Freyr

Årgang

Freyr - 01.11.2003, Side 14

Freyr - 01.11.2003, Side 14
A að láta kýrnar bera með árs millibili? ið æskilega framleiðslu- kerfi í mjólkurfram- leiðslu hér á landi og í flestum nálægum löndum er talið vera að hafa kýr sem bera með árs millibili. Með feikilegri aukningu meðal- afurða á síðustu árum hafa ffjó- semisvandamál hjá kúm víða far- ið stigvaxandi. Hér á landi mun láta nærri að bil milli burða hjá mjólkurkúm sé um 13 mánuðir að meðaltali og víða um heim hefur bændur borið enn meira af leið frá hinni sígildu 12 mánaða viðmið- un. Umræða um það hvort þessi viðmiðun sé endilega hið eina rétta hefur því víða farið vaxandi á síðustu árum. Eg hef í greinum um frjósemi mjólkurkúa vikið að því að í Sví- þjóð væri verið að framkvæma til- raunir til að reyna að varpa ljósi á þessi mál. Nýverið birtist tilrauna- skýrsla um þessar tilraunir eítir Söru Österman, sem sá um þær. Um margt eru niðurstöður tilraun- anna mjög forvitnilegar og hljóta að vekja til umhugsunar. Hér á eftir er ætlunin að rekja nokkrar af niðurstöðunum. Rétt er samt í upphafi að leggja á það áherslu að þessar tilraunir eru gerðar með kýr með mun meiri afurðagetu en íslenskar kýr. Slíkt verður að hafa í huga, eigi að reyna að draga ályktanir af sumum niðurstöðum fyrir aðstæður í mjólkurfram- leiðslu hér á landi. Umrædd tilraun fór fram við til- raunastöð Sænska landbúnaðarhá- skólans á árunum 1994-1997. í tilrauninni vor samtals 72 kýr af Sænska rauða mjólkurkúakyninu (SRB). Þær voru bæði á fyrsta og öðru mjólkurskeiði. Kúnum var skipt í ijórar tilraunameðferðir: I. Bil milli burða 12 mánuðir og kýmar mjólkaðar tvisvar á sól- arhring. II. Bil milli burða 12 mánuðir og kýmar mjólkaðar þrisvar á sól- arhring. III. Bil milli burða 18 mánuðir og kýmar mjólkaðar tvisvar á sól- arhring. IV. Bil milli burða 18 mánuðir og kýmar mjólkaðar þrisvar á sól- arhring. í tilrauninni var að sjálfsögðu nákvæm skráning afúrða gripanna, fóðmn þeirra, heilsufar og einnig allvíðtækar atferlisathuganir. A mynd 1 er sýnt mjólkurlínurit fyrir tilraunameðferðirnar ljórar. Þar kemur fram vemlegur munur á milli tilraunameðferða. Eins og við er að búast verður stærstur hluti af muninum til á síðari hluta mjólkurskeiðsins. Þegar afurðir eru metnar sem meðal mjólkurmagn á dag þá reynist það mest hjá kúnum með 18 mánaða bil milli burða sem em mjólkaðar þrisvar á dag, þar sem magnið var 24,2 kg af orkuleið- réttri mjólk á dag. I hópnum með 12 mánaða bil milli burða og mjaltir þrisvar á sólarhring var til- svarandi meðaltal 23,4 kg, í til- Mynd 1. Linurnar sýna fimm vikna meðalnyt af orkuleiðréttri mjólk. Þrihyrn- ingar sýna nyt kúa þar sem 12 mánuðir eru milli burða en hringir 18 mánuði milli burða. Opnir þrihyrningar og hringir merkja tvennar mjaltir á sólarhringi en fylltir þrennar mjaltir. 114 - Freyr 9/2003

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.