Freyr - 01.04.2005, Blaðsíða 37
HUGBÚNAÐUR
MARK
MARK (www.bufe.is) er tölvukerfi fyrir ein-
staklingsmerkingar bú-
fjár samkvæmt reglu-
gerð nr. 463/2003 með
síðari breytingum.
Kerfið er unnið að
beiðni landbúnaðar-
ráðuneytisins og Emb-
ættis yfirdýralæknis. Markmið reglugerðar-
innar er að tryggja rekjanleika búfjárafurða
frá upprunahjörð og/eða fæðingu viðkom-
andi dýrs til sölu afurða og skapa með því
grundvöll að markvissu matvæla- og búfjár-
eftirliti, skráningu búfjársjúkdóma og með-
höndlun þeirra (1. gr.). MARK var opnað á
síðasta ári og hefur verið unnið í tölvudeild
Bændasamtakanna. Notendur eru lands-
ráðunautar, héraðsráðunautar, starfsfólk
Embættis yfirdýralæknis, héraðsdýralæknar,
bændur og starfsfólk sláturhúsa ásamt um-
sjónarmanni og hafa allirséraðgang m.a. eft-
ir svæðum. (dag geta bændur pantað plötu-
merki í kerfinu beint frá merkjaframleiðenda
í Noregi, skráð kaup og sölu gripa, skoðað
grunnupplýsingar um alla gripi í hjörð, skráð
afdrif o.fl. Um 300 notendur eru að MARK í
dag en gera má ráð fyrir að þeir verði orðnir
yfir eitt þúsund á næsta ári. Við smíði kerfis-
ins voru skoðuð hliðstæð kerfi í Danmörku
og Noregi. MARK býður upp að neytendur
geti rakið framleiðsluvörur til bænda eftir
einstaklingsnúmerum eins og tíðkast í Dan-
mörku í dag. Skýrsluhaldsgagnagrunnar
Bændasamtakanna er aðgengilegir frá
MARK, sem er nokkurs konar "regnhlíf" yfir
safni gagnagrunna. Á þessu ári hefst vinna
við að bæta við kerfið upplýsingum um
heilsukort gripa í samvinnu við dýralækna.
HUPPA
Huppa (www.huppa.is) er skýrsluhalds-
gagnagrunnur í naut-
griparækt. Huppa
opnaði að nýju eftir
endurbætur á síðasta
ári. Kúabændur hafa
aðgang að skýrslu-
haldsupplýsingum svo
sem ætterni gripa
sinna, kynbótamati, afkvæmalistum, nauta-
skrá, búsmeðaltölum og lykiltölum afurða-
skýrsluhaldsins o.fl. Skráning á sæðingum
kúa frá frjótæknum og val á nautum verður
bætt við á þessu ári en vinna við forritun
þessa þátta er á lokastigi. Upplýsingar um á
þriðja hundrað þúsund gripa eru í gagna-
grunninum. Gagnagrunnur Huppu er ein af
meginstoðunum í tölvukerfinu MARK. Allir
kúabændur geta fengið aðgang að Huppu
og hafa um 200 bændur fengið aðgang.
FJÁRBÓK
Fjárbók er nýjasta tölvukerfi Bændasamtak-
anna en þar er um að ræða skýrsluhalds-
kerfi i sauðfjárrækt. Gagnagrunnur kerfisins
er geysistór og hefur að geyma í upphafi
upplýsingar um á aðra millljón gripi og á
hverju ári bætast við upplýsingar um
500.000 lömb. Fjárbókin var upphaflega
unnin af tölvufyrirtækinu Tölvusmiðjunni á
Austurlandi en tölvudeild Bændasamtak-
anna tók síðan við verkinu. Kerfið verður
prófað af hópi valinna bænda og ráðunauta
vegna framleiðsluársins 2005 en á að opna
fyrir alla sauðfjárbændur vegna skráningar
skýrsluhalds fyrir framleiðsluárið 2006.
Smíði tölvukerfisins var styrkt af RANNÍS og
Framkvæmdanefnd búvörusamninga.
SAMSTARF VIÐ SÍMANN
Bændasamtökin hafa átt gott samstarf við
Símann og verkefnið Upplýsingatækni i
dreifbýli á undanförnum árum varðandi
vinnu Símans við uppbyggingu á ISDN á
landsbyggðinni. Sameiginlegir fundir þess-
ara aðila hafa verið haldnir um allt land með
bændum. Síminn hefur lagt í umtalsverðan
kostnað við þessa uppbyggingu til að upp-
fylla alþjónustukvöð sem lögð var á fyrir-
tækið af stjórnvöldum. Vissulega hefur
undirrituðum fundist að Síminn hefði mátt
ganga hraðar fram í þessari vinnu en aðal-
málið er að þegar Síminn lýkur fram-
kvæmdum á þessu ári þá hafa nær allir
bændur kost á a.m.k. ISDN tengingu. Sím-
inn kynnti einnig til sögunnar ISDNplús sem
opnaði fyrir lághraða sítengingu á D-rás.
Þetta er þó aðeins áfangi á langri leið og
tryggja þarf þeim sem ekki eiga kost á ADSL
sítengingu gegn föstu gjaldi að þeir fái sam-
bærileg kjör. Þá má telja víst að tæknifram-
farir á næstu misserum eiga eftir að tryggja
öflugra gagnaflutningssamband í hinum
dreifðu byggðum t.d. með Wi-Max sem
Síminn hefur kynnt. Sérstaklega ber að
þakka Einari H. Reynis og Gunnari Magnús-
syni starfsmönnum Símans fyrir frábær störf
í þessu sambandi.
LOKAORÐ
Þegar litið er yfir farinn veg í þróun á netfor-
ritum Bændasamtakanna er ekki hægt að
vera annað en nokkuð sáttur við árangur-
inn. Þróunarverkfærin sem voru valin í upp-
hafi eftir skoðun á hvað bauðst á þeim tíma
hafa staðið undir væntingum. Fjögur stór
tölvukerfi hafa verið smíðuð sem byggjast á
viðamiklum gagnagrunnum í Oracle. Rekst-
ur og hýsing þeirra hjá Skýrr hf. hefur geng-
ið mjög vel og samstarfið við fyrirtækið ver-
ið árangursríkt og ánægjulegt. Tölvudeild
Bændasamtakanna hefur verið lánsöm að
hafa ( vinnu afbragðs forritara en einnig
notið liðveislu sérfræðinga frá Skýrr og frá
Miracle tölvufyrirtækinu. Einnig ber að
þakka uppbyggingu Sfmans á öflugra
gagnaflutningsneti á landsbyggðinni sem
var forsenda fyrir netvæðingunni.
^ Skilgreining á alþjónustu sam-
kvæmt lögum um fjarskipti er "Af-
markaðir þættir fjarskipta af tilteknum
lágmarksgæðum sem boðnir eru öllum
notendum á viðráðanlegu verði, óháð
landfræðilegri staðsetningu þeirra."
^Lög um fjarskipti nr. 81/2003.
3öll netforrit Bændasamtakanna
eru hýst hjá Skýrr hf., sem hefur yfir að
ráða öflugum miðlurum og tryggir
vöktun allan sólarhringinn.
4Forveri kerfisins er Fengur sem
smíðaður var fyrst sem lokaverkefni frá
Tölvuháskóla Verslunarskóla (slands
(nú Háskólans í Reykjavík) árið 1991.
Einnig var gefinn út margmiðlunardisk-
urinn Islandsfengur 1998-2000 og Ver-
aldarfengur var opnaður á Netinu
1997. WorldFengur tók yfir öll þessi
kerfi.
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR
Gæðamálning á góðu verði! íslandsmálning ehf. Sætúni 4, 105 Reykjavík Sími: 517-1500, Fax: 517-1501 Vefsíða: www.islandsmalning.is Bændablaðið Smáauglýsingar Bændablaðsins skila árangri. Sími auglýsingadeildar er 563-0300. Netfang: augl@bondi.is
Freyr 04 2005
33