Freyr - 01.04.2005, Blaðsíða 33
SKÓGRÆKT
GAMAN ER AÐ SJÁ AÐ NIÐURSTÖÐUR RÁÐUNAUTAÞJÓNUSTU BANDARlSKU SKÓGSTJÓRNARINNAR (-2003) OG
KLEMENZAR (1945-57) FARA NÁKVÆMLEGA SAMAN UM ÁHRIF SKJÓLBELTA Á KORNUPPSKERU.
HELSTA KORNFORÐABÚR HEIMSINS; NORÐVESTURRÍKI BNA, GEFUR SEM SAGT SÖMU NIÐURSTÖÐU OG FUÓTSHLÍÐIN
HVAÐ GAGNSEMI SKJÓLBELTA VARÐAR.
jókst talsvert á skýldum ökrum.
Fóðurkorn og kartöflur gáfu
einnig meiri uppskeru á þeim
ökrum sem nutu skjóis.
Fram kom að allir bændurnir
töldu uppskeruaukninguna
gera meira en að bæta fyrir það
land sem fór undir skjólbelti.
Margir nefndu jákvæð áhrif sem
beltin höfðu gegn uppblæstri,
vindskemmdum á uppskeru og
skafrenningi.
SKJÓL FYRIR VAXANDI
KORNRÆKT Á ÍSLANDI
Fáar íslenskar rannsóknir eru til
um áhrif skjólbeltaræktar. Ber
þar helst að nefna rannsóknir
Klemenzar Kristjánssonar á
Sámsstöðum um miðja síðustu
öld á áhrifum skjóls á korn-
þunga. Sýndu þær að á sjö
sumra tímabili var kornþungi
mun meiri á skýldum svæðum
en bersvæði. Var munur korn-
þunga að meðaltali 25% í
byggi, 36% í höfrum og 41 % í
vorhveiti. Öll árin skilaði korn
ræktað í skjóli meiri þroska en
bygg ræktað á bersvæði, mest-
ur var þó munurinn í slæmum
árum. Erlendar rannsóknir, m.a.
þær sem sagt er fré í Skjólbelti -
vörn gegn vindi, sýna sömu nið-
urstöður.
(Klemenz Kr. Kristjánsson , 1976.
Áhrif skógarskjóls á kornþunga.
Skógræktarritið 1976, bls. 23-26.)
Með skjólræktun er dregið úr
vindhraða á yfirðborði landsins.
[ kjölfar minni vinds hækkar
hiti í skjólinu og uppgufun
bæði frá jarðvegi og plöntum
minnkar þrátt fyrir aukin hita.
Við uppgufun kólnar jarðvegur.
Við minni uppgufun eykst jarð-
vegsraki, og með auknum raka
nýtir jarðvegurinn betur geisla
sólarinnar og varmaleiðni jarð-
vegs eykst. Aukinn jarðvegshiti
örvar næringarefnaupptöku og
örverustarfsemi í jarðvegi .
Við aukinn hita í lofti og jarð-
vegi eykst uppskera að magni
og gæðum, Ijóstillífun plantna
eykst og þar með uppbygging
þeirra og aukin jarðraki dregur
úr áhrifum langvarandi þurrka.
Uppskeran er mismunandi eftir
því hvar á skjólsvæðinu hún er,
næst skjólbeltinu getur veriðum
uppskeruminnkun að ræða
vegna samkeppni trjáa við
nytjajurtir um næringu, vatn og
birtu. Er fjær dregur eykst upp-
skeran og er mest í fjarlægðinni
tvisvar til fimm sinnum hæð
skjólbeltanna. Eftir það dregur
úr uppskeruaukningunni að
tuttugufaldri hæð belta.
Með skjólbeltarækt dregur úr
sveiflum I árferði og skilar hún
því meira öryggi í uppskeru.
Bændur eru hvattir til að
kynna sér kosti skjólbelta og
ræktunaraðferðir.
Ritið kostar 1.000 kr.
og er til sölu hjá
Skjólskógum, Aðalstræti 26,
470 Þingeyri.
Pöntunarsími 456-8201, eða
með tölvupósti
skjolskogar@netos.is
FREYR 04 2005
29