Freyr

Árgangur

Freyr - 01.11.2003, Blaðsíða 19

Freyr - 01.11.2003, Blaðsíða 19
Mynd 2. Efnaskiptahringur kýrinnar á mjaltaskeiðinu. Niðurbrot, jafnvægi og uppbygging. fyrr en mjólkinni hefur verið dælt í mjólkurbílinn. Það eru margir hlekkir í þessari framleiðslukeðju og mikilvægt að gera sér grein fyr- ir að þetta er raunveruleg keðja þar sem einstakir þættir spila saman og hafa áhrif hver á annan. Há- marksafurðastefna kallar þess vegna á markvissa stjómun á öll- um þáttum búrekstrar og best að sérffæðingar í jarðrækt, búfjárrækt og dýralækningum vinni saman að þessu flókna viðfangsefni. Nú þegar er gæðastýring víða stunduð í nautgriparækt. I kyn- bótastarfínu og í eftirliti með af- urðum hefur í áratugi verið starfað eftir hugmyndafræði gæðastýr- ingar. Aðrir þættir em styttra á veg komnir og má þar nefna þætti eins og fóðmn, meðferð og heilsu- gæslu. Með því koma á heil- steyptri gæðastýringu, sem eykur upplýsingaöflun og úrvinnslu gagna, verður reksturinn mark- vissari og framleiðni eykst. Heilsugæsla Nauðsynlegt er að átta sig á því að fyrir hvert sjáanlegt sjúkdóms- tilfelli em mörg dulin tilfelli, þ.e. truflun á líkamsstarfsemi, sem er þó ekki það mikil að hún kalli fram sjáanleg einkenni. Við get- um líkt þessu við borgarísjaka sem er að 9/10 hlutum neðansjáv- ar og aðeins 1/10 hluti er sjáan- legur. Kostnaður við sjúkdóma felst fyrst og ffemst í afurðatapi, með- höndlun sjúkdómsins, kostnaði við fyrirbyggjandi aðgerðir og erfða- ffæðilegu tapi vegna ótímabærrar endumýjunar. Almennt er talið að kostnaður vegna dulinna sjúkdóma sé mun meiri í öllum hópnum en nokkurn tímann sjáanleg sjúk- dómstilfelli. Markviss heilsugæsla og fyrirbyggjandi aðgerðir em því mjög ábatasamar fyrir bóndann og full ástæða til að hvetja bændur til að huga að þessum þáttum. Holdastigun Kýr þurfa að vera í góðu líkam- legu ástandi til að standa undir mikilli framleiðslu. Reglubundin holdastigun er þess vegna liður í markvissri heilsugæslu. Hún get- ur farið fram á einstökum kúm á fyrirfram ákveðnum timum mjaltaskeiðsins. Önnur aðferð, sem einnig hefur gefist vel, er að holdastiga allar kýr í íjósinu og raða þeiin svo eftir tíma frá burði á línurit (mynd 1). Niðurstöður þessara athugana eru bomar sam- an við viðmiðunargildi og hægt að bregðast við á viðeigandi hátt ef settum markmiðum er ekki náð. Mikilvægt er að æskilegum hold- um (3,0-3,5 stigum) sé náð fyrir geldstöðu og að þeim holdum sé viðhaldið fram að burði. Eftir burð leggja kýmar óhjákvæmilega af. Botninum (2,25-2,75 stigum) á að vera náð 8-10 vikum eftir burð og effir það á kýrin að fara að bæta rólega við sig allt þar til burðarholdum er aftur náð í upp- hafi geldstöðu. Geldstaða Geldstaðan er undirbúnings- tímabil fyrir næsta mjaltaskeið og ber að líta á það sem slíkt. Geld- staða á að vera 6-8 vikur. Þetta er nauðsynlegur tími til endumýjun- ar á júgurvefnum. Styttri geld- staða dregur úr afurðum og lengri geldstöðu fylgir meiri hætta á efnaskiptasjúkdómum í upphafi mjaltaskeiðsins. Til að gelda kýr upp er eðlilegast að draga úr fóðr- un í nokkra daga og hætta svo mjöltum snögglega. Júgurheilbrigði Athuga þarf júgurheilbrigði i lok mjaltaskeiðsins, bæði með því að skoða einstaklingsfrumutölu síðustu mánuði og taka sýni til ræktunar úr þeim kúm sem em grunsamlegar. Meta þarf í ljósi þessara upplýsinga hvemig með- höndlun kýrin eigi að fá þegar mjaltaskeiðinu lýkur. Gott er að verja heilbrigðar kýr fyrir um- hverfissmiti (Step.uberis), t.d. með Dryflex® himnu í byrjun geldstöðu og aftur nokkmm dög- um fyrir burð þegar mest hætta er á lekum spenum. Kýr með dulda júgurbólgu og háa fmmutölu er eðlilegt að meðhöndla í byrjun geldstöðu með sýklalyfjurn. Kýr með langvarandi júgurbólgu svara Freyr 9/2003 - 19 |

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.