Freyr - 01.07.2001, Síða 35
Búfræðingar frá Hvanneyri vorið 2001
Andrea Ruggeberg Þverholti, Mýrasýslu 311 Borgarnesi
Atli Sveinn Svansson Dalsmynni II, Eyjarhr. 311 Borgamesi
Ágúst Jensson Teigi I, Fljótshlíð 861 Hvolsvelli
Bjarki Fannar Karlsson Hafrafellstungu I, Öxarfirði 671 Kópaskeri
Christine Sarah Arndt Leirulæk, Álftaneshr. 311 Borgarnesi
Erlendur Ingvarsson Stóragerði 18 860 Hvolsvelli
Haukur Þórðarson Raftahlíð 77 550 Sauðárkróki
Heiða Guðný Ásgeirsdóttir Ljótarstöðum, Skaftártungu 880 Kirkjubæjarklaustri
Helgi Ibsen Heiðarsson Grenigrund 15 300 Akranesi
Ingibjörg Björnsdóttir Skútustöðum III, Mývatnssv. 660 Reykjahlíð
Ingvar Pétur Guðbjömsson Drafnarsandi 6 850 Hellu
Ingveldur Geirsdóttir Gerðum, Gaulverjabæjarhr. 801 Selfossi
Margrét Friðriksdóttir Brennigerði, Biskupstungum 801 Selfossi
Oddný Steina Valsdóttir Úthlíð, Skaftártungu 880 Kirkjubæjarklaustri
Ólafur Gíslason Mýrarvegi 122 600 Akureyri
Róbert Öm Jónsson Réttarholti, Skagafirði 560 Varmahlíð
Sigríður Júlía Brynleifsdóttir Raftahlíð 77 550 Sauðárkróki
Sigurður Karl Jóhannsson Sunnuhlíð 5 603 Akureyri
Sigurjón Einarsson Hvanneyri 311 Borgarnesi
Sunna Ingvarsdóttir Hvítarhlíð, Strandasýslu 500 Brú
Sæmundur Jón Jónsson Árbæ, Mýmm 781 Höfn
Þórdís Þórisdóttir Miðkoti, V.-Landeyjum 861 Hvolsvelli
Búfræðingar útskrifaðir úr fjarnámi vorið 2001
Guðný Jakobsdóttir Syðri-Knarrartungu, Breiðuvík 355 Ólafsvík
Margrét Þórðardóttir Furubrekku, Staðarsveit 355 Ólafsvík
Ólafur Sigvaldason Ásbrún, Kolbeinsstaðahreppi 311 Borgarnesi
vinsældum að fagna og er þar leið
fyrir starfandi bændur, sem eiga
ekki heimangengt um lengri tíma,
að sækja sér grunnþekkingu í
starfs.námið við Bændadeild.
Borgarfjarðarsveit bindur miklar
væntingar við vaxandi háskólasam-
félag á Hvanneyri en ákveðið er að
sveitarfélagið standi þar fyrir bygg-
ingu skrifstofuhúsnæðis og verður
það kærkomin vítamínsprauta í
þeirri uppbyggingu sem nauðsyn-
leg er á næstu misserum. Þetta nýja
húsnæði mun t.d. hafa það í för
með sér að Vesturlandsútibú Veiði-
málastofnunar flyst úr Borgarnesi
að Hvanneyri.
Af hálfu landbúnaðarráðuneytis-
ins talaði Sveinbjöm Eyjólfsson en
hann flutti skólanum kveðju ráð-
herra sem var vant við látinn þenn-
an dag. Fram kom hjá Sveinbirni
að ljóst væri að sú breyting, sem
gerð var á starfsemi stofnunarinnar
með nýju lögunum frá 1999, væri
kostnaðarsamari en menn hefðu
talið í fyrstu. Því þyrfti að vinna
ötullega að því að tryggja skólan-
um fjármagn til að tryggja kraft-
mikinn rekstur hennar. Þá kom
fram hjá Sveinbimi, eins og rektor,
að ntikilvægi væri að hraðað verði
byggingu nýs kennslu- og rann-
sóknafjóss á Hvanneyri til eflingar
nautgriparæktinni í landinu.
Búfræðikandidatar
Nöfn og upplýsingar um bú-
fræðikandidata birtust í síðasta tbl.
Freys, nr. 8/2001. Hæstu meðal-
einkunn á kandidatsprófi hlutu:
1. Anna Margrét Jónsdóttir, . .8,7
2. Stefanía Nindel, ........8,5
Búfræðingar
Hæstu meðaleinkunn á búfræði-
prófi hlutu:
1. Oddný Steina Valsdóttir, .8,95
2. Haukur Þórðarson,........8,63
3. Ágúst Jensson,...........8,54
Moli
frskum bændum í
fullu starfi fækkar
I Irlandi eru nú um 123 þúsund
bújarðir og hefur fækkað um 10
þúsund á tveimur árum.
Bújarðir, sem bændur reka í
fullu starfí, eru um 34 þúsund og
af þeim er helmingur með
mjólkurframleiðslu.
Búskapur í hlutastarfi er
stundaður á 42 þúsund jörðum,
en á um 47 þúsund jörðum er
breytingaferli í gangi þar sem
búskap verður annað hvort
breytt í hlutastarf eða ábúendur
fara á eftirlaun. Áætlanir gera
ráð fyrir að fyrir árið 2010 verða
einungis 20 þúsund jarðir þar
sem búrekstur verður rekinn í
fullu starfi á írlandi.
(Bondebladet nr. 27-28/2001).
fReVR 9/2001 - 35