Freyr

Árgangur

Freyr - 01.11.2003, Blaðsíða 17

Freyr - 01.11.2003, Blaðsíða 17
Fóðrun og framleiðslu- sjúkdómar mjólkurkúa INNGANGUR Framleiðslusjúkdómar, þ.e. sjúkdómar tengdir ófullnægjandi aðbúnaði og fóðrun, eru mjög al- gengir og kostnaðarsamir hér á landi. Sjúkdómamir, sem um ræð- ir, eru m.a. fitulifur, súrdoði, júg- urbólga, fastar hildir, legbólga og ófrjósemi og mynda þeir eins kon- ar sjúkdómahóp kringum burð og fyrst á mjaltaskeiðinu. Sjúkdóm- amir era hver öðmm tengdir en segja má að fitulifur og súrdoði séu gmnnsjúkdómar þeirra allra. Sýnilegt og dulið tjón af þess- um sjúkdómum skiptir hundruð- um milljóna kr. árlega. I ná- grannalöndunum hefur náðst meiri árangur í baráttunni gegn framleiðslusjúkdómum en hér- lendis. Tíðni sjáanlegs súrdoða á íslandi er um 20% meðl8% af- urðatapi og áætlað er að tíðni du- lins súrdoða sé um 30% með um 10% afurðatapi. Miðað við þessar forsendur má gera ráð fyrir að súrdoði kosti bændur um kr. 400 milljónir á ári eða um 4 krónur á hvern innveginn mjólkurlítra. Kostnaðartölur vegna júgurbólgu eru mun hærri og varlega áætlað er heildarkostnaður vegna fram- leiðslusjúkdóma a.m.k. 1 millj- arður króna eða um 1 milljón króna á hvert bú. Fóðrun og fóðrunartækni Róttækar breytingar hafa orðið á heyskapartækni síðustu 15 ár. Bændur hafa horfið frá þurrheyi og nú eru um 90% heyja verkuð í rúllur. Þessi breyting hefur al- mennt gert heyfeng jafnari og betri að gæðum, bæði hvað orku og lystugleika varðar, en aukið niðurbrot próteina við þessa hey- verkunaraðferð er þó ókostur. Gróffóður með hátt fóðurgildi er forsenda þess að kýr svari mikilli kjamfóðurgjöf, en hún hefur auk- ist mjög mikið undanfarin ár og er nú víðast á bilinu 15 -30 kg fyrir hverja 100 lítra mjólkur fram- leidda. Algengt er að hlutfall kjamfóðurs í heildarfóðri sé nú um og yfir 50% á þurrefnisgrundvelli fyrrihluta mjaltaskeiðsins. Þannig hefur orkustyrkur heildarfóðurs aukist þetta timabil og er nú að nálgast 1,00 FEm/kg þurrefnis. Þessi mikla aukning á orkustyrk fóðursins hefur víðtæk áhrif á efna- skipti kýrinnar, auk þess sem hátt hlutfall kjamfóðurs í heildarfóðri eykur nokkuð hættuna á meltingar- tmflunum og sveiflum á sýmstigi í vömb. Erlendis hafa menn bmgðist við þessu með því að gefa heilfóð- ur þar sem hver tugga er í jafnvægi og rétt saman sett miðað við þarfir kýrinnar. Án efa á þessi fóðmnar- tækni eftir að ná útbreiðslu á Is- landi hjá þeim bændum sem leitast eftir að ná hárri nyt og jafnffamt viðhalda góðu heilsufari kúa sinna. Út frá sjónarhóli kýrinnar er heil- fóðrun besta fóðrunaraðferðin. Spumingin er hins vegar hvort að- stæður á búunum leyfi að hægt sé að koma heilfóðmnartækni við á hagkvæman hátt. Afurðir og þættir SEM STJÓRNA NYT Afurðir íslenskra kúa hafa auk- ist mjög hratt undanfarin ár og hlutfallslega mun hraðar en í ná- grannalöndunum. Það, sem er líka athyglisvert, er að þeim búum, sem ná mjög miklum afurðum, fer stöðugt fjölgandi. (tafla 1). Fóðrun, holdafar og erfðir em mikilvægustu þættimir sem stjóma afurðamagni. Nauðsynlegt er að gera sér grein fyrir langtímaáhrifum fóðmnar á afurðir. Fóðrun í geld- stöðu hefur mikil áhrif á afurðir og heilsufar og fóðmn á einu mjalta- Tafla 1. Yfirlit um framleiðslu árskúa á búum með yfir 10 árskýr. (Bændasamtök íslands 2002). Ár Fjöldi búa með yfir 7 þús. l/kú Fjöldi búa með með yfir 6 þús. l/kú Fjöldi búa með yfir 5 þús. l/kú 1993 0 5 65 1997 0 7 89 I 2000 3 25 227 I 2001 4 44 275 j 2002 3 59 345 Freyr 9/2003 - 17 |

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.