Freyr - 01.09.1999, Blaðsíða 32
5. mynd. Meðáleinkunnir spœnskra neytenda fyrir gœði eldaðra lambalœra.
6. mynd. Meðaleinkunnir islenskra neytenda fyrir gœði eldaðra lambalœra.
af gimbrarlömbum
var aðeins meyrara
og með minna
lifrarbragð og þurr-
ara en kjöt af
hrútlömbum.
Þjálfuðum
smökkurum á
Islandi, í Englandi
og Frakklandi
fannst íslenska
kjötið best.
Ekki var
marktækur munur á
kjöti af íslenskum
sumarlömbum,
ungu 2-3 mánaða
gömlum Merinó-
lömbum sem höíðu
fengið mjólk og
kjarmfóður, svo kjöti
af u.þ.b. 5 mánaða
gömlum fjalla-
lömbum frá Wales.
Rétt þar á eftir kom
kjötið af íslensku
hrútlömbunum sem
slátrað var í desem-
ber og janúar og
kjöt af breskum
geldingslömbum á
svipuðum aldri.
Kjötið af spænsku
Merinó-lömbunum
og islensku sumar-
lömbunum var
meyrast, þá komu
íjallalömbin frá
Wales og svo kjötið
af íslensku hrút-
unum. íslenska kjöt-
ið var frekar þurrt
miðað við annað
kjöt.
Aukalykt af kjöti
var mjög lítil af kjöti af íslensku sum-
arlömbunun en töluvert meiri af kjöti
af hrútlömbunum. Aukalyktin af
hrútakjötinu var samt sem áður ekkert
afgerandi mikil og svipuð og jafhvel
minni en af öðru kjöti. Aukalykt af
fitu var minnst í kjöti af íslensku sum-
arlömbunum og frekar lág í kjöti af
hrútlömbunum. Aukabragð var einn-
ig minnst af kjöti af íslensku sum-
arlömbunum og svipað eða minna í
hrútakjötinu en í öðru kjöti í þessum
hluta tilraunarinnar. Liffarbragð var
mest í íslenska og breska kjötinu,
mest af kjöti af sumarlömbum og
breskum kjamfóðurlömbunum. (
villibráðarbragð). Athyglisverðasta
niðurstaðan er sú að kjötið af hrút-
lömbunum, sem slátrað var í
desember og janúar, fær nokkuð góða
dóma þótt þeir séu ekki eins góðir og
fyrir kjötið af sumarlömbunum.
Bragðgæði læra dæmd
af 36 fjölskyldum í
hverju landi
Fólki í Suður-Evrópu finnst kjöt
af litlum mjólkurlömbum best en
kjöt af lömbum á grasi eða kjam-
fóðri of bragðsterkt. Fólki norðar í
32 - FREYR 10/99