Freyr

Árgangur

Freyr - 01.04.2005, Blaðsíða 26

Freyr - 01.04.2005, Blaðsíða 26
JARÐRÆKT Hnífaherfi byggir á þremur öxl- um á burðarramma. Á öxulinn eru festir bjúglaga hnífar. í hverj- um vinnuhring eru fjórir hnífar. Hnífaherfi henta vel í fínvinnslu á myldum jarðvegi og gera góð sáðbeð um leið og þau jafna nokkuð yfirborðið. Þau vinna ekki vel á seigum mýrarjarðvegi. Þau henta ágætlega til þess að vinna niður búfjáráburð en stður í þunga jörð og grýtta þvi að þá eiga hnífarnir erfitt með að ganga niður. Flagjafnar. Margar mismunandi gerðir flagjafna eru til, bæði fjöldaframleiddar og heimasmíð- aðar. Eins og nafnið gefur til kynna er hlutverk þeirra að jafna yfirborðið og jafnvel draga til töluvert efni til að jafna áferðina. Flagjafnar geta gegnt mikilvægu hlutverki við að koma á hæfileg- um vatnshalla svo að síður sitji vatn á spildunum á veturna. Þá er mikils um vert að mynda yfir- borð sem er gott yfirferðar við uppskerustörf. Slétt undirlagið dregur bæði úr álagi á vélarnar, eykur afköstin og stuðlar að vandaðri vinnubrögðum. Sem dæmi má nefna að aksturshraði við slátt á ósléttu túni er oft ekki mikið meiri en 4-7 km/klst. en sé völlurinn sléttur getur hann jafn- vel verið 12-14 km. Valtar eru til í tveimur megin gerðum, þ.e. með slétt yfirborð og gárótt. Tilgangur völtunar getur verið margþættur. Með völtun má mylja og slétta yfir- borðið en einnig þjappast jarð- vegurinn saman og heldur þann- ig betur raka að fræjunum. Einn- ig eru valtar notaðir til að slétta gróið land að vori. Sléttir valtar eru léttari í drætti en geta valdið óþarflega mikilli uppgufun. Við vissar aðstæður er einnig hætta á að jarðvegur hlaðist utan á þá. Á seinni árum hefur færst í vöxt að nota gárótta verksmiðjufram- leidda valta með málmgjörðum (Cambridge). Þeir halda jarð- vegsraka betur að fræjum, þjappa betur miðaða við þyngd og límkennt yfirborð festist síð- ur við gjarðirnar. Oftast eru þeir með burðarhjól þannig að auð- velt er að flytja þá á milli staða. HELSTU HEIMILDIR Árni G. Eylands, 1950. Búvélar og ræktun. Bókaút- gáfa Menningarsjóðs, Reykjavik, 471 s. Grétar Einarsson & Eiríkur Blöndal, 1999. Athugun á tækni við skurðahreinsun. Ráðunautafundur 1999, 100-106. Þorsteinn Guðmundsson, 1994. Jarðvegsfræði. Búnaðarfélag Islands, 119 s. Grétar Einarsson, 1968. íslenskur móajarðvegur og Rannsóknastofnun landbúnaðarins, bútæknideild. jarðvegstætingar. Fjölrit við Framhaldsdeild Skýrslur um búvélaprófanir. Ýmsar skýrslur. Bændaslólans á Hvanneyri, 19 s. ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR HANDBÓK Skógarbændur og skógræktarfólk! Bjóðum upp á trjáplöntun, slóðagerð, grisjun, kurlun og jarðvegsvinnu. Leigjum einnig út tæki til skógræktar. Gagntak ehf. Ari G. Öfjörð, Lækjargarði I, 801 Selfoss, sími: 482-2277 & gsm: 863-5206 eða Guðmundur A. Öfjörð simi: 692-4126, gagntak@simnet.is____________ SÉRPANTANA- ÞJÓNUSTAÁ VARAHLUTUM ( VINNUVÉLAR OG AMERÍSKAR BIFREIÐAR Við vinnum verkin! - Plæging og sáning - Beltagrafa - reiðvegagerð - flutningar - Rúllun og pökkun á heyi Sel ehf. Bessi Vésteinsson Hofsstaðaseli, 551 Sauðárkróki _______Sími: 453-6064 og GSM: 894-9360 22 FREYR 04 2005

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.