Freyr

Árgangur

Freyr - 01.04.2005, Blaðsíða 10

Freyr - 01.04.2005, Blaðsíða 10
NAUTGRIPIR Upplýsingar um ræktunarstarf, sölu, verðlag og af- komu hafa birst í Búnaðarriti sem Bændasamtök ís- lands hafa gefið út um langt skeið. Með breytingum, sem nú verða á Frey, var ákveðið að fella efni Búnað- arrits inn í blaðið. Stefnan er því að birta efni allt árið um kring og taka eina til tvær búgreinar fyrir í hverju tölublaði. Útgáfu Búnaðarrits verður hins vegar hætt og er lesendum þess hér með bent á nýtt fyrirkomulag. Nautgriparækt AFURÐIR NAUTGRIPA ERU MJÓLK, NAUTGRIPAKJÖT OG HÚÐIR. SAMKVÆMT GJALDSTOFNI TIL BÚNAÐARGJALDS VEGNA TEKJUÁRSINS 2003 VORU VERÐMÆTI NAUTGRIPA- AFURÐA UM 9,3 MILLJARÐAR KR. EÐA 47,7 % AF HEILDARGJALDSTOFNINUM. ÁÆTLAÐ ER AÐ MJÓLKIN SKILI UM 90% VERÐMÆTANNA. FJÖLDI INNLEGGJENDA Tafla 1. Fjöldi lögbýla með greiðslumark og stærð kúabúa eftir kjördæmum 2003/2004 Verðlagsárið 2003/2004 voru 889 lögbýli með greiðslumark í mjólk en voru á sama tíma árið áður 931. Þetta er 4,5 % fækk- un og fækkaði búum með greiðslumark að jafnaði um 0,8 á viku á verðlagsárinu 2003/04. Meðalmjólkurinnlegg á bú með greiðslumark var 121.917 Itr. en var 118.970 Itr. árið á und- an. Miklar framfarir eru í fóðr- un og meðferð gripanna sem ásamt kynbótum hafa skilað stórauknum afurðum síðustu Fjöldi lögbýla Innlögð mjólk Itr. Meðal innlegg, Itr. Greiðslumark Þús. Itr. Reykjanessvæði 11 1.161.638 105.603 1.127.553 Vesturland 132 14.102.595 106.838 13.200.536 Vestfirðir 39 2.966.956 76.076 3.016.089 Norðurland vestra 138 16.985.100 123.080 16.329.882 Norðurland eystra 198 27.130.035 137.020 26.308.686 Austurland 58 5.949.834 102.583 5.806.866 Suðurland 313 40.087.962 128.077 39.064.491 Geymdur réttur 145.897 Alls 889 108.384.120 121.917 105.000.000 Heimild: Bændasamtök íslands. Ljósm. Jón Eiríksson. ár. Tafla 1 sýnir fjölda lögbýla með greiðslumark í mjólk og stærð kúabúa verðlagsárið 2003/2004 Fjöldi mjólkurkúa haustið 2003 var 24.904 og hafði þeim fækkað frá árinu 2002 um 604 eða 2,4 %. Frá árinu 1999 - 2003 hefur mjólkurkúm fækk- að um tæp 12 % og öðrum nautgripum um rúm 11%. Þessi þróun endurspeglar ann- ars vegar aukna afurðsemi mjólkurkúnna og hins vegar minkandi arðsemi nautkjöts- framleiðslu. Tafla 2 sýnir fjölda nautgripa 1999-2003. FRAMKVÆMDIR ABERANDI Lán til fjósbygginga og mjaltabúnaðar hjá Lánasjóði landbúnaðarins sýna að mikill framkvæmdahugur er í kúa- bændum og lánaði sjóðurinn samtals til nautgripabænda 779 m.kr. sem er 11,8% aukning frá árinu 2003. Af þessari upphæð voru 439 m.kr. framkvæmdalán en það er 39,2% hærri upphæð en árið áður. Eftir því sem næst verður komist voru mjaltaþjónar í notk- un á 25 kúabúum í upphafi árs 2005 og hafði þeim fjölgað um 13 á árinu 2004. Auk þess var uppsetningu tveggja nær lokið. Mjaltaþjón- ar skiptast þannig eftir landshlutum að á Vest- urlandi eru 2, Vestfjörðum 3, Norður- landi 11, Austurlandi 1 og Suðurlandi 10. Meðalgreiðslumark þeirra kúabúa, sem tekið hafa f notkun Tafla 2. Fjöldi nautgripa 1999-2003 Ár Kýr Aðrir nautgripir 1999 28.284 46.250 2000 27.066 45.069 2001 26.240 43.928 2002 25.508 41.717 2003 24.904 41.131 Heimild: Bændasamtök isiands. 6 FREYR 04 2005

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.