Freyr

Árgangur

Freyr - 01.11.2003, Blaðsíða 8

Freyr - 01.11.2003, Blaðsíða 8
útflutning sé sem líkust. Við trúum því að kröfur innanlandsmarkaðar- ins um vinnslu kjötsins verði hinar sömu og á hina erlenduog best sé að taka strax tillit til þess. Þið hafið þá haldið ykkar hlut í þeim hremmingum sem gengið hafayfir islenskan kjötmarkað? Já, ég tel það, við höfum slopp- ið við það að afurðasölufyrirtæki hafi ekki getað staðið í skilum við framleiðendur. Þetta stafar af því að við höfum verið með öflugt samvinnufélag í blönduðum rek- stri og haft möguleika á að færa til peninga milli rekstrarþátta. Út- gerð og fiskvinnsla KS hefur gengið vel að undanfomu og það- an hefur verið fært fé í landbúnað- arhlutann. Aður áraði illa í útgerð og fískvinnslu og hún þurfti stuðning. Það gildir hér að hafa eggin ekki öll í sömu körfunni og þó að þau hafa oft brotnað þá ger- ist það sjaldnast í öllum kröfunum samtímis. Félagsmálastörf Þú hefur tekið þátt í félagsmál- um bœnda bæði í hérað og á landsvísu? Já, en þó að ég hafi komið ná- lægt þessum málum á landsvísu þá er ég fyrst og fremst harður baráttumaður fyrir hinar dreifðu byggðir. Félagsmálastörf mín fyr- ir bændur hófust annars með því að ég var kosinri formaður Félags kúabænda í Skagafirði árið 1991 og sat þrjú ár. Þau ár sat ég aðal- fúndi Landssambands kúabænda. Sama haustið, þ.e. 1991, lenti ég inn á aðalfund Stéttarsambands bænda í fyrsta skipti og mjög óvænt inn í stjóm þess. Þar sat ég þangað til Stéttarsambandið var sameinað Búnaðarfélagi íslands í Bændasamtök Islands. A þessunr árum var ekki mikil togstreita milli búgreinafélaga og heildarsamtakanna og verkaskipt- ingin nokkuð skýr. Síðan hefur ýmislegt gerst og nú er þessi verkaskipting orðin harla óljós. Sannfæring mín er sú, og hún styrkist með hverju búnaðarþingi sem ég sit, að tvöfalt kerfi i kosn- ingu búnaðarþingsfulltrúa, þ.e. annars vegar fulltrúa búnaðarsam- bandanna og hins vegar búgreina- samtakanna, er félagslega vonlaust kerfi. Og tvöföld kerfi em það alls staðar. í sauðfjárrækt er tvöfalt fram- leiðslukerfi, þ.e. 0,7 reglan og hin. Þetta er dauðadæmt kerfi og lam- ar samtök sauðfjárbænda. Eg tel að það eigi einungis að kjósa til búnaðarþings í búnaðar- samböndunum. Búgreinar í hverju héraði eiga að sameinast innan hvers búnaðarsambands, eins og þær gera víðast hvar, og þaðan eigi fulltrúar þeirra að koma. Hvemig menn síðan ráðslaga innan búnaðarsambandanna milli hreppabúnaðarfélaga og bú- greinafélaga getur svo verið með ýmsu móti. Hér í Skagafirði hafa menn t.d. beina aðild bænda að búnaðarsambandinu en sums staðar eiga bæði hreppabúnaðar- félög og búgreinafélög aðild að því. Að sjálfsögðu starfa menn við mismunandi búgreinar en heildar- hagsmunimir, sem verið er að fást við á búnaðarþingi og hjá heildar- samtökunum, em svo samtvinn- aðir fyrir alla bændur að það veld- ur aðeins sundrungu að kljúfa þá niður í búgreinar. Þetta er fyrst og ffemst slagur við ríkisvald og lög- gjafarvald og síðan samræming á innri málefnum stéttarinnar. Ég tel að fulltrúar búgreinanna á búnaðarþingi líti á sig í alltof miklum mæli senr fulltrúa bú- greina sinna á sama tíma og við, sem emm kosnir hjá búnaðarsam- böndunum, höfum nauðugir vilj- ugir orðið að líta á okkur sem full- trúa allra búgreina. Nokkur hópur búnaðarþings- fulltrúa hefitr með sér samband sem nefrit er Norðvesturhópurinn. Já, upphaf hans má rekja til þess að við stjórnarkjör á fyrsta búnaðarþingi eftir að Búnaðarfé- lag íslands og Stéttarsamband bænda voru sameinuð, árið 1995, þá gerðist það að enginn stjórnar- maður var af svæðinu frá Eyja- firði vestur um og suður á Snæ- fellsnes. Þetta er að hluta til eitt | 8 - Freyr 9/2003

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.