Freyr

Árgangur

Freyr - 01.11.2003, Blaðsíða 5

Freyr - 01.11.2003, Blaðsíða 5
Rögnvaldur og Sigrún i Flugumýrarhvammi með þrjú börn sín, þau Sindra og Þórunni en fyrir framan stendur Jórunn. (Freysmynd). Jú, það hefiir aukist verulega, en í mínum augum er það fyrst og fremst bættri heyverkun og þar með fóðrun að þakka en í minna mæli kynbótum. Rúlluvœðingin er ekki hafin þegarþú tekur við búinu? Nei, framan af heyjuðum við að langmestu leyti laust í súgþurrkun með heyhleðsluvagni og dreifí- kerfi í hlöðu. Það hey, sem ekki komst í hlöðu, bundum við í litla bagga eða verkuðum í votheys- gryfjum. Við færðum okkur yfír í rúllurnar þegar sú tækni kom og hættum fyrst með baggana og vot- heyið, sem var fyrirhafnarsamur heyskapur. Sigrún, kona mín, er með ofnæmi fyrir maurum í þurr- heyi þannig að það var góð breyt- ing að hætta alveg við þurrheys- verkunina og nú höfúm við verk- að allt í rúllur síðustu árin. En það er betri verkun í rúllun- um sem skiptir máli um betri fóðr- un en ekki t.d. aukin fóðurbœtis- gjöf? Já, bæði slæ ég orðið fyrr en áð- ur og er mikið til hættur að fá hey- skemmdir út af veðurfari, þ.e. að heyið velkist í óþurrkum eins og áður gerðist. Hins vegar þurrka ég heyið eins mikið og ég mögulega get áður en ég rúlla það og helst fullþurrka það ef kostur er. Reynsla mín er sú að eftir því sem ég næ þurrara í rúllumar þeirn mun meira heyi kem ég í gripina. Ég gef svo líka meiri fóðurbæti en áður vegna þess að kýmar em famar að mjólka meira, en þar hef ég sett mér bæði lágmark í nyt þegar fóðurbætisgjöf hefst og há- marksgjöf á kú. Hvernig hagarþú gjöfinni? Ég er með gamalt básafjós, sem hefur pláss fyrir 32 kýr, með venjulegt rörmjaltakerfi og haug- hús undir eins og gengur og ger- ist. Það er svo hlaða innan við og þangað get ég keyrt með rúllumar og klofíð þær með hníf framan á gálga á traktomum. Síðan flyt ég heyið á hjólakvísl fram á fóður- gang. Þetta er auðvelt ef heyið er sæmilega þurrt. Mjaltir og gjafir eru tiltölulega létt verk hjá mér miðað við þrif og þess háttar. Hefurðu verið að endurrœkta túnin? Já, en of lítið. Ég hef átt mér það markmið að endurrækta 2-3 hekt- Loftmynd af Flugumýrarhvammi. Freyr 9/2003 - 5 |

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.