Freyr

Árgangur

Freyr - 01.11.2003, Blaðsíða 47

Freyr - 01.11.2003, Blaðsíða 47
Sýningin „Kýr 2003“ á Hrafnagili 8. ágúst r Akveðið var á síðastliðn- um vetri að koma á kúasýningu á Norður- landi, þar sem reynt yrði að fá þátttöku af öllu svæðinu frá Húnavatnssýslu austur um til Þingeyjarsýslu. í fyrstu var rætt um að hugsanlegur sýn- ingarstaður yrði Reiðhöllin á Sauðárkróki og sýningin yrði jafnvel haldin um miðjan júní. Sá tími reyndist þegar til kom ekki vænlegur. Snemma voraði og fljótt varð ljóst að heyskap- ur yrði víða kominn í fullan gang á þessum tíma. En jafnframt kom upp sú hug- mynd að halda kúasýninguna í sambandi við hina árlegu hand- verkssýningu á Hrafnagili í Eyja- ijarðarsveit. Aður höfðu forsvars- menn þeirrar sýningar sett sig í samband við Búnaðarsamband Eyjafjarðar og Norðurmjólk og óskað eftir aðkomu þeirra að sýn- ingunni, þar sem þema hennar þetta árið væri „kýrin”. Var því ákveðið að treysta á hið rómaða norðlenska síðsumarveð- ur, því að ekki var öðru til að dreifa í þessu tilfelli en að halda sýninguna undir berum himni. Handverkssýningin er haldin aðra helgi ágústmánaðar, en í sumar bar það upp á 7.-10. ágúst. Ákveð- ið var að kúasýningin sjálf yrði eftir hádegi þann 8. ágúst, en þó væru einhverjir gripir hafðir á staðnum alla sýningardagana. Varðandi íyrirkomulag kúasýn- ingarinnar, sem hlaut nafnið „Kýr 2003”, var horft til sýninga sem efht var til á Suðurlandi árið 2000 og síðan aftur 2002. Böm og unglingar sýndu kálfa og kýr mættu til sýning- ar. I fyrmefnda tilfellinu var auglýst eftir þátttöku, en kýmar vom valdar eftir útlitsdómum og afúrðasemi. Þegar á reyndi með þátttöku kom í ljós að hún var nær ein- göngu bundin við Eyjaijörð og Skagafjörð og langmest úr næsta nágrenni við sýningarstaðinn. Ein kýr kom úr Suður-Þingeyjarsýslu, en engir gripir úr Húnavatnssýsl- um. Misjafnlega gekk að fá bænd- ur til að koma með þær kýr sem sóst var eftir og í nokkrum tilfell- um fékkst ekki leyfi yfirdýralækn- isembættisins fyrir flutningi kúnna á sýningarstað. Sjálf sýningin tókst að flestra mati ágætlega. Eins og áður var á drepið þurfti að treysta á veður- guðina. Þeir reyndust í höfuðat- riðum hliðhollir. Veður var milt og gott, en rigndi ögn meðan á sýn- ingu kúnna stóð. Fram til þess fylgdist verulegur fjöldi áhorf- enda með atriðum, en fækkaði nokkuð þegar byrjaði að rigna. SÝNINGIN Sýningin hófst með ávarpi Vignis Sigurðssonar, fram- kvæmdastjóra Búnaðarsambands Eyjafjarðar, og í framhaldi af því setningu Guðna Ágústssonar landbúnaðarráðherra. Kynnar sýningarinnar voru Eiríkur Lofts- son ráðunautur og Þóroddur Sveinsson tilraunastjóri. Inn á milli formlegra keppnisat- riða var keppt í svokölluðum „sveitafittness” undir stjóm Guð- mundar Hallgrímssonar ráðs- Áhorfendur komu sér fyrir undir vegg Hrafnagilsskóla. Ljósm. Ingvar Björns- son. Freyr 9/2003 - 47 |

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.