102 Bloti 93-987 182 100 39 -6 100 Bruni 93-988 305 100 39 3 104 Penni 93-989 353 105 109 16 116 Askur 93-992 191 102 44 -9 97 Bylur 94-803 489 101 (43 0 101) Jökull 94-804 88 103 (5 19 103) Búri 94-806 285 101 (39 -7 95) Sveppur 94-807 75 105 (22 28 112) Peli 94-810 261 101 (7 -33 92) Amor 94-814 (123 102 27 -21 90) Atrix 94-824 (224 101 81 -11 91) Möttull 94-827 (198 100 67 1 98) Spónn 94-993 416 98 54 0 101 Nói 94-995 96 111 25 11 109 Frami 94-996 515 101 190 -5 94 Kúnni 94-997 483 99 111 -2 97 Svaði 94-998 435 102 136 -2 108 Hnoðri 95-801 653 105 (9 5 102) Bjálfi 95-802 378 102 Serkur 95-811 220 106 Mölur 95-812 298 103 Stubbur 95-815 (129 103 18 1 102) Hnykill 95-820 (123 93 19 17 108) Bassi 95-821 (223 98 23 -3 98) Kópur 95-825 (108 101 14 38 110) Ljóri 95-828 (127 104 40 3 105) Bambi 95-829 (76 102 11 4 101) Veggur 96-816 (42 94) Sunni 96-830 (102 99 5 0 98) Dætrahópar þeirra Móra 87-947, Gnýs 91-967 og Skjanna 92-968 sýna samt allir góða frjósemi vorið 1999 hjá þeim ám sem komið hafa til uppgjörs. Af kollóttum hrútum, sem eru að koma fyrsta sinni til uppgjörs, sýna bæði dætur Héla 93-805 og Búra 94-806 ágæta frjó- semi, en hjá báðum hrútunum er um að ræða fremur fáar veturgaml- ar ær. Af eldri hyrndum hrútum skal sérstaklega nefnt að mjög stór dætrahópur Kletts 89-930 sýnir góða frjósemi og einnig er út- koma að því leyti mjög góð hjá stórum hópi dætra undan Fóstra 90-943, en undan syni hans, Bjarti 93-800, er rúmt hundrað veturgamalla áa komnar í uppgjör og niðurstaða um frjósemi þeirra er ekki neitt sérlega uppörvandi. Veturgamlar dætur Garps 92-808 sýna góða niðurstöðu en eru enn fáar. Feikilega stórir dætrahópar eru komnir í uppgjör undan Skógahrútunum Galsa 93-963 og Djákna 93-983 og eru þeir báðir nákvæmlega á meðaltali um frjó- semi dætra þannig að staða þeirra í þessum efnum lagast ef eitthvað er. Bútur 93-982 sýnir áfram já- kvæða mynd um frjósemi dætra. Þá er stór hópur dætra Kúnna 94- 997 nákvæmlega á meðaltali. Dætur Hörva 92-972 sýna umtals- vert lakari mynd af frjósemi en árið áður og sonur hans, Svaði 94- 998, sýnir hjá nær hundrað dætr- um en dekkri mynd um þennan hóp, og nokkur hópur veturgam- alla áa undan Möl 95-812 er einn- ig kominn í uppgjör með nei- kvæða niðurstöðu um frjósemi. Því miður er ekki að merkja neina jákvæðari mynd en áður um frjó- semi dætra Mjaldurs 93-985 vorið 1999, en tæpt hundrað þeirra er þegar komið til uppgjörs. Þá er niðurstaða um frjósemi vonar- stjörnu síðustu tveggja ára, Mola 93-986, um frjósemi því miður einnig verulega neikvæð, en þar byggir á upplýsingum fyrir veru- lega á annað hundrað dætra. Fá- dæma mikil frjósemi hjá tvævetl- unum undan Penna 93-989 vekur athygli og fylgir í kjölfar gífur- legrar frjósemi hjá þessum ám veturgömlum sem áður er rakið. Hins vegar er niðurstaða um þennan eiginleika hjá tvævetlun- um undan Frama 94-996 því mið- ur rækilega staðfesting þeirrar út- komu sem þær sýndu í frjósemi veturgamlar. Hér hef ég reynt að gera grein fyrir þeim niðurstöðum sem mér sýnast mikilvægastar úr vorupp- lýsingunum, sem þegar liggja fyr- ir, til að taka tillit til þegar ætterni væntanlegra ásetningslamba er metið nú á komandi hausti. FREYR 10/99 - 27

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.