Freyr

Árgangur

Freyr - 01.11.2003, Blaðsíða 34

Freyr - 01.11.2003, Blaðsíða 34
Alþjóðasamningar varðandi stuðning við landbúnað benda til þess að stuðningur rikisins til lækkunar á útsöluverði mjólkuraf- urða verði ekki eingöngu greiddur til bænda í tengslum við framleitt magn eins og nú er. Afleiðingar þess verða að jafnvel þó að ríkis- stuðningur við framleiðsluna haldist óbreyttur næstu 10 ár mun vægi fullvirðisréttarins í greiðsl- Hitarnir í Evrópu sl. SUMAR KOSTUÐU SITT Samvinnusamtök bænda og samvinnufélaga í eigu þeirra innan ESB kynntu nýlega út- reikninga á þeim skaða sem hitarnir sl. sumar ollu á land- búnaði og skógrækt í löndum sambandsins. Samkvæmt þeim er skaðinn metinn 13,1 milljarðar evra í löndunum 25. Mestur varð skaðinn i Ítalíu, Þýskalandi, Austurríki, Spáni, Frakklandi og Portúgal, sem og í ýmsum hinna nýju landa sambandsins. Þá er mikið vandamál fyrir búfjárrækt framundan sem er skortur á heyi í vetur og vænt- anleg verðhækkun á öllu fóðri. Uppskera korns dróst saman sem og uppskera á kartöflum og vínberjum til vinframleiðslu. Þá brunnu um 650 þúsund hektarar af skógi, þar af 400 þúsund ha í Portúgal. Samvinnusamtök bænda í ESB hafa skrifað landbúnaðar- stjóra ESB, Franz Fischler, og skorað á embættismannaráð ESB að koma til móts við bændur innan sambandsins í þeim miklu erfiðleikum sem steðja nú að þeim. (Internationella Perspektiv nr. 30/2003). unum minnka og verðmæti hans því jafnframt lækka. Breytilegur kostnaður við ffam- leiðslu á einum lítra af mjólk var 31,6 krónur í fyrra og hefúr hækk- að lítillega á milli ára. Einhver dæmi eru um að menn reikni breytilega kostnaðinn sem 0 krón- ur á þeim forsendum að þeir fram- leiði viðkomandi lítra hvort sem er. Slíkir reikningar eru afar vafasam- ir því að auðvelt er að stýra ffam- leiðslunni þannig að ffávikin frá fullvirðisréttinum verði einungis nokkrar þúsundir litra og breytileg- ur kostnaður er sá kostnaður sem beinlínis tengist framleiðslumagni og reynslan sýnir að hann fylgir ffamleiddu magni mjög vel. Eru framleiðsluaðstæður fyrir hendi eða mun fastur kostnaður hækka við framleiðsluaukning- una? Flestir þeir liðir sem flokk- ast undir fastan kostnað verða að einhverju leyti tengdir fram- leiðslumagni ef tímabilið, sem skoðað er, er ekki bókhaldsárið heldur 10 eða 20 slík. Aftur á móti hefúr mikil hagræðing átt sér stað varðandi fastan kostnað und- anfarin ár og líklega eru mögu- Samvinna milli býla Frh. afbls. 35 inum 100% réttlátt. Ef þrír bændur eiga að deila með sér fimm milljón króna hagnaði getur farið svo að tveir hagnist um tvær milljónir og einn um eina milljón króna. Arið eftir getur þetta snúist við. Valkost- urinn við samstarfið er. hins vegar sá að enginn fái neinn hagnað. Ef menn sætta sig ekki við þetta þá eiga menn ekki að koma nálægt samstarfi sem þessu. Annar ókostur við samstarf sem þetta er að enginn einn getur ráðið öllu. Viljinn að ráða öllu sjálfúr er djúpstæður hjá mörgum sjálfstæð- um bóndanum. Þetta varðar einnig það að makinn sé reiðubúinn að leikar á enn meiri hagræðingu. Skuldsetning rekstrarins má heldur ekki fara það hátt að aukin verðbólga, lækkun afurðaverðs eða lækkun kvótaverðs og þar með verðmætis þess veðs, sem sett er til tryggingar skuldunum, setji menn útaflaginu. Þá gæti verið betra að fara rólegar af stað og kaupa þó ekki nema fyrir rekstrarafgang árs- ins á svona háu verði en skuldsetja sig ekki til skaða. Sú stækkun búa sem nú á sér stað um allt land er or- sakavaldurinn að háu kvótaverði og sú stækkun verður ekki enda- laus og þá mun kvótaverð lækka. Ef afurðaverð lækkar og bein- greiðslur lækka þá gerist það sam- hliða að erfiðara verður að standa við greiðslur og verð á fúllvirðis- réttinum, og þar með eignunum, lækkar. Til þess að enda þetta ekki á svona varkárum (neikvæðum) nótum er vert að benda á að þó að fúllvirðisrétturinn sé dýr og fjár- festingin í einhverjum tilfellum áhættusöm á þessu verði þá er lík- lega alltaf arðsamara að kaupa fullvirðisrétt heldur en dráttarvél sem lítil eða engin þörf er fyrir. vinna með öðrum bændum, annars gengur þetta ekki. Velgengni í samstarfi krefst þess að þú sem bóndi sért fús til sam- starfs og að afsala þér ákvarðana- tökur. Sé svo ekki, þá komdu ekki nálægt þessu. Gott nágrenni að öðru leyti getur þá spillst. Þess vegna er eitt gott ráð áður en kemur til samvinnu af þessu tagi: Taktu þér góðan tíma til að gera þér ljós “mjúku gildin”. Hvemig finnst mér og maka mínum það að vera ekki smámunasamur og þekkjum við afstöðu hinna bændanna og maka þeirra til þess? En, langi þig að reyna eitthvað nýtt, þá er hér hagnað að finna og jafnframt kostur á öðruvísi og meira spennandi lífsvenjum. | 34 - Freyr 9/2003

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.