Freyr

Volume

Freyr - 01.07.2001, Page 36

Freyr - 01.07.2001, Page 36
Þroskun og þurrkun byggkorns á akri Sagt frá athugun á Hvanneyri haustið 2000 Fullþroskunarskeið bygg- koms er áhættusamt tíma- bil, bæði vegna eiginleika komsins og veðráttunnar sem þá ríkir jafnan. Fyrir verkun og geymslu byggsins skiptir miklu að ná því sem þurrustu en áður en korn tekur að hrynja úr öxum. Dæmi eru um að hvassviðri í þann mund, sem byggið er að verða skurðarhæft, hafi stórspillt annars góðri uppskeru. Endanlegt kostn- aðarverð byggsins ræðst m.a. af uppskerumagninu sem til nytja kemur. Hérlendis er verið að rækta bygg við nyrstu mörk. Við tak- markaða sprettu þess skiptir enn meira máli en ella að velja vinnu- brögð við skurð og verkun sem tryggja góða nýtingu uppskerunnar. Þurrkstig byggsins, þroski og foktap Eftir skrið hleður byggaxið í sig þurrefni uns líffrœðilegum full- þroskci er náð. Hvort sá þroski fellur saman við skurðarhœfi byggsins ræðst af aðferðum við skurð og verkun þess. Notkun sláttuþreskis krefst þess að þurr- efni byggsins sé orðið 80% ef miðað er við reglur nágranna- landa. Hérlendis hafa bændur hins vegar skorið mun rakara bygg með undragóðum árangri. Erlendis er það ekki óþekkt að skilja að skurð og þreskingu korns, grasfræs, bauna o.fl., í því skyni að minnka hættu á uppskerutapi með foki, dreifa vinnuálagi á þreskivél- amar og draga úr fjárfestingarþörf í þeim.' Þá er komið slegið í múga 1) Sjá Culpin 1987: Farm Machinery, 11. útg. BSP Professional Books, 450 bls. Bjarni Guðmundsson, Landbúnaðar- háskólanum á Hvanneyri og látið þorna og þroskast í þeim en þreskt síðar. Má segja að þar sé hin forna aðferð við komslátt og þresk- ingu endurborin. Athugunin, sem hér verður sagt frá, fólst í því að kanna þurrkunar- feril byggs á akri, bæði skorins og óskorins, þroskun þess og korntap úr því. Hugmyndin að henni var m.a. sótt til nýlegra rannsókna Bú- tæknistofnunarinnar í Alberta í Kanada á mismunandi aðferðum við komskurð. Þar í landi er tví- skipting uppskerustarfanna sögð vera algeng. Kornsláttur og - þresking skilin að Athugunin var gerð með sexraða bygg (Arve). Hinn 10. september 2000 var bygg skorið á tveimur að- skildum reitum er mislangt voru komnir í þroska, hér nefndir A og V. Byggið var þó allt enn græn- þroska og ekki farið að spillast af veðrum. Byggið var skorið en látið óþreskt og var stubbhæð höfð um 20 cm. Handfylli komstanga var knippuð saman og lögð til þurrks á stubbana. Komknippin lágu á akr- inum til 23. september. Þá voru tek- in sýni úr þeim sem og sýni til sam- anburðar úr nálægum öxum sem staðið höfðu óskorin. Greint var • i , & Síðustu þroskavikurnar getur byggið verið mjög viðkvæmt fyrir veðrum. Kemur þá til greina að forþurrka byggkornið í múga á akrinum og gefa því um leið færi til „fullþroskunar“. 36 - pR€VR 9/2001

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.