Freyr - 01.04.2005, Blaðsíða 13
NAUTGRIPIR
FRAMLEIÐSLUSTJÓRN
Heildargreiðslumark verð-
lagsársins 2003/2004 var
105.000 millj. lítrar. Heildar-
beingreiðslur fyrir mjólk til fram-
leiðenda árið 2004 námu kr.
3.925.623.081. Framleiðsla
umfram heildargreiðslumark á
verðlagsárinu 2003/2004 var
4.735 þús. lítrar.
Flutningur á greiðslumarki
milli lögbýla hefur verið heimill
síðan 1992. Fram til ársins 1998
lét nærri að um 3% af heildar-
greiðslumarki flyttust árlega
milli lögbýla en síðan hefur hert
á þróuninni og milli 5% og 6%
af heildargreiðslumarkinu verið
flutt árlega á milli lögbýla. Til
viðbótar koma svo eigenda-
skipti að greiðslumarki við ætt-
liðaskipti á jörðum og sölu til
nýrra ábúenda. Sl. fimm ár hafa
árlega á bilinu 3-5 millj. lítra
greiðslumark færst þannig milli
aðila. Aðilaskipti að greiðslu-
marki náðu hámarki verðlagsár-
ið 1999/2000, sem virðist hafa
verið metár í breytingum mjólk-
urframleiðslu mælt í flutningi á
greiðslumarki milli lögbýla og
einstaklinga. Greiðslumark hef-
ur einkum flust frá Suðvestur-
og Vesturlandi en til Skagafjarð-
ar og Suðurlands.
Verðlagsárið 2003/2004 virt-
ist heldur draga úr framboði á
greiðslumarki og verð hækkaði
umalsvert er á leið. ( upphafi
verðlagsársins mun algengt
verð hafa verið um 210 kr./l en í
lok verðlagsársins ríflega 270
kr./l og munu fá dæmi um
breytingar af þessu tagi innan
sama verðlagsárs.
Á síðasta ári var gerður nýr
samningur um mjólkurfram-
leiðsluna sem tekur gildi 1. sept-
ember nú í haust og gildir fram
til 31. ágúst2012. Fyrirsjáanleg-
Ljósm. Jón Eiríksson.
Tafla 9. Þróun framleiðendaverðs mjólkur og nautakjöts 2000 - 2004
Mjólk, meðalverð ársins (kr. á Itr.) Mjólk, verðlag 2004 (kr. á Itr.) Nautakjöt, meðalverð ársins (kr. á kg) Nautakjöt, verðlag 2004 (kr. á kg)
2000 66,47 78,32 262,29 309,06
2001 70,59 77,97 245,75 273,64
2002 74,29 78,29 235,48 248,17
2003 76,16 78,61 234,63 242,16
2004 78,30 78,30 257,62 257,62
Heimild: Bændasamtök íslands
ar eru miklar breytingar á al-
þjóðaumhverfi landbúnaðarins.
Landbúnaðurinn fer ekki var-
hluta af stöðugt opnara við-
skiptaumhverfi og þarf f vaxandi
mæli að taka mið af alþjóðleg-
um samningum og tillit til
hvernig aðstöðu matvælafram-
leiðslu helstu nágranna- og við-
skiptalanda okkar er háttað.
Tafla 10. Aðilaskipti á
greiðslumarki í mjólk 1998-
2004, þús. Itr.
2000/01 5.576
2001/02 5.320
2002/03 4.595
2003/04 3.586
Heimild: Bændasamtök íslands
Verðlagsár Þús. Itr.
1999/00 5.864
Ljósm. Jón Eiríksson.
Freyr 04 2005
9